Síða 1 af 1

SSD í 5 ára Core 2 Duo tölvu

Sent: Þri 16. Okt 2012 12:07
af tar
Mig langaði að reyna að hressa upp á 5 ára gamla tölvu með því að fá mér SSD og setja stýrikerfið (W7 eða Ubuntu 12.04) á hann í staðinn fyrir venjulegan 320GB WD disk.

Vélin er svona núna:
Móðurborð: MSI P6N SLI V2 (sjá http://www.msi.com/product/mb/P6N-SLI-V2.html)
Örgjöfi: Intel Core 2 Duo E4400 2.00GHz
Minni: Supertalent 2x2GB DDR2 800 PC6400 5-5-5-15
HDD: WD3200AAKS 320GB 7200 RPM 16MB Cache SATA 3.0Gb/s 3.5"

Ég held að 120GB sé hæfileg stærð á SSD fyrir mig. Skv. vaktinni er hægt að fá Corsair Force 3, Mushkin Chronos og OCZ Agility3 á um 16 þús, en mér líst best á Samsung 830 á um 18 þús.

Ég var að spá í hvort svona gamall búnaður næði nokkuð að nýta diskinn almennilega og þá hvort SSD hressingin yrði minni fyrir vikið. Þegar ég reyndi að gúgla varð ég fljótt ringlaður m.a. vegna hugsanlgrar vöntunar á einhverju AHCI og lausnum á því.

Það væri frábært ef einhver fróður maður hér nennti útskýra AHCI málið og kommenta á hvernig Samsung 830 128GB kæmi út í áðurnefndu setupi.

Re: SSD í 5 ára Core 2 Duo tölvu

Sent: Mán 22. Okt 2012 22:42
af Mr. President
Ég myndi láta vaða á Samsung diskinn. Þú missir einhvern performans á pappír án AHCI en ég efast um að þú fyndir mikið fyrir því. TRIM ætti að virka á hvoru sem er svo lengi sem stýrikerfið styður það.

Það sem AHCI gerir merkilegast er að það leyfir tölvunni að drepa á harðdiskum (til að spara rafmagn og minnka hávaða) án þess að vélin krassi. SSD eru bæði hljóðlausir og nota minna rafmagn en harðdiskar sem gerir AHCI hálf óþarft í þeim efnum. Hraðamunurinn kemur svo frá nokkru sem heitir Native Command Queueing en hann ætti ekki að vera finnanlegur nema þú sért að keyra gagnagrunna. Flest það sem gerir SSD hraðari en harðdiska hefur ekkert með AHCI að gera.

Re: SSD í 5 ára Core 2 Duo tölvu

Sent: Þri 23. Okt 2012 01:56
af SolidFeather
Það verður gríðarlegur munur.

Re: SSD í 5 ára Core 2 Duo tölvu

Sent: Þri 23. Okt 2012 02:21
af gRIMwORLD
Ég var að setja SSD í HP Compac dc7600 vél í dag. Get ekki varla líst með orðum muninum. Mætti segja að þetta væri mjög skilvirk uppfærsla sem er vel þess virði.

Re: SSD í 5 ára Core 2 Duo tölvu

Sent: Þri 23. Okt 2012 22:40
af tar
Takk Mr. President fyrir tæknilegt svar og þið hinir fyrir sannfæringarkraftinn.

Ég var einmitt m.a. að leita að svona reynslusögum. Hefur t.d. einhver uppfært í SSD og slegið á mun á restart tíma fyrir og eftir?

Re: SSD í 5 ára Core 2 Duo tölvu

Sent: Þri 23. Okt 2012 22:42
af mercury
setti nýlega mushkin 120gb ssd í gamlan intel e6600 jálk hjá vini mínum og það var svakalegur munur.

Re: SSD í 5 ára Core 2 Duo tölvu

Sent: Þri 23. Okt 2012 23:16
af flottur
Áður en ég fékk mér minn fyrsta SSD í Sony Vaio tölvuna mína þá var þetta svona :

ég vaknaði, ýtti á power takkann á tölvunni,kyssti konuna góðan dag og kveikti á kaffivélinni og fór á klósettið og þá var tölvan tilbúin til notkunar.

Eftir að ég fékk mér SSD :ég vakna, ýti á power takkan á tölvunni kyssi konuna góðan dag og tölvan er tilbúin til notkunar, kveiki á kaffivélinni og fer á klósettið.

Re: SSD í 5 ára Core 2 Duo tölvu

Sent: Mið 24. Okt 2012 02:05
af gardar
Hver slekkur eiginlega á tölvunni á nóttunni :wtf

Re: SSD í 5 ára Core 2 Duo tölvu

Sent: Mið 24. Okt 2012 02:12
af Xovius
gardar skrifaði:Hver slekkur eiginlega á tölvunni á nóttunni :wtf


Hver slekkur eiginlega á tölvunni.?

Re: SSD í 5 ára Core 2 Duo tölvu

Sent: Mið 24. Okt 2012 02:27
af SDM
Xovius skrifaði:
gardar skrifaði:Hver slekkur eiginlega á tölvunni á nóttunni :wtf


Hver slekkur eiginlega á tölvunni.?

Hver slekkur?

Re: SSD í 5 ára Core 2 Duo tölvu

Sent: Mið 24. Okt 2012 02:30
af kubbur
Hver?

