Síða 1 af 2

Nyjum meðlim vantar alit.

Sent: Mán 09. Ágú 2004 20:52
af KristjanHelgi
Loksins loksins ætla ég að versla nýja tölvu, var búinn að lofa sjálfum mér að kaupa hana um svipað leiti og Doom3 kæmi út. Þar sem hann hefur frestast talsvert hafa tölvukaupin frestast einnig.

Here goes.


Kassinn er Chieftec Dragon3 CX Turnkassi svartur, 300W ps verður skipt ut fyrir 400w Fortron.

Innihald kassa:


Örri og Móðurborð óákveðið...

Kingston 2x 512MB DDR400 MHz parað vinnsluminni.
Leadtek A400 GT 256 DDR3 Skjakort

Geymslumiðlar.

W. Digital 74GB Raptor HDD 10.000 RPM 8mb Buffer
W. Digital 160 GB SATA 7.200 RPM 8mb Buffer
MSI DR8-A2 DVD+RW Skrifari

HID:

Logitech MX510 Optical Mus.
Logitech Internet Navigator lyklaborð
19" Dell mainstream FST skjar

Kæling:
Thermaltake Venus 12, örravifta.
A eftir að bæta við einhverjum viftum þegar eg fer að modda kassann en þessi og PS viftan ættu að duga i bili.


Allar abendingar vel þegnar.

Sent: Mán 09. Ágú 2004 21:26
af gumol
Ég myndi bíða aðeins eftir dual layer DVD skrifurum.

Og hvaða skjákort er þetta eginlega? (url)

Annars er þetta fín tölva miðað við amd :)

Sent: Mán 09. Ágú 2004 22:14
af KristjanHelgi
Þetta er eitthvað nýtt dót, kostar morðfjár... fæst bara með sérpöntunum í tölvulistanum til dæmis (PIMP)

Sent: Mán 09. Ágú 2004 22:47
af gumol
ok, þetta er semsagt kort með Geforce 6800 GT GPU. Hef ekki hugmynd um þessi Leadtek kort, hvort þau eru slæm eða top of the line. Kanski einhver sem veit það.

Sent: Mán 09. Ágú 2004 23:32
af kristjanm
Þú ættir hugsanlega að skoða að fá þér betri örgjörva, XP örrarnir eru ekkert spes. Allavega ekki miðað við restina af vélinni.

Sent: Þri 10. Ágú 2004 00:20
af Daz
kristjanm skrifaði:Þú ættir hugsanlega að skoða að fá þér betri örgjörva, XP örrarnir eru ekkert spes. Allavega ekki miðað við restina af vélinni.

AMD XP 64 ekkert spes? Miða við verð er hann mjög fínn, en það er augljóslega hægt að eyða 100 þúsund kr í bara örgjörva.

Sent: Þri 10. Ágú 2004 00:35
af fallen
Hvað er AMD64 XP ?
Seinast þegar ég vissi var það ekki til.

Sent: Þri 10. Ágú 2004 00:38
af axyne
fallen skrifaði:Hvað er AMD64 XP ?
Seinast þegar ég vissi var það ekki til.


er ekki þetta "xp" mælieingin hjá AMD ?
t.d örrinn er 3200 XP en 2.0 Ghz

Sent: Þri 10. Ágú 2004 00:39
af fallen
Já, en það eru AMD Athlon 64 örgjörvar og AMD Athlon XP örgjörvar.
Ekki til AMD örri sem er AMD64 XP.

Sent: Þri 10. Ágú 2004 01:11
af Arnar
Dual Layer skrifarar eru komnir..


Ég verð með einn slíkan seinna í þessari viku

Sent: Þri 10. Ágú 2004 01:24
af Pandemic
Leadtek er mjög þekkt og gott fyritæki bróðir minn verslaði einu sinni Geforce 2 GTS og þvílík ending og hvað það var öflugt annars get ég alveg vottað það að þetta fyrirtæki er ekkert no show

Sent: Þri 10. Ágú 2004 01:30
af Daz
fallen skrifaði:Hvað er AMD64 XP ?
Seinast þegar ég vissi var það ekki til.


My bad. En hvað veit ég svosem, ég er með Duron :oops:

Sent: Þri 10. Ágú 2004 09:51
af KristjanHelgi
Það er alveg rétt hjá ykkur, það er ekkkert til sem heitir AMD 64 3200XP, my bad... Hann heitir víst AMD 64 3200+ <-Plús ekki XP

Sent: Þri 10. Ágú 2004 12:06
af Drulli
Það er þessi + sem er þetta PR-rating(? eða er PR Processor Rating ?) system hjá þeim, ekki XP.

