Síða 1 af 1
Kælingar á skjákortum
Sent: Mán 10. Sep 2012 15:23
af Moldvarpan
Núna er kominn tími á að fá sér almennilegt skjákort í leikina, og þá var ég með í huga GTX 660 Ti.
Og þá var ég velta fyrir mér kælingunum á kortunum sem eru til boða í verslunum hérna, s.s. refrence blowerunum í stock kortunum vs. Twin Frozr.
Þá er mikill munur á þessum kælingum undir álagi, þá í hitatölum og hávaða.
Er að leitast eftir sem hljóðlátasta kortinu.
Re: Kælingar á skjákortum
Sent: Mán 10. Sep 2012 15:26
af Daz
Ef þú ert ekki búinn að því, þá endilega skoða reviews á netinu. Oft(ast) er þetta partur af samanburðinum, s.s. hávaðinn í þeim.
Re: Kælingar á skjákortum
Sent: Mán 10. Sep 2012 15:30
af Moldvarpan
Jújú, var svosem búinn að googla það. Langaði bara að heyra frá einhverjum viskubrunni sem hefur reynslu af báðum kælingunum.
Og þá einnig, ef þessi Twin Frozr er þetta góð kæling, afhverju er EVGA og PNY ekki með þetta á sýnum kortum? - bara svona ein af pælingunum.
Re: Kælingar á skjákortum
Sent: Mán 10. Sep 2012 15:36
af worghal
mæli með gigabyte kælingunum, heirist ekki múkk frá þessu
Re: Kælingar á skjákortum
Sent: Mán 10. Sep 2012 16:03
af Hnykill
Flestir skjákortsframleiðendur eru með sýna útgáfu af kælingu á þessum kortum. En eins og hann sagði fyrir ofan þá er Gigabyte með eina mjög góða.
http://www.guru3d.com/article/gigabyte- ... c-review/8
Re: Kælingar á skjákortum
Sent: Þri 11. Sep 2012 22:11
af Halldór
vinur minn var einmitt að kaupa sér svona kort og hann var búinn að komast að því að besta kælingin fyrir þetta kort er annaðhvort MSI TwinFrozor eða ASUS kortið:
http://www.asus.com/Graphics_Cards/NVID ... TIDC22GD5/ASUS kortið er örlítði hljóðlátara (ekki mikið) en TwinFrozor kortið er með betri rykvörn.
Re: Kælingar á skjákortum
Sent: Þri 11. Sep 2012 22:31
af methylman
Smá innlegg önnur viftan á TvvinFroser kortinu mínu er farin að skrölta, og én nenni ekki að bíða í þrjár vikur eftir því að tölvuverkstæðið hafi tíma til þess að "hlusta kortið"
Re: Kælingar á skjákortum
Sent: Þri 11. Sep 2012 23:08
af Klemmi
methylman skrifaði:Smá innlegg önnur viftan á TvvinFroser kortinu mínu er farin að skrölta, og én nenni ekki að bíða í þrjár vikur eftir því að tölvuverkstæðið hafi tíma til þess að "hlusta kortið"
Það er einn af kostunum við reference kælingarnar, helsta ástæðan fyrir því að vifturnar fara að skrölta er að ryk kemst inn að legunni og drekkur í sig olíuna.
Reference kælingarnar eru með mjög djúpar viftur sem erfitt er fyrir ryk að komast að, auk þess sem þær blása heita loftinu út úr kassanum að aftan, en hringsóla því ekki bara inn í kassanum líkt og flestar non-reference kælingarnar :/
Re: Kælingar á skjákortum
Sent: Þri 11. Sep 2012 23:50
af methylman
Klemmi skrifaði:methylman skrifaði:Smá innlegg önnur viftan á TvvinFroser kortinu mínu er farin að skrölta, og én nenni ekki að bíða í þrjár vikur eftir því að tölvuverkstæðið hafi tíma til þess að "hlusta kortið"
Það er einn af kostunum við reference kælingarnar, helsta ástæðan fyrir því að vifturnar fara að skrölta er að ryk kemst inn að legunni og drekkur í sig olíuna.
Reference kælingarnar eru með mjög djúpar viftur sem erfitt er fyrir ryk að komast að, auk þess sem þær blása heita loftinu út úr kassanum að aftan, en hringsóla því ekki bara inn í kassanum líkt og flestar non-reference kælingarnar :/
Allavega endaði ég í þessu hérna rykfría dæmi
http://shop.watercool.de/epages/Waterco ... ucts/13098Og keyri tvö kort sem folda 24/7 í 49-50°