Síða 1 af 1
Alvöru hátalarar??
Sent: Mán 06. Sep 2004 17:53
af dabbi2000
ég er búinn að vera að skoða aðeins markaðinn hérna á Ísl og sé að það hefur enginn lagt í að flytja inn stóru stóru hátalarana frá Creative, Logitech osfrv... Þá er ég að tala um hátalara sem eru með 500W+ total power, þeir 7.1 sem ég er með núna (Inspire serían) eru ekki nema 100W, ég vil meira!!
Nú er ég með fínt 5.1 kort í vélinni með optical out osfrv... Þið heimabíó-dúddar, hvað hafið þið gert í ykkar tilfelli?? Gigaworks kostar 70þ kall innfluttur hjá Tölvulistanum, þá get ég alveg eins fengið flott Sony heimabíó í Elko á 60þ, ég bara hef ekkert við fjandans magnarann að gera þar, það er allt í hljóðkortinu í vélinni!!!
Anyone?
Sent: Mán 06. Sep 2004 19:36
af emmi
BT var einhvern tímann með Logitech Z-680 kerfið og kostaði það um 60kall, veit ekki hvort það sé til þar ennþá þó.
Sent: Mán 06. Sep 2004 19:42
af dabbi2000
Já þeir eru víst nokkuð sambærilegir. 60þ samt svekkjandi þegar þetta kostar $350 í USA sem er jú 25þ. Myndi panta með ShopUSA nema þá er allt óvíst með ábyrgðina. Tölvudreifing sem ótrúlegt en satt er einmitt umboðsaðili fyrir Creative neitar að bera ábyrgð ef ég panta sjálfur (stenst það lög?!?!!)
Er reyndar að athuga hjá tolvuland.com mér skilst þeir hafi verið duglegir að sérpanta á góðu verði.
Sent: Þri 07. Sep 2004 04:01
af Petur
Ég var mikið að spá í þessu um daginn.. og niðurstaðan var sú að ég skellti mér á heimabíjó...
Sent: Þri 07. Sep 2004 04:17
af dabbi2000
ok er búinn að hugleiða það líka
viltu deila pælingunum þínum hérna, væri gaman að vita
Sent: Þri 07. Sep 2004 12:54
af BlitZ3r
ég keypti Eltax HeimaBíó er 500w og hevy læti í þessu og tegndi við tölvu gegnum s/pdif. hægt er að bæta við bassaboxi en er engin þörf því þetta er Old School kerfi. kostaði 72þús í apríl í fyrra
hátalarnir:
http://www.eltax.com/products/salgelektronik.php?varenr=10045
Magnarinn
http://www.eltax.com/products/products.php?varenr=11007&serienavn=AVR-250&type=AV-Receiver&valg=serie&farve=Silver
Sent: Þri 07. Sep 2004 20:14
af Hlynzi
Ef þú villt bassa þá er málið að fá sér REL bassabox (
http://www.rel.net )
fáðu þér frekar alvöru kerfi heldur en eitthvað tölvuhátalaradót.
En það kostar svona 100 þúsund.
Sent: Þri 07. Sep 2004 22:26
af Steini
En hvað með
þetta logitech hátalarasett? Ég var að spá í að kaupa þetta en svo þarf ég örugglega hljóðkort, þetta innbyggða er ekkert að meika það.
Bara einhverjar truflanir í micnum og ekki séns að vera með mér á ventrilo. Get ég gert eitthvað til að fixa það? Er með abiti ic7-g og innbyggt hljóðkort í því, gætu þetta verið einhverjar stillingar eða er kortið bara drasl? Hverju ódýru mælið þið þá með?
Sent: Þri 07. Sep 2004 22:32
af pjesi
Steini skrifaði:Bara einhverjar truflanir í micnum og ekki séns að vera með mér á ventrilo. Get ég gert eitthvað til að fixa það?
Gætir testað að breyta hertz stillingum á ventrilo servernum. Sumir ráða ekki við default gildið. Amk hef ég lagað þetta þannig.
Sent: Þri 07. Sep 2004 22:41
af Steini
Ok en gætir þú sagt mér aðeins nákvæmar hvað ég eigi að gera?
