Síða 1 af 1

Uppfærsla frá GTS 250

Sent: Þri 20. Nóv 2012 23:27
af Orri
Kvöldið.

Bróðir minn var að fá sér Black Ops 2 á PC en svo virðist sem tölvan sé ekki alveg að ráða við hann.
Fyrst var hann algjörlega óspilandi, hökti alveg sama hvaða stillingar maður valdi í leiknum.
Þá mundi ég að ég var ekki búinn að ná í driver fyrir skjákortið (glænýtt Windows 8 á vélinni), og las að komnir væru beta driverar sem ættu að minnka hökt í Black Ops 2.
Eftir það var leikurinn spilanlegur og þokkalega svo. Hinsvegar höktir hann enn þegar mikið er í gangi á opnum svæðum og í CoD er það eiginlega ekki hægt..

Hérna eru helstu specs á vélinni:
Intel Core2Duo E8400 3ghz
4GB DDR2 800mhz
GeForce GTS 250 1gb
500GB 7200rpm harður diskur
Windows 8 64bit

Er ekki alveg örugglega lausnin að uppfæra skjákortið?
Ef svo er þá hvaða skjákort? Alveg sama hvort það sé notað eða nýtt.
Budgetið er 25 þúsund krónur, þó tilbúnir að fara upp í 30 ef það er nauðsynlegt.

Re: Uppfærsla frá GTS 250

Sent: Þri 20. Nóv 2012 23:32
af mundivalur
Hvaða aflgjafi er í vélinni ?

Re: Uppfærsla frá GTS 250

Sent: Mið 21. Nóv 2012 01:16
af Orri
mundivalur skrifaði:Hvaða aflgjafi er í vélinni ?

Úff, það man ég ekki.. Minnir að þetta sé einhver Jersey aflgjafi.. 500 eða 550W.

Re: Uppfærsla frá GTS 250

Sent: Mið 21. Nóv 2012 01:17
af Hnykill
mundivalur skrifaði:Hvaða aflgjafi er í vélinni ?


Skohh.. nei.. 5.000W Aflgjafi er ekki að keyra Nvidia GTS 250 hraðar en 500W aflgjafi.. segir sig sjálft.

Kemur Aflgjafanum ekkert við. en skjákortið er algerlega flöskuhálsinn hjá þér miðað við vélina í undirskrift hjá þér.


AMD HD6950 2GB.. Heyrðu nei.. það passar ekki að AMD 6950 sé flöskuháls í þessari vél.. veit þá ekki alveg hvað er að kallinn :/

Re: Uppfærsla frá GTS 250

Sent: Mið 21. Nóv 2012 01:24
af Kjáni
Hnykill skrifaði:
mundivalur skrifaði:Hvaða aflgjafi er í vélinni ?


Skohh.. nei.. 5.000W Aflgjafi er ekki að keyra Nvidia GTS 250 hraðar en 500W aflgjafi.. segir sig sjálft.

Kemur Aflgjafanum ekkert við. en skjákortið er algerlega flöskuhálsinn hjá þér miðað við vélina í undirskrift hjá þér.
Þú ert að misskilja þetta hann, þráðurinn heitir uppfærsla frá GTS 250 þannig hann var öruglega að spá hvernig aflgjafa hann sé með til að sjá hvaða kort sé hægt að sitja án þess að uppfæra aflgjafa. :happy

Re: Uppfærsla frá GTS 250

Sent: Mið 21. Nóv 2012 01:36
af Orri
Hnykill skrifaði:
mundivalur skrifaði:Hvaða aflgjafi er í vélinni ?


Skohh.. nei.. 5.000W Aflgjafi er ekki að keyra Nvidia GTS 250 hraðar en 500W aflgjafi.. segir sig sjálft.

Kemur Aflgjafanum ekkert við. en skjákortið er algerlega flöskuhálsinn hjá þér miðað við vélina í undirskrift hjá þér.

