Síða 1 af 1

Vesen með leik...

Sent: Mið 15. Ágú 2012 02:02
af haukur78
Mig vantar smá aðstoð með tölvuna hjá mér. Málið er að ég installaði leik í lappann hjá mér og komst í hann sem var ekkert mál. Svo fór ég að fikta í stillingunum fyrir grafíkina og setti allt í botn. Þegar ég ætlaði að vista breytingarnar þá vildi leikurinn endurræsa sig og ég gerði það. Nema að leikurinn slökkti á sér og ég reyndi að ræsa hann sjálfur. Eina sem gerðist var að skjárinn blikkar 2var og ekkert gerist.
Ég er búinn að reyna að hreinsa allt út sem tengist leiknum og setja hann inn aftur en ekkert breytist.

Einhver ráð?

Re: Vesen með leik...

Sent: Mið 15. Ágú 2012 02:04
af darkppl
hvaða leik?

Re: Vesen með leik...

Sent: Mið 15. Ágú 2012 02:13
af haukur78
Einhver drasl leikur sem heitir police force. Ætti kannski að nefna líka að ég er með nvidia geforce gt540m 2ja gígab. skjákort í vélinni.

Re: Vesen með leik...

Sent: Mið 15. Ágú 2012 02:24
af haukur78
Fann út úr þessu. Það er auto skiptir á milli móðurborðs og skjákortsins en ég þurfti að setja skjákortið fast inn og þá kom þetta.