Síða 1 af 2
Ný tölva fyrir ~150k ? (vantar aðstoð við að púzzla saman)
Sent: Mið 01. Maí 2013 14:51
af natti
Mig vantar sumsé nýja tölvu (kassann + innihald).
Og þar sem það eru komin ~10 ár síðan ég hætti alveg að pæla í svona hw-tölvu-stuffi þá hef ég satt best að segja ekki hugmynd hvar ég á að byrja eða hvað ég get fengið fyrir peninginn.
Pælingin er bara: Hvað get ég fengið fyrir uþb ~150þ.
Usage: Ég er ekki mikill leikjamaður, en eins og gengur og gerist þá getur nú samt verið gaman að ná í einhvern leik via steam og spila, þannig að óskastaðan er eiginlega bara að tölvan geti spilað einhverja leiki, (xcom, civ, world-of-tanks, something), án þess að nánast deyja á sig á meðan.
Hljóðlátt er plús.
Allt fancystuff (gler á kassa, ljós í kassa, etc) má alveg sleppa.
SSD fyrir system disk.
Ég var búinn að renna yfir nokkra þræði hérna, en er næstumþví jafn lost.
Einhverjar hugmyndir/tillögur?
Edit:
Intel (i5?) preferred.
"auka" HDD þarf ekki að vera neitt spes né stór, er með fína NAS græju sem, þannig að það verður ekki mikið "geymt" á tölvunni.
Re: Ný tölva fyrir ~150k ? (vantar aðstoð við að púzzla sama
Sent: Mið 01. Maí 2013 17:05
af magnusgu87
Sæll
Þetta er mjög gróft uppkast hjá mér og kannski ágætis útgangspunktur fyrir þig og aðra. Samtals kostar þetta 152.810kr
AMD Piledriver X6 FX-6300 3.5GHz BlackGigabyte AM3 GA-970A-UD3 móðurborðInno3D GeForce GTX 650Ti Boost 2048MBCorsair 1333MHz 8GB (2x4GB) ValueSelectSamsung 840 Series 120GB 2.5" Solid-State SATA 6.0Gb/s SSD2TB, Seagate SATA3 6Gb/sThermaltake V9 BlacX ATX turnkassi, svarturAflgjafi - 650w - Inter-Tech Energon EPS-650 2.2 ATXAflgjafinn virðist reyndar ekki vera til hjá tölvuvirkni, auk þess sem ég þekki lítið til þessa merkis. Spurning um að hafa bara samband við þá og spyrja hvenær von er á vöruna og hvaða reynslu þeir hafa af henni.
Einnig tek ég það fram að þetta er alls ekki heilagt build og öllum velkomið að breyta og bæta. Hugmyndin var einungis að snara saman öllum nauðsynlegu pörtum fyrir budgetið og þær kröfur sem OP gerir.
Re: Ný tölva fyrir ~150k ? (vantar aðstoð við að púzzla sama
Sent: Mið 01. Maí 2013 17:30
af littli-Jake
http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=2338 i5 örru=28K
http://www.tolvuvirkni.is/ip.php?inc=vi ... G_Z77X-D3H SLI móðurborð 27K
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=8056 120 gig SSD 20K
http://start.is/product_info.php?cPath= ... ts_id=3673 2x4gig DDR3 11K
http://www.kisildalur.is/?p=2&id=1503 SLI reddy aflgjafi 14K
http://kisildalur.is/?p=2&id=1591 Basic turn með viftustýringu. 15K
http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=2271 Skjákort 38K
Total 153K. Ég námunda líka alltaf upp á við. sennilega er þeta frekar 151 til 152K. Gætir sparað þér örlítið í aflgjafnanum þó að ég mæli ekki með því. Mundi hinsvegar mæla sterklega með því að fá þér aftermarket örrakælingu þar sem stoc er drasl.
Mundi mæla með til dæmis CoolerMaster Hyper 212 og svo allavega 1 auka kæliviftu í kassan.