Re: SSD í 5 ára Core 2 Duo tölvu

Sent: Mið 24. Okt 2012 09:31
af flottur
Xovius skrifaði:
gardar skrifaði:Hver slekkur eiginlega á tölvunni á nóttunni :wtf


Hver slekkur eiginlega á tölvunni.?
SDM skrifaði:
Xovius skrifaði:
gardar skrifaði:Hver slekkur eiginlega á tölvunni á nóttunni :wtf


Hver slekkur eiginlega á tölvunni.?

Hver slekkur?
kubbur skrifaði:Hver?
gardar skrifaði:Hver slekkur eiginlega á tölvunni á nóttunni :wtf



Ég :megasmile ef að um fartölvu er um að ræða.......ástæða : mér finnst alltaf jafn gaman að kveikja á henni á morgnana og vita til þess að ég er í framtíðinni með SSD.

Re: SSD í 5 ára Core 2 Duo tölvu

Sent: Mið 24. Okt 2012 09:41
af GuðjónR
gardar skrifaði:Hver slekkur eiginlega á tölvunni á nóttunni :wtf

Á maður ekki að gera það?
Reyndar slekk ég ekki oft, tölvan fer sjálfkrafa í sleep á 15mín idle fresti.

Re: SSD í 5 ára Core 2 Duo tölvu

Sent: Mið 24. Okt 2012 10:29
af flottur
GuðjónR skrifaði:
gardar skrifaði:Hver slekkur eiginlega á tölvunni á nóttunni :wtf

Á maður ekki að gera það?
Reyndar slekk ég ekki oft, tölvan fer sjálfkrafa í sleep á 15mín idle fresti.




Jaaa sumir eru með og aðrir á móti, mér hefur alltaf fundist svona umræða vera eins og þær sem eru um hvort sé betra mac eða windows.

Mér finnst persónulegra betra að slökkva á fartölvunni en hef stofutölvuna í gangi 24/7.

Re: SSD í 5 ára Core 2 Duo tölvu

Sent: Mið 24. Okt 2012 10:59
af Garri
Ég er búinn að eiga 115GB SSD disk í skúffunni í næstum heilt ár, var back-up á aðalvélina. Ákvað loks að skella honum í Core2Duo T7700 2.4Ghz 17" MSI (1719 GX700) fartölvu sem ég á. Sú vél er líklega frá 2007 og var með 250GB WD disk (líklegast 5400 rpm) og XP Hún var mjög hæg. Ég var búinn að fiffa betri kælingu í þessa vél fyrir um ári. Boraði út botninn til að bæta loftflæðið, bætti við kæliememntið ásamt því að skipta um kælikrem, virkar miklu betur.

Klónaði diskinn með Macrium eftir að hafa hreinsað til á honum (250GB > 115GB). Eftir þessa aðgerð er fartölvan mörgum flokkum ofar en áður. Ekki bara fljótari að ræsa sig, hvort sem köld eða úr standby, heldur munar miklu að keyra upp forrit í henni. Bara Firefox er mun fljótari en mestu munar fyrir mig að geta buildað og compilað forrit í henni, drekkur það eins og vatn í dag.

Mæli eindregið með þessu fyrir 5 ára fartölvur. Þessi er að keyra á transfer mod SATA-300 skv. SIW sem skv. minni bestu er SATA-2, en er viss um að jafnvel með SATA-1 eða SATA-150, þá muni um þessa breytingu all verulega þar sem transfer á 5400rpm diskum er í kringum 50-60kb og viss um að það hafi verið nokkuð lægra á þessu kombó hjá mér, slíkur er munurinn.

Re: SSD í 5 ára Core 2 Duo tölvu

Sent: Mán 05. Nóv 2012 12:28
af k0fuz
Ég setti SSD disk í 3 ára gamla fartölvuvél í sumar, finn góðan mun á henni og meira segja batterý endingin skánaði aðeins. :happy

Re: SSD í 5 ára Core 2 Duo tölvu

Sent: Mán 05. Nóv 2012 14:30
af Hnykill
Ég er svo þolinmóður og rólegur að ég bíð eftir að SSD taki algerlega yfir HDD markaðinn eins og Flatskjáir skiptu út gömlu túpunni. 2 TB SATA3 dugir mér þangað til.. þegar 1-2 GB SSD er kominn á svona 25.000 kall þá slæ ég kannski til :-"

Re: SSD í 5 ára Core 2 Duo tölvu

Sent: Mán 05. Nóv 2012 15:11
af dori
Hnykill skrifaði:Ég er svo þolinmóður og rólegur að ég bíð eftir að SSD taki algerlega yfir HDD markaðinn eins og Flatskjáir skiptu út gömlu túpunni. 2 TB SATA3 dugir mér þangað til.. þegar 1-2 GB SSD er kominn á svona 25.000 kall þá slæ ég kannski til :-"

Þú ert að láta svíkja þig illa ef þú borgar meira en 25 þúsund fyrir 1-2GB SSD. :roll:

Annars þá er SSD ekki sniðugt til geymslu eins og er því að þeir eru ennþá með frekar háa bilanatíðni. En þeir eru svo rosalega góðir fyrir geymslu á forritum (sérstaklega stýrikerfi og kjarnaforritum) að það er í rauninni heimska að fá sér ekki þannig ef þú notar tölvuna þína og átt efni á því. Breytir alveg óhemju miklu.

Re: SSD í 5 ára Core 2 Duo tölvu

Sent: Mán 05. Nóv 2012 15:23
af tdog
Ég er einmitt með á borðinu hjá mér iMac G4 og ATA í SATA converter, mun setja 240GB SSD í vélina og hún mun svo fljúga!