Sent: Þri 10. Ágú 2004 13:25
af xpider
Kingston 2x 512MB DDR400 MHz parað vinnsluminni


Þú hefur ekkert að gera við parað vinnsluminni þar sem 754 socketin styðja það ekki.

Sent: Þri 10. Ágú 2004 16:46
af gnarr
xpider skrifaði:
Kingston 2x 512MB DDR400 MHz parað vinnsluminni


Þú hefur ekkert að gera við parað vinnsluminni þar sem 754 socketin styðja það ekki.


hahahha.. ég sé fyrir mér einhvern að reyna ða troða minniskubbum í örgjörfa socketið.. hahah..


:D auðvtiað styður socket 754 ekki dual channel, þar sem að það er fyrir örgjörfa. hinsvegar styður minnisstýringin í örgjörfunum sem eru núna á markaðnum ekki dual channel. hinsvegar styðja allar minnisstýringar pöruð minni, þótt þau séu ekki að nota þau í dual channel.

Sent: Þri 10. Ágú 2004 19:07
af KristjanHelgi
Ég er að hugleiða annað móðurborð sem kemur eftir helgi, eftir það þá ákveð ég hvaða örgjörva ég fæ mér á það.

Sent: Þri 10. Ágú 2004 21:27
af fallen
gnarr skrifaði:
xpider skrifaði:
Kingston 2x 512MB DDR400 MHz parað vinnsluminni


Þú hefur ekkert að gera við parað vinnsluminni þar sem 754 socketin styðja það ekki.


hahahha.. ég sé fyrir mér einhvern að reyna ða troða minniskubbum í örgjörfa socketið.. hahah..


bwahahahahahahahhahahahahahahaha

Sent: Mið 11. Ágú 2004 11:49
af KristjanHelgi
fallen skrifaði:
gnarr skrifaði:
xpider skrifaði:
Kingston 2x 512MB DDR400 MHz parað vinnsluminni


Þú hefur ekkert að gera við parað vinnsluminni þar sem 754 socketin styðja það ekki.


hahahha.. ég sé fyrir mér einhvern að reyna ða troða minniskubbum í örgjörfa socketið.. hahah..


bwahahahahahahahhahahahahahahaha


Þvílíkur húmor....

Sent: Mið 11. Ágú 2004 12:07
af MezzUp
KristjanHelgi skrifaði:
fallen skrifaði:bwahahahahahahahhahahahahahahaha


Þvílíkur húmor....

I'll say :roll:

Sent: Mið 11. Ágú 2004 12:58
af fallen
:(

Sent: Mið 11. Ágú 2004 13:00
af xpider
xpider skrifaði:
Tilvitnun:
Kingston 2x 512MB DDR400 MHz parað vinnsluminni


Þú hefur ekkert að gera við parað vinnsluminni þar sem 754 socketin styðja það ekki.


hahahha.. ég sé fyrir mér einhvern að reyna ða troða minniskubbum í örgjörfa socketið.. hahah..


auðvtiað styður socket 754 ekki dual channel, þar sem að það er fyrir örgjörfa. hinsvegar styður minnisstýringin í örgjörfunum sem eru núna á markaðnum ekki dual channel. hinsvegar styðja allar minnisstýringar pöruð minni, þótt þau séu ekki að nota þau í dual channel.


Minnistýringin er innbyggð inní 64 bita örrana frá AMD og 64 bita örrarnir sem notast við 754 socket styðja ekki dual channel vinnslu eins og 939 64 bita örrarnir gera!!! Þannig að ég var að benda honum á að það væri óþarfi að kaupa sér rándýrt parað minni, þegar hægt er að kaupa bara tvo staka minniskubba! :shock:
anywho ég skal passa mig að útskýra betur næst en óþarfi af þráðarstjóra að koma með skítkast!

Sent: Mið 11. Ágú 2004 14:13
af gnarr
þetta var nú ekki skítkast.. ég var nú bara að hlæja að því hvernig þetta hljómaði.



ef ég hefði verið að skítakasta þig hefði ég áreiðanlega kallað þig mongolíta fífl og tussu og sagt að þú værir ekkert nema CS-ara fífl.. hinsvegar hef ég ekki lagt það í vana minn að vera með skítkast á fólk, svo að kanski hefði ég orðað það öðruvísi ;)

Sent: Mið 11. Ágú 2004 17:07
af zaiLex
Arnar: eru dual layer skrifarar komnir til landsins, eða pantaru á netinu ?

Sent: Mán 16. Ágú 2004 14:52
af KristjanHelgi
Mig langar rosalega í socket 939 móðurborð. Væri það ekki fínt með 3500+ 64 örgjörva?