Síða 1 af 1

Hljóðkort

Sent: Mið 04. Ágú 2004 23:49
af Grenadilla
sælt veri fólkið

ég var að spá í að kaupa hljóðkort og langaði að heyra reynslu annarra í þeim málum svo ég viti hvað ég eigi að kaupa og hvað ekki

Sent: Mið 04. Ágú 2004 23:53
af Arnar
Leikir: Audigy 2

Hljóðvinnsla: Revelotion kortið


Eitthvað svoleiðis.


Audigy ownar allt í leikjum (tekur lítið cpu afl)

En heyrðu, annars veit ég mjög lítið um þetta

Sent: Mið 04. Ágú 2004 23:54
af Zkari
Hljóðkortið mitt er bara innbyggt í móðurborðinu. 5.1 Hljóðkort mjög fínt :D

Sent: Fim 05. Ágú 2004 00:32
af ICM
Það er rétt hjá Arnari að Audigy ownar allt í leikjum (Og öðru skemmtiefni) og það er ekkert grín en þú færð hærri FPS í 3D leikjum ef þú notar Creative kort, skilar nákvæmari þrívíddar upplýsingum auk þess að styðja nýjustu útgáfur af EAX sem Creative Labs hanna.

Creative kortin koma með mjög skemmtilegum verkfærum til að breyta hljóði, þó þau séu ekki eins góð í "Pro" vinnslu þá eru þau miklu betri í heimilistölvur.

Sent: Fim 05. Ágú 2004 17:11
af nomaad
IceCaveman skrifaði:Það er rétt hjá Arnari að Audigy ownar allt í leikjum (Og öðru skemmtiefni) og það er ekkert grín en þú færð hærri FPS í 3D leikjum ef þú notar Creative kort, skilar nákvæmari þrívíddar upplýsingum auk þess að styðja nýjustu útgáfur af EAX sem Creative Labs hanna.


Ekki alveg satt. Ég er með SoundBlaster Live. Ef ég kveiki á EAX (t.d. í UT2004) þá hægist alveg svakalega á leiknum; við erum að tala um alveg 10-20 FPS mun. Get ekki fullyrt með Audigy kortin, en svona er þetta á SBLive.

Sent: Fös 06. Ágú 2004 16:19
af Hörde
Eru ekki Live kortin frá 1998? Ég held það sé miklu meira acceleration á Audigy kortunum. Á AthlonXPinum mínum finn ég mjög lítinn mun með EAX á eða af.