Total 160K
EditSá breitingu í OP að þú spilar víst ekki mikið af leikjum. Kæmist alveg af með ódýrara skjákort eða gætir keipt eitthvað notað.
Re: Ný tölva fyrir ~150k ? (vantar aðstoð við að púzzla sama
Sent: Mið 01. Maí 2013 17:44
af Swanmark
magnusgu87 skrifaði:
Aflgjafinn virðist reyndar ekki vera til hjá tölvuvirkni, auk þess sem ég þekki lítið til þessa merkis.
Hef heyrt nánast allstaðar að Inter-Tech sé skítur, enda eru þeir ódýrir miðað við aðra.
You get what you pay for gildir örugglega við þetta. :p
Re: Ný tölva fyrir ~150k ? (vantar aðstoð við að púzzla sama
Sent: Mið 01. Maí 2013 17:47
af Arnarmar96
Jabb, Inter-Tech er rusl.. ef þú ætlar að vera með skjákort sem þarf rafmagn frá aflgjafa ekki fá þér inter tech..
Re: Ný tölva fyrir ~150k ? (vantar aðstoð við að púzzla sama
Sent: Mið 01. Maí 2013 17:57
af natti
Hvað með AMD vs intel i5 vs i7 ?
E-ð sérstakt sem þarf að pæla í?
Eða erum við þá bara komin út í trúarbrögð?
Re: Ný tölva fyrir ~150k ? (vantar aðstoð við að púzzla sama
Sent: Mið 01. Maí 2013 18:01
af littli-Jake
natti skrifaði:Hvað með AMD vs intel i5 vs i7 ?
E-ð sérstakt sem þarf að pæla í?
Eða erum við þá bara komin út í trúarbrögð?
í i5 vs i7 fer þetta erftir notkun. Ef þú ætlar í þunga myndvinslu/hljóðvinslu ferðu hiklaust í i7. Ef þú ætlar bara í leiki og browsin er i5 mun rökréttari kostur þar sem þú ert á bodget.
Intel Vs. Amd. Eginlega bara trúarbrögð. Sama gildir um Nvidia vs. Redion.
Re: Ný tölva fyrir ~150k ? (vantar aðstoð við að púzzla sama
Sent: Mið 01. Maí 2013 18:08
af GuðjónR
natti skrifaði:Hvað með AMD vs intel i5 vs i7 ?
E-ð sérstakt sem þarf að pæla í?
Eða erum við þá bara komin út í trúarbrögð?
Ekki eyða tímanum í að spá í AMD.
Re: Ný tölva fyrir ~150k ? (vantar aðstoð við að púzzla sama
Sent: Mið 01. Maí 2013 19:07
af magnusgu87
GuðjónR skrifaði:natti skrifaði:Hvað með AMD vs intel i5 vs i7 ?
E-ð sérstakt sem þarf að pæla í?
Eða erum við þá bara komin út í trúarbrögð?
Ekki eyða tímanum í að spá í AMD.
Þetta sýnist mér vera dæmi um trúarbrögð.
Það er algjör óþarfi að snúa þessu uppí AMD vs Intel - það er svona í raun bara fanboy-ism umræða.
Við skulum einbeita okkur að því að setja saman besta buildið fyrir þennan 150K.
Á þessum lista geturu séð svona mesta "bang for the buck" fyrir örgjörvann þinn.
Á þessum lista geturu svo séð mesta "bang for the buck" fyrir skjákortið þitt.
Hérna hefuru allavega góðan samanburð á verð/performance svo getur þú tekið meðvitaða ákvörðun um hvort þú telur nýtast og henta þér betur.
Re: Ný tölva fyrir ~150k ? (vantar aðstoð við að púzzla sama
Sent: Mið 01. Maí 2013 21:34
af natti
Hvernig er það.
Ef ég kaupi t.d.:
þennan örgjörva.
Á ég þá eftir að kaupa viftu á hann líka?
