Síða 1 af 1

120-150 þúsund í turn AMD

Sent: Mán 06. Maí 2013 19:26
af krani
Sælir,
Ég hef ekki litið á íhluti síðan 2009 og er alveg dottinn út úr öllu.
Er að spá í að eyða 120-150 þús í nýjann turn eingöngu til leikjaspilunar.
Amd örgjörvi er það eina sem mig langar að hafa í honum.
Turninn sjálfur má vera úr hverju sem er, er ekki að góna á útlitið á turninum þegar ég er að spila.

Re: 120-150 þúsund í turn AMD

Sent: Mán 06. Maí 2013 19:55
af I-JohnMatrix-I
Má ég spyrja afhverju það verður að vera AMD örgjörvi í honum ef þú ætlar að nota hann eingöngu til leikjaspilunar?

Re: 120-150 þúsund í turn AMD

Sent: Mán 06. Maí 2013 19:58
af krani
Sennilega bara gamall vani, alltaf verið með Amd.
Kannski Intel sé í lagi í dag, eins og ég segi ekki skoðað íhluti í mörg ár.

Re: 120-150 þúsund í turn AMD

Sent: Mán 06. Maí 2013 20:11
af Demon
Intel > AMD.
Annars er best að skoða skjákortin vel ef þú ert að huga að leikjaspilun.
Restin má mæta afgangi liggur við, þekki menn sem eru að keyra Q6600 örgjörva enn í dag með helvíti góðum árangri (og góðu skjákorti).

Re: 120-150 þúsund í turn AMD

Sent: Mán 06. Maí 2013 20:16
af Xovius
Intel er pottþétt með forskotið í dag þó AMD hafi verið það áður.

Re: 120-150 þúsund í turn AMD

Sent: Mán 06. Maí 2013 20:57
af angelic0-
For pricing reasons;

AMD > Intel

Spanderaðu stærsta pen' í stærsta AMD...

Getur komist af með 15-20k móðurborð...

annars skal ég selja þér riggið mitt... :)

Re: 120-150 þúsund í turn AMD

Sent: Mán 06. Maí 2013 21:57
af magnusgu87
viewtopic.php?f=29&t=54776

Hérna er svipaður þráður, bæði AMD og Intel build þarna. ég t.d fyrsta innleggið. AMD-build fyrir tæðan 150K en einsog ég segi sjálfur og kemur fram í þræðinum þá er þessi aflgjafi ekkert sérstaklega álitlegur. Reyndar ætti 520W aflgjafi alveg að duga þér þokkalega ef þú ert ekki mikið að fara overclocka eða tengja saman tvö skjákort.

Re: 120-150 þúsund í turn AMD

Sent: Mán 06. Maí 2013 22:22
af krani
magnusgu87 skrifaði:http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=29&t=54776

Hérna er svipaður þráður, bæði AMD og Intel build þarna. ég t.d fyrsta innleggið. AMD-build fyrir tæðan 150K en einsog ég segi sjálfur og kemur fram í þræðinum þá er þessi aflgjafi ekkert sérstaklega álitlegur. Reyndar ætti 520W aflgjafi alveg að duga þér þokkalega ef þú ert ekki mikið að fara overclocka eða tengja saman tvö skjákort.



Takk fyrir þetta, skoða þennan þráð nánar

Re: 120-150 þúsund í turn AMD

Sent: Þri 07. Maí 2013 00:44
af vikingbay
Endilega fáðu þér AMD maður, það þurfa einhverjir að halda uppi samkeppninni :)
Ekki svo slæmir örgjörvar líka þannig..