Síða 1 af 1
Tölvan drepur á sér í leikjum
Sent: Lau 26. Jan 2013 05:53
af HalistaX
Tölvan fór í Tölvuvirkni í síðustu viku þar sem þeir hreynsuðu úr skjákortinu og löguðu viftuna(Það var búinn að vera hávaði í kortinu í ágætan tíma og vélin drap á sér við minnstu áreynslu). Sótti hana svo á fimmtudag(24) og sting henni í samband um leið og ég kem heim. Þá er hávaðinn farinn(kudos) en vélin heldur áfram að drepa á sér/krassa er ég er búinn að vera í leik í svona 1-2 mín. Alveg sama hvaða leikur það er, hef prufað Minecraft, SWTOR og Far Cry 3 og alltaf gerist það sama. Þeir hjá tölvuvirkni settu ekki útá neitt annað en skjákortið(HIS HD6850) og löguðu það sem þeir fundu að. Það stendur á miðanum sem ég fékk frá þeim að báðir hörðudiskarnir og vinnsluminnið virkuðu 100%. Hvað getur verið að? Windows tengt? Eitthvað í tölvuni sjálfri? Er búinn að vírusskanna og fynn ekkert. Ég spyr auðvitað útaf því að ég er staddur útá landi og miðað við hvernig ástandið er í dag þá er ekkert alltaf hægt að gera sér ferð í bæinn.
Það virðist ekki vera neitt vandamál að ég sé að surfa netið eða stream'a þáttum en eftir 90-120 sek in-game þá slekkur hún á sér.
Re: Tölvan drepur á sér í leikjum
Sent: Lau 26. Jan 2013 07:00
af Allinn
Gæti verið að skjákortið ofhitni í leikjum, hefuru checkað hitan á kortinu?
Re: Tölvan drepur á sér í leikjum
Sent: Lau 26. Jan 2013 07:15
af HalistaX
Allinn skrifaði:Gæti verið að skjákortið ofhitni í leikjum, hefuru checkað hitan á kortinu?
Það gæti vel verið, hef prufað að setja putta á skjákortið og finn að það hitnar alveg. Er til eitthvað forrit til að sjá hitann? og hvað er svona max fyrir 6850(eða bara svona yfirhöfuð)?
EDIT: Eftir létt gúgl sé ég að það þarf að vera subbulega heitt til þess að teljast sem of heitt svo ég efast um að það ofhitni(allavegana get ég haft puttan á því án þess að meiða mig)
Re: Tölvan drepur á sér í leikjum
Sent: Lau 26. Jan 2013 07:27
af upg8
Ef skjákortið er ekki heitt þá er það líklegast örgjörvinn eða eitthvað annað sem er að ofhitna.
Ef ekki prófaðu þá uppfæra BIOS og Chipset og alla drivers.
Ef ekki athugaðu með rafmagnið hjá þér, ertu með of mörg tæki tengd við fjöltengi og er tölvan hjá þér jarðtengd.
Re: Tölvan drepur á sér í leikjum
Sent: Lau 26. Jan 2013 07:51
af HalistaX
Sótti efsta BIOS'ið hér:
http://www.asus.com/Motherboard/P8Z77V_ ... ownload_30Las readme og valdi svo .exe dúddann, cmd poppaði upp og bað mig um að ýta á hvaða takka sem er, ýti á space, cmd lokast.. Er það þá komið? á ég að restarta núna?
Re: Tölvan drepur á sér í leikjum
Sent: Lau 26. Jan 2013 08:28
af Hnykill
Náðu í þetta forrit..
http://www.techpowerup.com/downloads/21 ... 0.6.7.htmlStartaðu því upp og farðu í flipann sem stendur "sensors" og ýttu á GPU Temperature töluna.. þá stendur fyrst "min" svo ýtiru aftur þá kemur "max" og hafðu það á því.
Svo hakaru við neðst í forritinu þar sem stendur "continue refreshing this screen while GPU-Z is in the background" og svo ýta á - til að minnka gluggann niður í tasktray.
Skelltu þér svo í leik og líttu svo á forritið eftir til að sjá hvað hitinn fór mest uppí... getur valið "min" "max" og "average" í öllum gluggunum sem þú vilt fylgjast með.
gott stuff þetta forrit
..er nær alltaf með þetta í gangi hjá mér.
Re: Tölvan drepur á sér í leikjum
Sent: Lau 26. Jan 2013 09:04
af HalistaX
Hnykill skrifaði:Náðu í þetta forrit..
http://www.techpowerup.com/downloads/21 ... 0.6.7.htmlStartaðu því upp og farðu í flipann sem stendur "sensors" og ýttu á GPU Temperature töluna.. þá stendur fyrst "min" svo ýtiru aftur þá kemur "max" og hafðu það á því.
Svo hakaru við neðst í forritinu þar sem stendur "continue refreshing this screen while GPU-Z is in the background" og svo ýta á - til að minnka gluggann niður í tasktray.
Skelltu þér svo í leik og líttu svo á forritið eftir til að sjá hvað hitinn fór mest uppí... getur valið "min" "max" og "average" í öllum gluggunum sem þú vilt fylgjast með.
gott stuff þetta forrit
..er nær alltaf með þetta í gangi hjá mér.
Næs takk..
Annars efast ég um að ég hafi náð að uppfæra BIOSið haha. Restartaði vélinni áðan og tengdi hana við vegg, ekkert fjöltengi. Virkar eins og í sögu núna. Tók líka smá rispu í Far Cry 3 á ultra og samkvæmt GPU-Z var max hiti 65C..
Þetta er allavegana reddað í bili. Takk kærlega fyrir hjálpina
(Sparaði mér þarna bæði dýra og vandræðalega kaupstaðar ferð haha)