Re: Ný tölva fyrir ~150k ? (vantar aðstoð við að púzzla sama
Sent: Mið 01. Maí 2013 22:07
af Arnarmar96
Nei, hann kemur með stock viftunni, en mæli hinsvegar með 3570K því þú getur overclockað alveg þvílíkt með þessum örgjörvum. en non K eru læstir þannig þú nærð varla neinu overclocki úr þeim
Re: Ný tölva fyrir ~150k ? (vantar aðstoð við að púzzla sama
Sent: Mið 01. Maí 2013 22:08
af I-JohnMatrix-I
Nei hún fylgir með, það er nú samt mælt með að kaupa aðra kælingu þar sem þessar stock intel kælingar eru drasl.
úps commentuðum á sama tíma hehe
Re: Ný tölva fyrir ~150k ? (vantar aðstoð við að púzzla sama
Sent: Mið 01. Maí 2013 22:11
af Arnarmar96
I-JohnMatrix-I skrifaði:Nei hún fylgir með, það er nú samt mælt með að kaupa aðra kælingu þar sem þessar stock intel kælingar eru drasl.
úps commentuðum á sama tíma hehe
Ég kommentaði nú mínutu fyrr, eða nokkrum sekundum
Re: Ný tölva fyrir ~150k ? (vantar aðstoð við að púzzla sama
Sent: Mið 01. Maí 2013 22:23
af natti
I-JohnMatrix-I skrifaði:Nei hún fylgir með, það er nú samt mælt með að kaupa aðra kælingu þar sem þessar stock intel kælingar eru drasl.
Einhver "preferred" kæling?
Re: Ný tölva fyrir ~150k ? (vantar aðstoð við að púzzla sama
Sent: Mið 01. Maí 2013 22:26
af Arnarmar96
Getur gripið eitthverja aðra kælingu bara, mæli með H100i, en það er frekar dýrt
gríptu bara Hyper 212 Evo ef þú sérð hana eitthverstaðar, ég var reyndar með ódýrari týpu af henni og aðeins minni, en hún virkaði betur en stock kælingin, og kældi 4.2 ghz 3570k-inn minn frekar vel
Re: Ný tölva fyrir ~150k ? (vantar aðstoð við að púzzla sama
Sent: Mið 01. Maí 2013 22:34
af Bioeight
Stock viftur eru aldrei neitt frábærar, betra að eyða 5000 kr. meira og kaupa einhverja sæmilega góða og hljóðláta viftu.
AMD örgjörvar eru ágætir en flestir mæla með því að kaupa frekar Intel ef þú ert að kaupa allt nýtt.
Myndi skoða eitthvað í þessa áttina:
Kisildalur.is - Karfan mín skrifaði: Core i5-3570K Ivy Bridge (OEM - án viftu)- 3.4GHz, 6MB L3 Skyndiminni, LGA1155, fjórkjarna, aflæstur
kr. 39.500
ASRock Z77 Extreme4 ATX Intel LGA1155 móðurborð- Intel Z77, 4xSATA2, 4xSATA3, eSATA, GLAN, XFire, SLI, USB3, DVI/VGA/HDMI
kr. 29.500
GeiL 16GB (2x8GB) Leggera 1600MHz DDR3- PC3-12800, CL 9-9-9, Dual-Channel
kr. 21.500
EZ-cool N2-800D ATX turnkassi (450W)- Svartur, 2 x 120mm kæliviftur, ATX2.2 Aflgjafi
kr. 11.500
1TB Seagate Barracuda SATA3- 3.5", 7200 snúninga, 64MB buffer
kr. 13.500
120GB Samsung840 SATA3 SSD- 2.5" SSD diskur, Samsung MDX, 530/130MB/s R/W
kr. 19.500
Scythe Katana 3 örgjörvakæling- 92mm kælivifta hljóðlát, 3 tvöfaldar kælipípur
kr. 5.000
Inno3D GeForce GTX 560SE 1024MB- 192-bit GDDR5, PCI-Express 2.0, stuðningur við 2 skjái
kr. 19.500
Samtals: 159.500
(opna körfukóða)
Ef þú ætlar svo aldrei að yfirklukka né selja örgjörvann þá geturðu tekið einhvern aðeins ódýrari i5 örgjörva. t.d. i5 3570 eða 3470.
