Síða 1 af 1

Leikjamúsa kaup hjálp

Sent: Mið 13. Feb 2013 23:13
af kobbi88
Var að spá í að kaupa mér þessa hérna vegna þess hún er bæði með snúru fyrir leikji og svo líka þráðlaus http://www.logitech.com/en-us/product/w ... 0?crid=825

hvernig lýst fólki á þessa eða hefur fólk eh álit á henni eða reynslu eða mælir með annari endilega komið með hugmyndir

setti sömu spurningu inná aðra síðu og þar var einn sem mældi með http://www.razerzone.com/gaming-mice/razer-mamba og svo ég er alveg hokked á henni en svo fór ég að lesa ummæli á netinu og ég veit réttara sagt ekki lengur eitthver sem getur hjálpað mér að ýta mér í réttu áttina

svona til hliðsjónar leikir sem ég spila meðal annars er SC2 og CoD4

og músin sem ég er með núna er Gigabyte GN-M6880 mús sem er alveg búinn að gefa sig hægri takkinn smellist ekki nema ýta fast og vinsti margsmellir :)

svo var ég abra rekast á þessa hérna bara rétt í þessu :) svona áhvað googlea leikja mús frá gigabite víst að gamla er þannig :)
http://www.gigabyte.com/products/produc ... id=3777#ov

Re: Leikjamúsa kaup hjálp

Sent: Mið 13. Feb 2013 23:36
af Hvati
Ég á Logitech G700 músina og mér finnst hún vera besta mús sem ég hef nokkurntíman notað. Þegar hún er notuð þráðlaus þá lendi ég aldrei í neinu laggi eða veseni en ég elska hvað það er hægt að gera með öllum þessum aukatökkum.
Ég nota þumaltakkana mikið í browser, neðri röð back og forward og eftri röð next og previous tab en efri aukatakkana nota ég til að minimize-a, loka tab og restore-a lokuðum tab. Auðvitað létt að skipta á milli prófíla svo maður stillt þetta á alla vegu og fyrir mismunandi leiki og svoleiðis.
Hef ekki reynslu á Mamba músinni en ég þekki marga sem fíla hana.

Re: Leikjamúsa kaup hjálp

Sent: Mið 13. Feb 2013 23:44
af kobbi88
takk eitthverjir fleiri með ummæli af eitthvað af þessum 3 tegundum?

Re: Leikjamúsa kaup hjálp

Sent: Mið 13. Feb 2013 23:51
af KC109
Taktu G700

Hún er svo þæginleg í hendi.

Re: Leikjamúsa kaup hjálp

Sent: Fim 14. Feb 2013 00:03
af steinthor95
Ég á G700 og mæli með henni, hef alveg prufað þægilegri mús en mjög góð samt sem áður :D
Hinsvegar hef ég séð að mamba og fleiri razer mýs séu með vandamál með laserinn, sérð það í þessum myndböndum:
http://www.youtube.com/watch?v=YR3t-7zvoIo og (razer imperator) http://www.youtube.com/watch?v=Ss9ObUK6SI0
Fólk tekur mismikið eftir þessu og sumar mýsnar virðast ekki hafa þennan "galla". En ég keypti mér eitt sinn razer imperator og hún var með þessum sensor og þar af leiðandi með sama vandamáli. Ég höndlaði það í einn dag en skilaði henni síðan :D
Nýrri týpurnar eru eitthvað skárri, en þetta er samt enn til staðar held ég

Re: Leikjamúsa kaup hjálp

Sent: Fim 14. Feb 2013 00:12
af AciD_RaiN
Keypti mér Razer Mamba fyrir um ári síðan og kötturinn minn henti henni í gólfið einu sinni og hún var ónýt. Ég opnaði hana og skoðaði og plastið í henni er frekar stökkt og lélegt. Keypti mér svo G700 AND I LIVED IT!!! Hún fékk að lenda í gólfinu svona 100 sinnum áður en hún skemmdist og þegar ég skoðaði hana að innan þá var þetta allt úr eðal efni þannig ég keypti mér aðra um leið og ég gat...

Gæti ekki lifað án G700 þrátt fyrir að ég spili aldrei leiki :happy

Re: Leikjamúsa kaup hjálp

Sent: Fim 14. Feb 2013 01:24
af kobbi88
Mér sýnist g700 vera taka forskotið eins og er eitthverjir fleiri með reynslusögur?

