Síða 1 af 1

Hvernig CPU eruð þið með?

Sent: Mán 24. Mar 2003 16:36
af gumol
Var bara að spá í hvernig örgjörva þið væruð með

Sent: Mán 24. Mar 2003 17:17
af Atlinn
Hér er -> örgjörvi
Um -> örgjörva
Frá -> örgjörva
Til -> örgjörva

Sent: Mán 24. Mar 2003 17:21
af Voffinn
Gummi...þarna intel frík, þú veist að pentium og celeron er tegundir af intel örgjövum, og það er líka svona hjá AMD. Athlon (XP) og Duron... þannig að þetta hefði frekar átt að vera Amd, Intel, Annað. :D

Alti ? gæti verið að þú sért íslenskukennari ?

Sent: Mán 24. Mar 2003 17:23
af Atlinn
neinei

Sent: Mán 24. Mar 2003 19:19
af MezzUp
LOL gumol, ég var að leiðrétta þig fyrir stuttu og svo kemurru aftur og segir nákvæmlega sömu villuna :)
Og svo kemur Voffinn og leiðréttir hann en gerir líka villu: "örgjövum". Hjá honum vantaði hann eitt r: örgjörvum.
Það er gaman af þessu :)
Annars _held ég_ að það séu bara 3 örgjörvaframleiðendur sem að framleiða PC(x86) örgjörva: Intel, AMD og Via.

Sent: Mán 24. Mar 2003 20:05
af Voffinn
hvernig örgjörvar eru Via? ég held að ég sé með via innbyggt hljóðkort á móbóinu mínu :?

Sent: Mán 24. Mar 2003 20:18
af MezzUp
Amms, Via eru þekktastir fyrir chippsettin sín en svo framleiða þeir líka C3 örgjörva sem að eru byggðir á tækni nútímans(0.13 micron) en keyra helmingi hægar(<1GHz) svo að örgjörvinn þarf ekki viftu sem að ekkert nema snilld. Þá gætu menn sagt að það sama væri hægt að gera með downclockuðum P4, en þá vill ég benda á það að Via C3 900Mhz'a örgjörvi kostar 5605kr. :D

Sent: Mán 24. Mar 2003 20:22
af Voffinn
þannig að þetta er bara tilvalið í server dollu ?

Sent: Mán 24. Mar 2003 20:57
af MezzUp
Jamms, Via er líka að gefa út móðurborð sem að er með chipsettinu þeirra og örranum þeirra(þá er örgjörvinn fastur við móðurborðið. Á þeim borðum er líka onboard skjákort þannig að einu hlutirnir í tölvunni sem að ættu að gefa frá sér hljóð er spennugjafinn og harði diskurinn.

Sent: Mán 24. Mar 2003 22:46
af Atlinn
Svo er náttúrulega líka SUN en ég held að enginn hérna hafi efni á svoleiðis tölvu

Sent: Mán 24. Mar 2003 23:20
af gumol
Þeð er einginn hérna sem hefur mergt við "Annað" svo það virðist ekki þurfa fleiri möguleika :)

Hvutti: Það eru líka fleiri undirtegundir af Pentium d. Pentium II/III/4

Sent: Mán 24. Mar 2003 23:32
af Voffinn
ég var ekki að tala um það.

Amd -> skiptist í Duron og Athlon
Intel -> skiptist í Pentium og Celeron

Þarftu meiri útskýringar?