Re: Ný tölva fyrir ~150k ? (vantar aðstoð við að púzzla sama
Sent: Mið 01. Maí 2013 22:56
af natti
Re: Ný tölva fyrir ~150k ? (vantar aðstoð við að púzzla sama
Sent: Fim 02. Maí 2013 00:03
af Bioeight
Með þessu skjákorti og þessum örgjörva þá er 750W aflgjafi overkill. Myndi minnka hann nema þú viljir hafa opið fyrir að fá þér eitthvað massíft skjákort í framtíðinni. 400W aflgjafi dugar fyrir þetta, 500W er meira en nóg.
Fyrir Intel Ivy Bridge er mælt með 1.5V minniskubbum - t.d.
http://kisildalur.is/?p=2&id=2048 eða
http://start.is/product_info.php?cPath=80_24_160&products_id=3539Svo er spurning hvort þessi örgjörvakæling passar í þennan kassa, þeir í Kísildal ættu nú samt að vita það. Hún er bara frekar hávaxin, ekki gott ef hún er að rekast í kassalokið.
Re: Ný tölva fyrir ~150k ? (vantar aðstoð við að púzzla sama
Sent: Fim 02. Maí 2013 00:16
af ggmkarfa
Sett saman í janúar þannig verðin hafa breyst en læt vaða. Vantar solid state....
Re: Ný tölva fyrir ~150k ? (vantar aðstoð við að púzzla sama
Sent: Fim 02. Maí 2013 09:08
af littli-Jake
Mundi taka þetta skjákort án þess að hika. Er með svona og er virkilega sáttur. Sparar þér öruglega um 10K
viewtopic.php?f=11&t=54786
Re: Ný tölva fyrir ~150k ? (vantar aðstoð við að púzzla sama
Sent: Mán 06. Maí 2013 23:33
af vargurinn
Bioeight skrifaði:Stock viftur eru aldrei neitt frábærar, betra að eyða 5000 kr. meira og kaupa einhverja sæmilega góða og hljóðláta viftu.
AMD örgjörvar eru ágætir en flestir mæla með því að kaupa frekar Intel ef þú ert að kaupa allt nýtt.
Myndi skoða eitthvað í þessa áttina:
Kisildalur.is - Karfan mín skrifaði: Core i5-3570K Ivy Bridge (OEM - án viftu)- 3.4GHz, 6MB L3 Skyndiminni, LGA1155, fjórkjarna, aflæstur
kr. 39.500
ASRock Z77 Extreme4 ATX Intel LGA1155 móðurborð- Intel Z77, 4xSATA2, 4xSATA3, eSATA, GLAN, XFire, SLI, USB3, DVI/VGA/HDMI
kr. 29.500
GeiL 16GB (2x8GB) Leggera 1600MHz DDR3- PC3-12800, CL 9-9-9, Dual-Channel
kr. 21.500
EZ-cool N2-800D ATX turnkassi (450W)- Svartur, 2 x 120mm kæliviftur, ATX2.2 Aflgjafi
kr. 11.500
1TB Seagate Barracuda SATA3- 3.5", 7200 snúninga, 64MB buffer
kr. 13.500
120GB Samsung840 SATA3 SSD- 2.5" SSD diskur, Samsung MDX, 530/130MB/s R/W
kr. 19.500
Scythe Katana 3 örgjörvakæling- 92mm kælivifta hljóðlát, 3 tvöfaldar kælipípur
kr. 5.000
Inno3D GeForce GTX 560SE 1024MB- 192-bit GDDR5, PCI-Express 2.0, stuðningur við 2 skjái
kr. 19.500
Samtals: 159.500
(opna körfukóða)
Ef þú ætlar svo aldrei að yfirklukka né selja örgjörvann þá geturðu tekið einhvern aðeins ódýrari i5 örgjörva. t.d. i5 3570 eða 3470.