Re: Leikjamúsa kaup hjálp

Sent: Fim 14. Feb 2013 08:49
af motard2
Ég er með razer mamba og ég er að gefast upp á henni. hún á það til að annar ásin á henni á til að frjósa (hægri/vistri ásin eða upp/niður ásin) mjög pirrandi þegar mikið liggur við. henni er illa við að henni sé lift (virkar þó svo að buið sé að lifta henni )

ég er að spá í að fá mér þessa zowie EC1 eða EC2 eVo black munurin er stærðin. margir pro spilara nota þessa.
zowie er með minnstu lift fjarðlægð 1,5mm. gallin er að maður verður að panta hana sjálfur.
http://www.zowiegear.com/products?page= ... egory_id=1

Re: Leikjamúsa kaup hjálp

Sent: Fim 14. Feb 2013 09:32
af Jon1
g700 er besta mús sem ég hef átt þarft ekki að hafa áhyggur af laggi meðm 1000 polling og svakalega ergonomic !

Re: Leikjamúsa kaup hjálp

Sent: Fim 14. Feb 2013 14:02
af Skari
Líst vel á G700, fór sjálfur í G500 og sé ekki eftir því, hef prófað nokkrar mýs og finnst logitech vera með langþægilegustu mýsnar.

Re: Leikjamúsa kaup hjálp

Sent: Fim 14. Feb 2013 14:41
af Swanmark
Ég er með Logitech G600 og mér finnst hún æðisleg :p
Ég nota þrjá takka af þessum 15 aukatökkum eða e-h, en músin sjálf er rosalega þægileg.
Ég á líka g710+ mekanískt lyklaborð frá Logitech, og þráðlausa headsettið G930 líka frá logitech. GO LOGITECH!

Re: Leikjamúsa kaup hjálp

Sent: Fim 14. Feb 2013 15:01
af Olli
tek undir marga að ofan, G700 er besta mús sem ég hef átt
rosalega gott líka að geta breytt henni í corded og hlaðið þegar hún verður tóm (þurfa ekki að kaupa rafhlöður í hana)

Re: Leikjamúsa kaup hjálp

Sent: Fim 14. Feb 2013 15:26
af kubbur
Rat mýsnar hafa alltaf heillað mig www.cyborggaming.com

Re: Leikjamúsa kaup hjálp

Sent: Fim 14. Feb 2013 15:44
af olafurfo
Rat mýsnar eru illa sexy að mínu mati en á g700 og mun seint fara i aðra mús :) allveg ótrúlega þægileg í alla staði !!

Sent from my GT-I9300 using Tapatalk 2

Re: Leikjamúsa kaup hjálp

Sent: Fim 14. Feb 2013 16:15
af mercury
g700 besta mús sem ég hef átt.

Re: Leikjamúsa kaup hjálp

Sent: Fim 14. Feb 2013 16:34
af halli7
G700 er snilld. Annars er ég að nota líka G9x og finnst hún líka snilld, þæginlegt að geta skipt um grip og valið þyngdina.
En ef þú villt hafa möguleika á að hafa músina þráðlausa þá er G700 algjörlega málið.

Re: Leikjamúsa kaup hjálp

Sent: Fim 14. Feb 2013 21:40
af kobbi88
okey nánast allir hérna bentu á g700 þannig þá er það bara fara kaupa sér hana :) en ef eitthver hefur fleiri sögur endilega segjið frá :)

Re: Leikjamúsa kaup hjálp

Sent: Fim 14. Feb 2013 21:59
af marte1nn
Hef aldrei átt logitech mús sem endist meira en eitt til eitt og hálft ár,
er núna með gygatybe músina og elska það að vera með auka batterí.

Re: Leikjamúsa kaup hjálp

Sent: Fim 14. Feb 2013 22:05
af mercury
LOGITECH mx518 mýsnar td endast og endast og endast. g700 er með AA rafhlöðu og það mjög góða en mín er að verða frekar döpur en það er í lagi þar sem þær fást í bónus. eða fengust amk. tékka um helgina ;)
http://www.youtube.com/watch?v=wAJ5tkSkMrg
Linus veit hvað hann er að segja.

Re: Leikjamúsa kaup hjálp

Sent: Fim 14. Feb 2013 22:17
af marte1nn
mercury skrifaði:LOGITECH mx518 mýsnar td endast og endast og endast. g700 er með AA rafhlöðu og það mjög góða en mín er að verða frekar döpur en það er í lagi þar sem þær fást í bónus. eða fengust amk. tékka um helgina ;)
http://www.youtube.com/watch?v=wAJ5tkSkMrg
Linus veit hvað hann er að segja.


Held ég hafi aldrei átt mx518 en ég hef átt g700 og slatta af öðrum mýs frá Logitech og takkarnir á þessu drasli bara endast ekki.

Re: Leikjamúsa kaup hjálp

Sent: Fim 14. Feb 2013 22:34
af Hj0llz
Átti Logitech mx510 í 6 ár (þangað til að usb snúran gaf sig). Er núna að nota Logitech G9X og er eiginlega pirraður út í sjálfan mig að hafa ekki keypt hana fyrr.
Ef ég væri að fara í þráðlausa mús myndi ég hiklaust fara í G700