AMD HD6950 2GB.. Heyrðu nei.. það passar ekki að AMD 6950 sé flöskuháls í þessari vél.. veit þá ekki alveg hvað er að kallinn :/

Haha, þú ert að misskilja svolítið.
Þetta er ekki uppfærsla fyrir mig, heldur bróðir minn.. specs eru í OP.. :)

En já, væri helst til í að sleppa því að uppfæra aflgjafann líka.. Veit að wött segja ekki alla söguna en ætti 550W aflgjafi ekki að ráða við aðeins öflugra skjákort?

Re: Uppfærsla frá GTS 250

Sent: Mið 21. Nóv 2012 01:58
af Hnykill
Ahhh K. fyrirgefðu kallinn , sá bara tölvuna í undirskriftinni hjá þér..

Annars.. nýjan 750W-850W Aflgjafa og nvidia 660 TI.. og vandamál þín eru úr sögunni :klessa

Samt.. ef þú vilt bara nýtt skjákort en ekki stærri aflgjafa þá er GeForce 650 GTX TI nokkuð gott kort fyrir þig.. Ekki alveg viss hvar þú færð það á klakanum, en ekki kaupa non TI útgáfuna samt, hún er ekki að gera góða hluti ;)

Re: Uppfærsla frá GTS 250

Sent: Mið 21. Nóv 2012 06:08
af Garri
Erum að spila þennan leik á E8200 2.66Ghz Core2Duo með 120GB SSD og ekkert hökt.

Er með GTX560 NVidia kort í þeirri vél og W7 32bita. Skil ekki alveg hvers vegna þið eruð að keyra 64bita í aðeins 4GB vél..

Hugsa að 560 kortið taki álíka mikið rafmagn og 250 kortið.

Re: Uppfærsla frá GTS 250

Sent: Mið 21. Nóv 2012 10:47
af mundivalur
Hér 25þ fyrir 570gtx :happy viewtopic.php?f=11&t=51571

Re: Uppfærsla frá GTS 250

Sent: Mið 21. Nóv 2012 12:17
af FreyrGauti
Hnykill skrifaði:Ahhh K. fyrirgefðu kallinn , sá bara tölvuna í undirskriftinni hjá þér..

Annars.. nýjan 750W-850W Aflgjafa og nvidia 660 TI.. og vandamál þín eru úr sögunni :klessa

Samt.. ef þú vilt bara nýtt skjákort en ekki stærri aflgjafa þá er GeForce 650 GTX TI nokkuð gott kort fyrir þig.. Ekki alveg viss hvar þú færð það á klakanum, en ekki kaupa non TI útgáfuna samt, hún er ekki að gera góða hluti ;)


Jæja hvernig væri að þú færir að slaka aðeins á þvælunni, byrjar á að hrauna yfir mann sem spyr hvernig aflgjafa hann er með og segir honum síðan að kaupa 750W aflgjafa fyrir kort sem getur keyrt á 450W aflgjafa.

Re: Uppfærsla frá GTS 250

Sent: Mið 21. Nóv 2012 12:59
af Xovius
hérna er verið að selja 560ti á 20þús viewtopic.php?f=11&t=51663

Re: Uppfærsla frá GTS 250

Sent: Mið 21. Nóv 2012 14:10
af MagneticRock
Athugaðu hvað PSUinn þinn er að outputa per 12v rail. myndi skjóta á að þú þyrftir í kringum 20-24A til að keyra GTX 560 ti.
s.s. 12v*22A=264W er það sem þetta skjákort "þarf" að hafa við max load. myndi samt frekar segja kringum ~160-180W sé líklegri notkun.

Þannig svo lengi sem þú ert með nóg amp úr 12v raili eða 2x 12v rail úr PSUinum. þá ertu góður með þann aflgjafa sem þú ert að nota.

Re: Uppfærsla frá GTS 250

Sent: Mið 21. Nóv 2012 14:38
af mundivalur
Gott fyrsta innlegg :megasmile