16gb ram fyrir leikjatölvu er overkill, hæstu leikir eru að maxa 4gb(hef ég heyrt hérna á vaktinni).Minnkar það niður í 8 gbog eyðir 10k unum í aflgjafan eða skjákortið
bara svona þegar ég leit snöggt yfir þetta
Re: Ný tölva fyrir ~150k ? (vantar aðstoð við að púzzla sama
Sent: Þri 07. Maí 2013 00:01
af Bioeight
vargurinn skrifaði:16gb ram fyrir leikjatölvu er overkill, hæstu leikir eru að maxa 4gb(hef ég heyrt hérna á vaktinni).Minnkar það niður í 8 gbog eyðir 10k unum í aflgjafan eða skjákortið
bara svona þegar ég leit snöggt yfir þetta
Sammála, en ég hélt að natti myndi kannski vilja meira vinnsluminni til að gera eitthvað annað skemmtilegt. Hann er ekki mikið að spila leiki þó hann vilji hafa möguleikann á því.
Hvernig gengur svo annars með þetta natti? Búinn að kaupa eitthvað?
Re: Ný tölva fyrir ~150k ? (vantar aðstoð við að púzzla sama
Sent: Þri 07. Maí 2013 00:09
af linenoise
Almennt myndi ég kaupa notað skjákort. Er með GTX 260 í minni tölvu, sem hefur dugað mér í alla leiki sem ég vil spila. Ef þetta er til ennþá, þá er það athugandi
viewtopic.php?f=11&t=53670 . Ætti að fást fyrir slikk.
Re: Ný tölva fyrir ~150k ? (vantar aðstoð við að púzzla sama
Sent: Lau 11. Maí 2013 18:22
af natti
Bioeight skrifaði:vargurinn skrifaði:16gb ram fyrir leikjatölvu er overkill, hæstu leikir eru að maxa 4gb(hef ég heyrt hérna á vaktinni).Minnkar það niður í 8 gbog eyðir 10k unum í aflgjafan eða skjákortið
bara svona þegar ég leit snöggt yfir þetta
Sammála, en ég hélt að natti myndi kannski vilja meira vinnsluminni til að gera eitthvað annað skemmtilegt. Hann er ekki mikið að spila leiki þó hann vilji hafa möguleikann á því.
Þetta er spot-on.
Spila lítið af leikjum, snýst um að geta gripið í, en miðað við allt sem mér gæti mögulega dottið í hug að gera annað þá er ekki verra að vera með nóg ram.
Bioeight skrifaði:Hvernig gengur svo annars með þetta natti? Búinn að kaupa eitthvað?
Ég er búinn að ákveða hvað ég ætla að kaupa, og hvar.
Ég hópaði þetta saman þannig að ég myndi kaupa sem mest á sem fæstum stöðum, og nýta afslátt sem maður hefur í gegnum vinnuveitanda og aðra.
(Svo er það ákveðinn factor varðandi t.d. ábyrgð að gera, að ábyrgðin á öllu dótinu sé í raun bara á einum eða tveimur stöðum en ekki útum allt.)
En þar sem ég er líka í skóla, og síðasta prófið er næsta þriðjudag, þá ákvað ég að bíða með að fara og actually kaupa dótið þar til það próf væri búið.
Ef ég myndi ná í dótið fyrr myndi það eflaust hafa neikvæð áhrif á próflesturinn hjá mér...
Re: Ný tölva fyrir ~150k ? (vantar aðstoð við að púzzla sama
Sent: Lau 11. Maí 2013 20:38
af Bioeight
Flott! Vertu duglegur að læra natti!