Síða 1 af 1

Hvaða lyklaborð? **UPPFÆRT**

Sent: Mán 21. Jan 2013 10:09
af Svansson
Ég er að fara uppfæra lyklaborðið mitt.
kröfur eru þær að það þarf að vera nordic layout, eða semsagt með háum enter takka í stað mjóans og langan, Baklýstir takkar og ábrendir íslenskir stafir.
Mér er alveg sama hvort það se makenískt eða ekki. Er að fara nota það í leiki aðalega og vill bara að það sé flott og þæginlegt og gott að skrifa á skoða líka notuð lyklaborð ef einhveri leynir á einhverju góður. Open for sugdestions!
Budgetið er max 26þúsund!!!


Edit: Er búin að þrengja valið á milli Razer Blackwidow ULTIMATE og Corsair K90. Kosta bæði um 25þúsund. Núna vill ég bara fá reynslusögur og rök fyrir skoðunum! Þarf virkilega á þessu að halda :P

Re: Hvaða lyklaborð?

Sent: Mán 21. Jan 2013 14:35
af DerrickM

Re: Hvaða lyklaborð?

Sent: Mán 21. Jan 2013 14:45
af steinthor95
Ég á Blackwidow og get eindregið mælt með því :D
http://www.kisildalur.is/?p=2&id=2090
Það stendur reyndar að þetta sé US layout en það er örugglega hægt að fá með nordic, allavega er ég með þannig :D
(myndi samt athuga myndband með þessu lyklaborði þar sem takkarnir eru háværir! en algjör draumur að skrifa á það)

eða þá þetta:
http://tl.is/product/corsair-vengeance- ... dic-mechan
Stendur hjá þeim að þetta sé Nordic en myndin sýnir þó annað :-k

Hérna sérðu hver er munurinn á mechanical tökkum og hvaða takkar gætu hentað þér best ;)
http://www.overclock.net/t/491752/mecha ... oard-guide

Re: Hvaða lyklaborð?

Sent: Mán 21. Jan 2013 15:01
af Xovius
Hvernig leiki ertu að spila? Heldurðu að þú gætir haft gagn af forritanlegum macro tökkum og slíku?

Re: Hvaða lyklaborð?

Sent: Mán 21. Jan 2013 15:05
af Garri
Þessi stafsetningarvilla stakk mig svakalega í augun.. ekki vanur að setja út á stafsetningu svo sem.

"Þú fynnur bara ekki betra borð í leikina, svo einfalt er það. Virka líka fyrir macca."

Re: Hvaða lyklaborð?

Sent: Mán 21. Jan 2013 15:18
af Plushy
http://tl.is/product/corsair-vengeance- ... dic-mechan

Er með svona lyklaborð, það er alveg snilld :)

Re: Hvaða lyklaborð?

Sent: Mán 21. Jan 2013 15:28
af darkppl
corsair er mitt næsta sem ég fæ mér...

Re: Hvaða lyklaborð?

Sent: Þri 22. Jan 2013 09:18
af Svansson
DerrickM skrifaði:Mæli með þessu http://www.tolvuvirkni.is/ip.php?inc=vi ... Y_GB_Aivia

Ég á svona nú þegar og fýla það ekki..
Og ég er að spila eingöngu FPS leiki, ég er með xbox stýripinna fyrir bíla leikina. Ætla að skoða þetta black widow þar sem ég var búin að vera skoða það en fann það aldrei í ultimate týpuni en það hefur greinilega reddast, og hvernig er þetta corsair lyklaborð? hef ekkert lesið mig til um það