Síða 1 af 1
Tölvan restartar í leikjum
Sent: Mið 01. Sep 2004 11:00
af Pectorian
Eins og áður segir þá restartar tölvan í leikjum, það kemur stundum blár skjár í augnablik ég næ ekki einusinni að sjá hvað stendur þarna, ég er með næstum allt nýtt í vélinni nema skjákortið þannig að mig grunar það helst. Ég er með Geforce 4200. Stundum frýs tölvan í Far Cry og þá get ég ekkert gert nema halda power takkanum inni þar til slokknar.
Jæja, einhverjar hugmyndir
Sent: Mið 01. Sep 2004 18:16
af DaRKSTaR
skal ekki undra að tölvan frjósi stundum í farcry með gf4 ti4200 skjákorti?.. geturðu actually spilað leikinn?
Sent: Mið 01. Sep 2004 18:20
af BlitZ3r
annaðhvort ofhitnar skjákort eða örri
Sent: Mið 01. Sep 2004 19:01
af SolidFeather
Ég gat nú spilað far cry á medium á 800x600, með Ti 4200
Sent: Mið 01. Sep 2004 20:36
af Manager1
Hah, ég spilaði Farcry á medium með MX440 kortinu mínu
... kannast við þetta vandamál með bláskjáinn og restart, mæli með því að þú kaupir þér nýtt skjákort, held það sé ekki nein önnur lausn á þessu.
Þetta er amk ekki hitavandamál hjá mér.
Sent: Mið 01. Sep 2004 21:10
af elv
Manager1 skrifaði:
... kannast við þetta vandamál með bláskjáinn og restart, mæli með því að þú kaupir þér nýtt skjákort, held það sé ekki nein önnur lausn á þessu.
Þetta er amk ekki hitavandamál hjá mér.
Hvernig færðu það út.......mig langar mjög mikið að vita það
Hvaða villa kemur þegar BSOD kemur ?
Sent: Mið 01. Sep 2004 21:17
af Daz
Manager1 skrifaði:Hah, ég spilaði Farcry á medium með MX440 kortinu mínu
... kannast við þetta vandamál með bláskjáinn og restart, mæli með því að þú kaupir þér nýtt skjákort, held það sé ekki nein önnur lausn á þessu.
Þetta er amk ekki hitavandamál hjá mér.
Ef nýtt skjákort er lausnin, þá er nokkuð öruggt að það gamla var gallað og því ættir þú rétt á endurgreiðslu. Og það er ekki algilt að skjákort séu gölluð.
Sent: Mið 01. Sep 2004 22:06
af Pectorian
Jamm ég er að spila dótið í low
þannig að ég er nú ekki að setja það mikið álag á dótið og tölvan gerir þetta líka í öðrum leikjum. Held samt að ég geti ekki skilað kortinu, finn nefnilega ekki nótuna, þarf maður ekki að hafa hana
Sent: Mið 01. Sep 2004 22:33
af Xtrife
hefurðu prófað að taka Automaticly Restart hackið af í System properties>advanced settings>Start and Recovery. Ef það er á, þá er windows stilltur á að restarta, ef villa gerist..þessi villa þarf ekki alltaf að vera stórvægileg
Sent: Fim 02. Sep 2004 07:50
af gnarr
það er nú nánast alveg jafn mikið álag á kortinu í low og medium. þetta er líklegast ofhitnun. ekkert vera að fá þér nýtt kort, þetta er mjög fínt kort.
Sent: Fim 02. Sep 2004 08:46
af Daz
Ef að hitinn í kassanum sjálfum fer vel yfir 30°C þá er það vísbending um að skjákortið sé að ofhitna (svo lengi sem örgjörvinn er þá ekki í 70°C), athugaðu með hitann á því sem þú getur séð (með t.d. speedfan) og segðu okkur hvað þú færð.
Re: Tölvan restartar í leikjum
Sent: Fim 02. Sep 2004 09:16
af Jakob
Það eru nokkrir hlutir sem þú skalt gera.
1. Fá þér nýtt skjákort (ég mæli með Radeon X800 kortunum)
2. Formatta vélina (system partition) áður en þú setur nýja skjákortið í, svo
allt sé pottþétt í lagi.
3. Keyra memtest86 á vélina, eftir að þú ert búinn að þessu:
Brenna þetta ISO image:
http://www.memtest86.com/memtest86-3.1a.iso.zip
Þetta ætti að duga
Ef þú getur ekki verzlað nýtt skjákort núna, keyrðu þá amk. memtestið.
Sent: Fim 02. Sep 2004 17:55
af DaRKSTaR
mæli einna helst með að hann kíki á skjákortið, ef viftan í lagi, kannski farin að slappast þannig að kortið ofhitnar í mikilli vinnslu?
er allt í lagi með vélina í öðrum leikjum en farcry?
hefurðu keyrt 3dmark og hefur það gengið upp?
ef þú tekur lokið af kassanum gengur hún þá lengur/betur í t.d farcry?
ef þetta er bara í farcry, sótt nýjasta update fyrir hann og prufað?
Sent: Fim 02. Sep 2004 18:30
af BlitZ3r
vinur minn átti ti4200 og alltí einu festist vitan í ryki og drullu keyrði það í 2 mánðuði og með engar kassa viftur
Sent: Fös 03. Sep 2004 02:01
af Pectorian
Ok prófaði þetta sem Xtrife stakk uppá og tölvan hefur ekki restartað í dag
en hún er búin að frjósa í Far Cry, meira að segja komu endalausar rendur yfir allan skjáinn. Þannig að ég held að það sé kominn tími á nýtt skjákort þegar ég hef efni á því
Sent: Lau 04. Sep 2004 23:31
af Manager1
Daz skrifaði:Manager1 skrifaði:Hah, ég spilaði Farcry á medium með MX440 kortinu mínu
... kannast við þetta vandamál með bláskjáinn og restart, mæli með því að þú kaupir þér nýtt skjákort, held það sé ekki nein önnur lausn á þessu.
Þetta er amk ekki hitavandamál hjá mér.
Ef nýtt skjákort er lausnin, þá er nokkuð öruggt að það gamla var gallað og því ættir þú rétt á endurgreiðslu. Og það er ekki algilt að skjákort séu gölluð.
Mér er hent útúr sumum leikjum og öðrum ekki. Tölvan virðist velja alveg random hvaða leikir það eru, og hvenær hún hendir mér útúr þeim
Ef þetta væri hitavandamál ætti mér að vera hent útúr öllum leikjum, eða amk langflestum. Ég spila t.d. Farcry, GTA3 Vice City og NFSU alveg leikandi, á meðan leikir eins og NFS Hot Pursuit 2 og GTA3 virka ekki.
Man ekki nákvæmlega hvaða skilaboð ég fá á bláskjánum, en það var m.a. stungið uppá að ég prufaði að slökkva á shading og einhverju öðru í BIOSnum.
Sent: Sun 05. Sep 2004 13:30
af gnarr
shadowing meinaru... shading er hlutur sem skjákortið notar og tengist biosnum á móðurborðinu ekkert. hinsvegar er shadowing stilling íbios sem gerir töllvunni kleyft að afrita biosinn úr bios ROM-inu yfir í vinsluminnið, og eykur þannig vinslugetu tölvunnar.