Síða 1 af 1
Ný skjákortsvandræði, skil bara ekkert í þessu :(
Sent: Mán 30. Ágú 2004 21:06
af Ofurlæðan
Sælir, FX5600 kortið mitt er að öllum líkindum bilað svo ég setti í vélina mína ATI Radeon 7200 64mb til að bjarga mér. Ég virðist geta spilað alla leiki fínt nema Grand Theft Auto: Vice City sem er uppáhaldið mitt. Ég kveiki á leiknum og tónlistin byrjar sem fylgir honum en skjárinn slekkur á sér (eins og gerist ef kveikt er á skjánum en ekki tölvunni) og ef ég ýti á Windows takkann á lyklaborðinu tekur skjárinn aftur við sér og ég þarf að slökkva á leiknum með Task Manager.
Kortið virkaði með leiknum í annarri vél svo þetta er eitthvað hjá mér væntanlega.
Er með AMD Duron 1300mH, 256 í minni og er að nota nýjasta Catalyst driverinn fyrir þetta kort. Búin að prófa að setja leikinn inn aftur og það skiptir engu máli.
Rosalega er ég orðin leið á þessum skjákortsvandræðum og rosalega fynndist mér gott ef einhver ætti töfralausn handa mér
Ofurlæðan
Sent: Mán 30. Ágú 2004 21:50
af Daz
Ertu búin að taka út driverana fyrir hitt skjákortið (og taka út sjálft skjákortið í device manager)?
Sent: Mán 30. Ágú 2004 22:13
af SolidFeather
Töfralausn: Kaupa nýja tölvu
Sent: Mán 30. Ágú 2004 22:54
af Snorri^
SolidFeather skrifaði:Töfralausn: Kaupa nýja tölvu
Nei töfralausnin er að formatta virkar á allt eða svona nánast
Sent: Mán 30. Ágú 2004 23:47
af Birkir
Snorri^ skrifaði:SolidFeather skrifaði:Töfralausn: Kaupa nýja tölvu
Nei töfralausnin er að formatta virkar á allt eða svona nánast
Skil ekki fólk sem segir að format sé góð lausn... Format er ekki töfralausn, ekki ætlar maður að fara að formatta í hvert sinn sem eitthvað er að vegna þess að það er auðveldara en að fara á google og leita að svipuðum vandamálum, vírusfixum eða einhverju slíku. Format er ekki töfralausn!
Sent: Þri 31. Ágú 2004 00:20
af gutti
ég mæla líka að nota Driver Cleaner 3 virkar fínt að Uninstall dirver
Sent: Þri 31. Ágú 2004 00:28
af gumol
SolidFeather skrifaði:Töfralausn: Kaupa nýja tölvu
Er þetta svarið sem þú villt fá ef þú þarft einhvertíman að fá hjálp?
Sent: Þri 31. Ágú 2004 02:53
af Dári
ertu nokkuð að keyra leikinn í of hárri uplausn fyrir skjáinn þinn?
hvernig skjá ertu með?
Sent: Þri 31. Ágú 2004 08:25
af gnarr
einmit það sem ég hugsaði. líklegast er hann bara stiltur í of háa upplausn síðan hitt kortið var í.
geturu keyrt einhverja leiki?
ekki formata tölvuna (það er bara leið fyrir þá sem kunna ekki á tölvur, ef maður kann á tölvur er hægt að laga allt).
Sent: Þri 31. Ágú 2004 10:25
af Vilezhout
gnarr skrifaði:einmit það sem ég hugsaði. líklegast er hann bara stiltur í of háa upplausn síðan hitt kortið var í.
geturu keyrt einhverja leiki?
ekki formata tölvuna (það er bara leið fyrir þá sem kunna ekki á tölvur, ef maður kann á tölvur er hægt að laga allt).
ég myndi veðja á það, margir sem lenda í þessu með þegar þeir eru að keyra t.d. reforce og álíka forrit og fara inní leiki því þetta vandamál er bundið við þennan eina leik .
Sent: Þri 31. Ágú 2004 12:55
af SolidFeather
Er þetta svarið sem þú villt fá ef þú þarft einhvertíman að fá hjálp?
Ef ég ætti hennar tölvu, þá já.
Sent: Þri 31. Ágú 2004 22:59
af Ofurlæðan
Takk fyrir allir. Endaði með því að stilla settings á skjánum í 800*600*16 og þá komst ég inn í leikinn.
Ofurlæðan
PS. af hverju ætti ég að kaupa nýja tölvu? Þessi virkar mjög vel á allt og ég er ekki að keyra neinar þungar vinnslur nema leiki og á meðan það virkar þá kvarta ég ekki.