Sent: Þri 07. Sep 2004 23:02
af pjesi
VoiceCodec=0
VoiceFormat=1
breyta þessum stillingum á ventrilo servernum, aðalega VoiceFormat
Sent: Þri 07. Sep 2004 23:08
af Steini
Ok ég er ekkert að finna þetta, get ég ekkert breytt þessu í setup hjá mér ?
Sent: Mið 08. Sep 2004 21:09
af pjesi
Steini skrifaði:Ok ég er ekkert að finna þetta, get ég ekkert breytt þessu í setup hjá mér ?
Þetta er server side stillingar, ef þú ert ekki að runna serverinn geturru testað að láta þann sem gerir það breyta...
Sent: Mið 08. Sep 2004 22:43
af Steini
Ok sleppum því, ég ætla örugglega bara að fá mér nýtt kort, veistu hvort að
þetta sé ekki í lagi? Ég geri ekki miklar kröfur btw
Sent: Fim 09. Sep 2004 15:59
af dabbi2000
http://www.tolvuland.com ætlar að flytja inn fyrir mig Gigaworks hátalarana og hingað komnir verða þeir á um 55-58þ. Ég er sæmilega sáttur við það enda ekki að ræða það að bæta við einhverju auka boxi (magnara) þegar það er allt í tölvunni.
Ef e-r fleiri hafa áhuga á að vera með í lestinni endilega láta mig vita asap, væri hægt að fá þetta ódýrara með meira magni.
Minn hlakkar til, ekki nágrannarnir :)
:. xXx .:
Sent: Fim 16. Sep 2004 15:39
af Gestir
ég er ekki b úinn að lesa öll bréfinn hérna en what the crap..
Bt var með þroskaheft kerfi frá logitech sem er held ég ennþá til og er á 39900 núna ef mig minnir rétt.. var á rúmlega 50.000 kall um jólin
þetta er í THX staðli og sándar FÁRÁNLEGA VEL. það er betra en öll hin heimabíó kerfin sem BT var að bjóða upp á .. en þetta er náttlega huxað fyrir Tölvur.. þó þú ráðir því alveg sjálfur
Annað.. U.S Blaster eru með rosalega góð kerfi .. hægt að sérpanta það í gegnum tölvulistann.. eitt var á minnir mig 23.900 og það er sama kerfi og er í afgreiðslunni á Ground Zero.. og það sándar alveg meiriháttar vel. Amk líka inni í herbergi á stærðarbili 8-16 fermetrar sem er algengasta stærðinn hjá ykkur
þá er það meira en nóg ..
Sent: Fim 16. Sep 2004 16:01
af Snorrmund
Semsagt þetta virkar ekki í mínu herbergi(19 m2)
en er hvortsemer ekkert að spá í heimabíó kerfi
Sent: Fim 16. Sep 2004 22:30
af dabbi2000
hvaða tegund var þetta aftur af Logitech? Einhver hérna sem á svoleiðis og getur sagt frá reynslu sinni?
Sent: Mán 20. Sep 2004 00:13
af jon_ice
Ég á Logitech Z-680 sem kostar núna 70.000 kr. í BT. Keypti það í gegnum ShopUSA.is. Þurfti reyndar að kaupa spennubreyti uppá 12.000 kall en allt í allt kostaði pakkinn 40.000 kr. 500 RMS wött og 5.1 auðvitað.
Ég hef bara eitt orð yfir þessar græjur "AWESOME".
Þetta eru geðveikar græjur. Þær bjóða uppá Coaxial, Optical, Direct eitthvað dótarí (man ekki hvað heitir) sem er semsagt fyrir PC tölvur (grænn,svartur og gulur) og auðvitað þetta venjulega tengi líka. Svo er hægt að tengja heyrnartól við þetta þegar fólk er farið að sofa
Ég nota þetta í leiki, bíómyndir og tónlist. Þetta hljómar allt fyrsta flokks í þessum græjum og ég mæli sterklega með þeim. Bassinn er þvílíkur að þið megið búast við kvörtunum frá nágrönnunum.
Þetta er algjör geðveiki og ég hef aldrei hækkað hærra en helming.... og það er feikinóg fyrir mig.....
Sent: Mán 20. Sep 2004 00:19
af dabbi2000
einmitt þetta sem mig langar að gera ég er bara smeykur með ábyrgðina... Er reyndar að spá í að biðja félaga minn í USA að panta þetta heim, prufukeyra og senda svo opnað og pakkað í afmælispappír hingað heim