Síða 1 af 1

Skólatölvan í ár?

Sent: Lau 11. Ágú 2012 03:46
af ViktorS
Þarf að drífa mig í að kaupa fartölvu fyrir skólann, er búinn að skoða mjög lítið og myndi þiggja smá hjálp við leitirnar.
Vil hafa eftirfarandi:
- Lítinn skjá (13"-14")
- Létta og auðvelt að ferðast með
- Góð rafhlöðuending
- Frekar ódýr (~150k?)

Er alveg sama um skjákortið en væri gott að hafa ágætan örgjörva, ~4GB minni og ~500GB harðan disk, en ekkert must. Einnig væri fínt að hún sé flott og stílhrein en ekki algjört slys.

Re: Skólatölvan í ár?

Sent: Lau 11. Ágú 2012 10:32
af tdog
MacBook Air hefur alla þessa kosti. Nema kannski ekki alveg 500Gig...

Re: Skólatölvan í ár?

Sent: Lau 11. Ágú 2012 10:47
af AntiTrust
ThinkPad X1 Carbon - kemur í enda ágúst. Fallegri ultrabook hefur ekki litið dagsins ljós síðan .. ever. Ekki skemmir fyrir að hún er að fá vægast sagt góða dóma.

Re: Skólatölvan í ár?

Sent: Lau 11. Ágú 2012 10:53
af Daz
Ekki takmarka með harða diskinum, athugaðu allar tölvur og bættu svo við möguleikanum á 500 gb 2,5" usb-powered flakkara (20 þúsund?)

Re: Skólatölvan í ár?

Sent: Sun 12. Ágú 2012 18:54
af ViktorS
Daz skrifaði:Ekki takmarka með harða diskinum, athugaðu allar tölvur og bættu svo við möguleikanum á 500 gb 2,5" usb-powered flakkara (20 þúsund?)

Sagðist aldrei þurfa 500GB, var bara að segja að því stærra því betra.

Re: Skólatölvan í ár?

Sent: Þri 14. Ágú 2012 02:01
af ViktorS
AntiTrust skrifaði:ThinkPad X1 Carbon - kemur í enda ágúst. Fallegri ultrabook hefur ekki litið dagsins ljós síðan .. ever. Ekki skemmir fyrir að hún er að fá vægast sagt góða dóma.

Veistu eitthvað hvað líklegt verð verður á henni?

Re: Skólatölvan í ár?

Sent: Þri 14. Ágú 2012 02:06
af chaplin
AntiTrust skrifaði:ThinkPad X1 Carbon - kemur í enda ágúst. Fallegri ultrabook hefur ekki litið dagsins ljós síðan .. ever. Ekki skemmir fyrir að hún er að fá vægast sagt góða dóma.

Ætla sjálfur að stökkva á hana, 14" með flottri upplausn, örþunn og létt, með e-h RapidCharge fídus sem hleður að mig minnir 85% af batteryinu á hálftíma og 3G sem verður snilld með Tal tilboðinu.

Re: Skólatölvan í ár?

Sent: Þri 14. Ágú 2012 02:30
af ViktorS
chaplin skrifaði:
AntiTrust skrifaði:ThinkPad X1 Carbon - kemur í enda ágúst. Fallegri ultrabook hefur ekki litið dagsins ljós síðan .. ever. Ekki skemmir fyrir að hún er að fá vægast sagt góða dóma.

Ætla sjálfur að stökkva á hana, 14" með flottri upplausn, örþunn og létt, með e-h RapidCharge fídus sem hleður að mig minnir 85% af batteryinu á hálftíma og 3G sem verður snilld með Tal tilboðinu.

Já þarf að kíkja á hana, en rakst einnig á Toshiba R830 sem lítur mjög vel út. Tölvutækni voru með svipaða ASUS tölvu sem virðist vera búin.

Re: Skólatölvan í ár?

Sent: Þri 14. Ágú 2012 05:10
af Bioeight
ViktorS skrifaði:- Frekar ódýr (~150k?)

Macbook Air og Thinkpad X1 Carbon kostar/mun kosta meira en 150 þúsund krónur...

Re: Skólatölvan í ár?

Sent: Þri 14. Ágú 2012 09:55
af Halli25
Bioeight skrifaði:
ViktorS skrifaði:- Frekar ódýr (~150k?)

Macbook Air og Thinkpad X1 Carbon kostar/mun kosta meira en 150 þúsund krónur...

Aðeins meira en 150.000 en Zenbooks frá Asus eru mjög flottar:
http://tl.is/vara/25760

Re: Skólatölvan í ár?

Sent: Þri 14. Ágú 2012 10:34
af Klemmi
Halli25 skrifaði:
Bioeight skrifaði:
ViktorS skrifaði:- Frekar ódýr (~150k?)

Macbook Air og Thinkpad X1 Carbon kostar/mun kosta meira en 150 þúsund krónur...

Aðeins meira en 150.000 en Zenbooks frá Asus eru mjög flottar:
http://tl.is/vara/25760


Mjög flottar já, en þú ert að borga andskoti mikið fyrir fegurðina :oops:

Slappari örgjörvi, minna vinnsluminni með að ég held engum uppfærslumöguleikum þar sem minnin (allavega á týpunum sem við tókum inn) eru áföst móðurborðinu.
Minni harður diskur en á móti kemur með litlum SSD fyrir mest notaða dótið, sama þyngd en slappari rafhlöðuending heldur en í Toshiba vélinni, en samt 20þús krónum dýrari. Auk þess er DVD-drif í Toshiba vélinni, en margir vilja líklega meina að það sé algjör óþarfi ;)

Re: Skólatölvan í ár?

Sent: Þri 14. Ágú 2012 19:44
af ViktorS
Bioeight skrifaði:
ViktorS skrifaði:- Frekar ódýr (~150k?)

Macbook Air og Thinkpad X1 Carbon kostar/mun kosta meira en 150 þúsund krónur...

Ég bætti þessu inn eftir að þeir voru búnir að posta, gleymdi því bara hreinlega í original postinum.
Er að leita að einhverju svipuðu og toshiba tölvan, eru einhverjar tölvur í sama klassa á klakanum?