Síða 1 af 1

Clash of the titans?

Sent: Lau 14. Ágú 2004 12:56
af alexand3r
Jáá sælir,
Vitiði það nokkuð, hvað er málið með x800xt og gf6800ultra? Hvenær fara þessir fjandar að mæta á klakann :)
Ég er að fara splæsa í nýja tölvu og svona svo ég geti nú spilað doom3 og upcoming hl2 og er svona að pæla að kaupa x800xt.

Sent: Lau 14. Ágú 2004 12:58
af axyne
ef þú ert að spá í Doom3 þá myndi ég fá mér geforce6800ultra.

Sent: Lau 14. Ágú 2004 12:59
af alexand3r
axyne skrifaði:ef þú ert að spá í Doom3 þá myndi ég fá mér geforce6800ultra.


Er samt alveg meira spenntur fyrir hl2, sem mun nýta sér x800xt betur :)

Sent: Lau 14. Ágú 2004 13:09
af Arnar
Hmm..

Mér finnst þau vera mjög lík... þeas. varla taka eftir þ´vi í leikjum

Sent: Lau 14. Ágú 2004 13:53
af SolidFeather
Taka þá 6800Ultra útaf SP3? (eða hvað það nú heitir)

Sent: Lau 14. Ágú 2004 14:03
af Pandemic
doom 3 er byggður á openGl þannig að ég myndi halda að Geforce 6800 hafi vinninginn

Sent: Lau 14. Ágú 2004 15:02
af wICE_man
OpenGL -> GeForce
DirectX -> Radeon

Sent: Lau 14. Ágú 2004 15:27
af gnarr
hvaðan hefuru það að ati séu að ráða betur við hl2 en geforce? þessi leikur er ekki einusinni kominn út, svo að ég held að það sé alveg ómögulegt að segja.

Sent: Lau 14. Ágú 2004 16:05
af neon_no1
plús að í half-life 2 betu er 6800 ekki að standa sig verr en x800, betra ef eitthvað er. xbitlabs hefur sýnt þetta margoft.
það er ekkert svo ólíklegt að það verði niðurstaðan þegar leikurinn kemur út, að 6800 verði jafngott eða betra en x800 - but let's just wait and see...