Síða 1 af 1

Hjálp við tölvukaup

Sent: Þri 01. Jan 2013 23:53
af degoz
Ég er að pæla í að kaupa mér nýja tölvu, en þar sem að ég er ekkert rosarlega inní tölvumálum þá vantar mér smá hjálp.
Vélin verður notuð í leikjaspilun og myndagláp.
Ég hef aðeins verið að skoða þessa http://www.start.is/product_info.php?cPath=88_272&products_id=3549 vél.
Budgetið er svona 160 - 170 þúsund. Er þetta fín vél fyrir þann pening eða getiði ráðlagt mér með eitthvað annað betra á þessu verðbili.

Re: Hjálp við tölvukaup

Sent: Mið 02. Jan 2013 00:49
af eriksnaer
Svona er ég að setja mína upp, ekki samai aflgjafi og í þessari sem þú setur link af, 1x8gb í vinnsluminni hjá mér en 2x4 hjá start, annar kassi en því geturu auðvitað breytt, annars er nánast allt mjög svipað hjá mér og svo hjá start nema það að ég tek allt mitt hjá Tölvutek... :P
Þú gætir alveg farið í aðeins ódýrara skjákort og svo ef þú ert með ráder rétt hjá tölvunni þarftu ekki þetta þráðlausa netkort..

Kassi: http://tolvutek.is/vara/inter-tech-star ... fa-svartur 10.900,-
Móðurborð: http://www.tolvutek.is/vara/gigabyte-s1 ... -modurbord 26.900,-
Örgjörvi: http://tolvutek.is/vara/intel-core-i5-3 ... rvi-retail 39.900,-
Örgjörvavifta: http://www.tolvutek.is/vara/thermaltake ... -amd-intel 4.990,-
Vinnsluminni: http://tolvutek.is/vara/mushkin-8gb-ddr ... uminni-cl9 8.990,-
Harður diskur: http://tolvutek.is/vara/1tb-sata3-seaga ... dm003-64mb 14.900,-
Þráðlaust netkort: http://tolvutek.is/vara/trendnet-tew-62 ... ci-netkort 5.990,-
Skjákort: http://www.tolvutek.is/vara/point-of-vi ... 2x-kaeling 49.900,-
Samtals: 162.470,-

Re: Hjálp við tölvukaup

Sent: Mið 02. Jan 2013 03:07
af Magneto
mæli samt með því að þú verðir með tölvuna tengda með netsnúru frekar en þráðlaust ef þú ert að fara að spila leiki...

Re: Hjálp við tölvukaup

Sent: Mið 02. Jan 2013 03:32
af degoz
Hvernig er svo start.is? Er þetta alveg góð búð og þjónusta?

Re: Hjálp við tölvukaup

Sent: Mið 02. Jan 2013 07:06
af Minuz1
degoz skrifaði:Hvernig er svo start.is? Er þetta alveg góð búð og þjónusta?


já fín og tölvan sem þeir eru með þarna er bara frekar góð.

Myndi vilja sjá fallegri kassa og kannski 2x8GB minni frekar en 2x 4GB.

Ef þú átt gamlan HDD, þá máttu endilega uppfæra upp í SSD fyrir stýrikerfið.