Síða 1 af 1
Hreinsun á prentara.
Sent: Mið 10. Okt 2012 09:40
af Marmarinn
Er með þennan HP Color LaserJet 2600 prentara sem er farinn að prenta ljóta línu með öllu.
Með mjög gömul tóner hylki sem lítið er eftir í ef það skiptir einhverju.
En með hverju er best eða má hreinsa þetta belti sem liturinn er á (hvað heitir þetta annars?)
Re: Hreinsun á prentara.
Sent: Mið 10. Okt 2012 09:49
af Marmarinn
Update.
Tók út litahylkin, bara svartur var eftir og núna er hann svona eftir að ég sendi prent af stað (sem kom reyndar ekki)
Bara svarur litur kominn þar sem rendurnar voru.
Re: Hreinsun á prentara.
Sent: Mið 10. Okt 2012 11:50
af Bjosep
Veit lítið um prentara ... en þú gætir náttúrulega prufað að endurnýja öll blekhylkin og sjá til hvort vandamálið lagast. Ef það lagast ekki þá er þetta mögulega eitthvað flóknara og þá þarftu væntanlega að fara með hann í viðgerð.
http://h30434.www3.hp.com/t5/Other-Prin ... d-p/199089Ég veit ekki hvort þetta er svipað þínu vandamáli.
Re: Hreinsun á prentara.
Sent: Mið 10. Okt 2012 12:00
af Marmarinn
Já svipað, takk fyrir þetta.
ég hreinsaði allt með þurrum klút.
Sýnist það vera cyan sem blæðir út lit. Og hættir ekki svona í fyrstu tilraun allavga.
Alveg kominn tími á að endurnýja tónerinn, þá er bara spurning hvar er hann ódýrastur! ebay? e-ð annað?
Re: Hreinsun á prentara.
Sent: Mið 10. Okt 2012 12:36
af rapport
Er það ekki transfer kitið sjálft sem er að klikka, frekar en tónerinn?
Annars eru margir farnir að bjóða svona tónera.
Mæli með að kanna hjá Prentvörum og Optima, þeir hafa verið að standa sig best með ódýra tónera að mínu mati.
Re: Hreinsun á prentara.
Sent: Mið 10. Okt 2012 12:46
af AngryMachine
Mér skilst að hjá HP kallist þetta transfer belt, heitir transfer unit hjá sumum framleiðeindum.
Varðandi þrif þá má sjá það hér t.d.:
http://www.youtube.com/watch?v=UjM2_enUdI4Efast hinsvegar um að það muni hjálpa eitt og sér í þínu tilviki. Spurning um að skoða fuserinn, hvort hann sé nokkuð skemmdur?
Getur þú prentað eina síðu og sett upp mynd af því hvernig þetta vandamál lítur út á pappírnum?
Re: Hreinsun á prentara.
Sent: Mið 10. Okt 2012 14:14
af Marmarinn
Svona á pappír, þetta kemur bara ef cyan er í og ég prentarinn initializar með hann í. Kemur ekkert sýnist mér án hans á beltið.
Er búinn að reyna hreynsa cyan hylkið en án nokkura hreinsiefna.