Síða 1 af 1

Að uppfæra, gott að fá ráðleggingar

Sent: Mán 29. Apr 2013 13:57
af Cecc
Sæl öllsömul,

Ætla að fara uppfæra tölvuna núna í byrjun maí. Tölvunni er ætlað að vera Gaming-djásnið mitt næstu árin :) *EDIT* Lagaði villur

Hér eru speccarnir sem ég er að spá í:
Örgjörvi: Ivy Bridge Intel Core i5 3570K 3.4 Ghz Quad Core.
URL: http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=2201

Innraminni: (16GB) 2x8 GB DDR3 2133MHz

Móðurborð: ASRock Fatal1ty Z77 Professional
URL: http://www.kisildalur.is/?p=2&id=2116

Skjákort: Geforce GTX 670 2048MB DDR5.
URL: http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=2204

Aflgjafi: Cooler Master Silent Pro M 600W.
URL: http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=7421

Kassi: CoolerMaster HAF 922 Gaming.
URL: http://tl.is/product/coolermaster-haf-922-gaming

Skjár: 27" widescreen


Einhver með tillögur um hvað mætti fara betur (t.d. sjáið þið einhverja ljóta flöskuhálsa)? Þetta er c.a. mitt price range, 200-250k.

Re: Að uppfæra, gott að fá ráðleggingar

Sent: Mán 29. Apr 2013 14:10
af Stutturdreki
Ættir kannski að laga:
Cecc skrifaði:Skjákort: Gigabyte X79-UD3.

Og linka á móðurborðið.

Annars ætlaði ég að stinga upp á stærra PSU en þetta skjákort er gefið upp með min 500-550 watts svo það ætti að sleppa.

Re: Að uppfæra, gott að fá ráðleggingar

Sent: Mán 29. Apr 2013 14:15
af Cecc
Lagaði þetta :) Já ég var sjálfur smá skeptískur á aflgjafann en mér sýnist að hann ætti að virka, amk. á blaði.

Re: Að uppfæra, gott að fá ráðleggingar

Sent: Mán 29. Apr 2013 14:21
af Hnykill
Móðurborðið er socket 2011 en örgjörvinn 1155.. þart að finna annað móðurborð fyrir þennan örgjörva. eða öfugt.

Re: Að uppfæra, gott að fá ráðleggingar

Sent: Mán 29. Apr 2013 14:26
af Cecc
Er eitthvað sérstakt sem þú myndir mæla með?

Re: Að uppfæra, gott að fá ráðleggingar

Sent: Mán 29. Apr 2013 14:43
af Baraoli
Miða við price range myndi ég frekar fara í 1155 mobo fyrir örgjörva sem þú linkaðir á
Því 2011 er töluvert dýrari örri

Re: Að uppfæra, gott að fá ráðleggingar

Sent: Mán 29. Apr 2013 14:46
af peer2peer
Cecc skrifaði:Er eitthvað sérstakt sem þú myndir mæla með?

http://start.is/product_info.php?cPath= ... ts_id=3445 eða
http://www.kisildalur.is/?p=2&id=2116

Re: Að uppfæra, gott að fá ráðleggingar

Sent: Mán 29. Apr 2013 14:51
af Cecc
Var að skella inn nýju borði, leyst vel á borðin sem Pétur benti á.