Síða 1 af 1

LGA775

Sent: Fös 22. Feb 2013 18:06
af hamop
Sælir gúrúar.
Er að velta fyrir mér að hressa aðeins uppá heimatölvu, sem er ekki notuð í neinum leikjum, heldur aðallega í vefráp og póst.
Held að móðurborðið sé ca. 2006-2007, og er örgjörvinn Celeron D336 2,8Ghz í LGA775 sökkli, bus speed 533 Mhz.
Samkv. upplýsingum um móðurborðið þá ræður það við allt að: Intel Core 2 Duo með 800 eða 1066 Mhz bus speed.

Er eitthvað vit í að vera að reyna að ná sér í nýjan(notaðan) örgjörva í þetta?
Hvað má ég búast við að þurfa að punga út?

kv.

Re: LGA775

Sent: Fös 22. Feb 2013 18:10
af mikkidan97
Samkvæmt því sem ég hef heyrt þá er allt betra en Celeron

Re: LGA775

Sent: Fös 22. Feb 2013 18:13
af littli-Jake
væri fínt að fá að vita hvaða móðurborð þetta er.
775 soketið er fínt fyrir vefráps vélar þó að það sé orðið úrelt í alla leiki og slíkt. En tildæmis væri E8400 flottur örri í browser vérl. 3 ghz dualcore með kanski 4-6 gig af ram og SSD væri mjög smoth samsetning.

Re: LGA775

Sent: Fös 22. Feb 2013 18:20
af hamop
Borðið heitir: DQ965GF og ég er þegar með 4Gig í minni.

Re: LGA775

Sent: Fös 22. Feb 2013 18:25
af Garri
littli-Jake skrifaði:væri fínt að fá að vita hvaða móðurborð þetta er.
775 soketið er fínt fyrir vefráps vélar þó að það sé orðið úrelt í alla leiki og slíkt. En tildæmis væri E8400 flottur örri í browser vérl. 3 ghz dualcore með kanski 4-6 gig af ram og SSD væri mjög smoth samsetning.

Var einmitt með slíka vél og sú vél með GTX 560 virkaði vel nánast fyrir alla leiki sem við feðganir spiluðum, kannski ekki í mestri upplausn.. samt að ég held eins mikilli og skjáir buðu upp á, gamlir 19" skjáir.

Re: LGA775

Sent: Lau 23. Feb 2013 11:17
af littli-Jake
Mér sínist reyndar að þú verðir eginlega að kaupa þér eitthvað notað ef þig langar að uppfæra þetta. Framboðið á 775 socet örgjörvum er ekki mikið eins og gefur að skilja og verðið er helvíti hátt.

Re: LGA775

Sent: Lau 23. Feb 2013 14:25
af Kristján
herna er verið að selja 775 örgjörva
viewtopic.php?f=11&t=53176

viewtopic.php?f=11&t=53558

Re: LGA775

Sent: Sun 24. Feb 2013 10:03
af hamop
Takk fyrir ábendinguna, en E8200 er með 1333Mhz bus, borðið er fyrir hámark 1066Mhz. En eins og "littli-Jake" skrifar þá yrði ég að fara í eitthvað notað, lítið framboð og hátt verð.
Kannski bara lifa við núverandi ástand og skipta svo öllu út við tækifæri.
Takk fyrir innleggin.
kv.

Re: LGA775

Sent: Sun 24. Feb 2013 12:48
af littli-Jake
hamop skrifaði:Takk fyrir ábendinguna, en E8200 er með 1333Mhz bus, borðið er fyrir hámark 1066Mhz. En eins og "littli-Jake" skrifar þá yrði ég að fara í eitthvað notað, lítið framboð og hátt verð.
Kannski bara lifa við núverandi ástand og skipta svo öllu út við tækifæri.
Takk fyrir innleggin.
kv.


Samt. Sýnist að þessu setup séu að fara á innan við 10K. Klárlega þess virði miðað við afkastamuninn sem þú fengir.