Síða 1 af 1

45þús króna skjákortin eru að verða úreld...

Sent: Þri 07. Sep 2004 21:01
af Holy Smoke
Nýju "mainstream" kortin frá NVidia, 6600GT-línan, eru að koma á markað. Þau koma til með að kosta 200$ (sennilega um 25þús. þegar þau koma hingað), og eru í LANGflestum tilfellum MIKLU hraðvirkari en 9800xt og 5950Ultra kortin sem kosta ennþá yfir 40þús. kall hér á landi.

Getið séð hér og á fleiri stöðum á netinu: http://www.anandtech.com/video/showdoc.aspx?i=2196

PCI-Express kortin ættu að koma á markað innan mánaðar, og AGP útgáfurnar innan annars mánaðar.

Hafið þetta á bakvið eyrað áður en þið farið og eyðið 30 til 45 þús. kalli í skjákort sem verður ekki meira en 15þús króna virði eftir mánuð.

Vildi bara vara ykkur við.

Sent: Þri 07. Sep 2004 21:34
af GuðjónR
Jamm það borgar sig að bíða aðeins...miklar breytingar handan við hornið...

Sent: Þri 07. Sep 2004 23:24
af Birkir
Gott að láta þetta koma fram... Það virðist sem mönnum liggi almennt á þegar þeir eru að spá í tölvukaupum. Skil bara ekkert í þessu :shock:

Sent: Mið 08. Sep 2004 16:48
af avalean
afhverju ætti maður að fá sér þessi "uber" kort þegar það eru fáir leikir sem styðja tæknina sem þau bjóða uppá.

HL2 Tæknin virkar á 5700 kortum fullvel og eru þessi 6000+ kort bara að búa undir leiki einsog Unreal 3. Maður hefur ekkert við þetta að gera. Redda sér bara fínu korti og góðum örgjörva/mobo/ram og þú ert í mjög góðum málum með nýja leiki og grafík i botn. Ef þú slackar eitthverstaðar á þessu þá augljóslega áttu eftir að lagga með grafík i botn.

Sent: Mið 08. Sep 2004 20:05
af MezzUp
offtopic;
avalean skrifaði:Owned your ass is such a kommunist term.
I would rather use : Your Ass Will Be Evenly Distributed To The People Based On Need

nú er ég enginn stjórnaskipulagsspekingur, en ætti þetta ekki að vera kapítalismi frekar heldur en kommúnismi?

Sent: Mið 08. Sep 2004 20:17
af goldfinger
MezzUp skrifaði:offtopic;
avalean skrifaði:Owned your ass is such a kommunist term.
I would rather use : Your Ass Will Be Evenly Distributed To The People Based On Need

nú er ég enginn stjórnaskipulagsspekingur, en ætti þetta ekki að vera kapítalismi frekar heldur en kommúnismi?


jú ég myndi nú halda það

Sent: Mán 13. Sep 2004 08:41
af gnarr
einmit, neðri línan er eins og kommúnistarnir vildu hafa þetta. jafnt fyrir alla..