Síða 1 af 1

Uppfærsla fyrir vin ?

Sent: Sun 25. Júl 2004 22:33
af traustis
Vinur minn er að uppfæra tölvuna sína fyrir svona 40-50 þús kall,
hann spilar cs og fær ekki nógu gott fps með tölvunni eins og hún lítur út núna:

2.4ghz p4
mx440-se 64 mb skjákort
1stk 512 mb 333mhz vinnsluminni
Og móðurborðið hans styður bara 4x agp og 266 mhz vinnsluminni

Mér datt í hug að hann keypti sér Abit Vt7 móðurborð sem styður 8xagp og 400mhz vinnsluminni

Og kannski þetta skjákort = Radeon9800 Pro 256MB

Og ef það er einhver afgangur væri möguleiki að kaupa annað eins vinnsluminni og nota þau saman í dual channel

Hann spilar cs og fær ekki nógu gott fps með þessari tölvu

Hvað segið þið um þetta ?

Sent: Sun 25. Júl 2004 22:42
af Pandemic
486 all the way færð fínt fps í kænter stræk

Sent: Sun 25. Júl 2004 23:27
af Snorrmund
Þessi tölva á að vera andskoti nogu góð fyrir cs! láttu hann viruskanna eða þessvegna formatta... þetta á að vera nógu gott fyrir cs!

Sent: Sun 25. Júl 2004 23:51
af Drulli
Djöfull er ég pirraður á þessu "gamla p3 700mhz tölvan mín með tnt1 ræður alveg við cs"

Hafiði spilað CS nýlega ? Þegar fólk er að spila tölvuleiki til að keppa í þeim þá vilja menn steady 100 fps í öllum mögulegum aðstæðum.

Þessí vél ætti að vera 100fps steady nema þegar smoke er myndi ég halda. Ef hann ætlar bara að spila CS á HL1 vélinni væri þetta fín uppfærsla, GF4TI ætti að vera nóg fyrir 100fps í nokkrum smoke. En ef hann ætlar í HL2 og D3 og eitthvað fleira væri nýtt móðurborð, meira minni, yfirklukkun og GF6800GT ekki slæmt.

Sent: Mán 26. Júl 2004 00:58
af Pandemic
Biddu er Hl2 ekki orðin gamall kom átti hann ekki að koma út fyrir svona 8 árum :lol:

Sent: Mán 26. Júl 2004 01:24
af Steini
Alveg fín uppfærsla held ég, en ég hef aldrei séð þetta móðurborð áður. Er þetta nýtt? sé þetta ekki hjá hugver

Sent: Mán 26. Júl 2004 14:49
af traustis
Steini skrifaði:Alveg fín uppfærsla held ég, en ég hef aldrei séð þetta móðurborð áður. Er þetta nýtt? sé þetta ekki hjá hugver

Þetta er þriðja neðsta borðið á hugver.is

TCA-07I-Vt Abit Vt7, FSB800, Dual DDR, 8xAGP,2SATA, 6 r.hljóð, RAID, LAN .... 8.490kr

Sent: Mán 26. Júl 2004 17:00
af Manager1
Ég er með mjög svipaða tölvu og þessi vinur.

2.4Ghz, Mx440 og 1gb 333mhz RAM. Ekki mjög langt síðan ég bætti 512mb RAM við og ég man að ég var með stable 100fps á 512mb minni.

Ef hann yfirklukkar aðeins ætti hann að ná stable 100fps líka :)

Sent: Mán 26. Júl 2004 18:30
af Steini
Já og svo droppa í 20 í smoke eða eitthvað

Sent: Mán 26. Júl 2004 18:42
af Manager1
Droppar kannski ekki niður í 20, en kannski niður UM 20.

Ætli hann sé ekki með refresh rate á skjánum í 60hz hvort eð er. Þá skiptir engu máli þó fps sé hærra, sérð aldrei fleiri en 60.... right?

Sent: Mán 26. Júl 2004 18:44
af Steini
Það fer líka eftir upplausn, ég droppa feitt í smoke í 1280x1024 en ekkert í 800x600 t.d.

Sent: Mán 26. Júl 2004 18:55
af Manager1
Eru ekki allir að spila þetta í 800x600 með 60hz refresh rate? Ég hélt að það væri best.

Sent: Mán 26. Júl 2004 19:06
af WarriorJoe
800x600.. með 100hz.. Lang best að vera með 100hz.. Jafnvel þótt að skjárinn þinn nær hærra í 80xx600 en 100hz, þá er mikið betra að hafann í því þar sem fpsið þitt í t.d. cs er 100 fps.. Svo gætirðu náttúrlega verið meira vertical sync on.. Sumun finnst það vera meira "smooth" öðrum óþæginlegt.. Fer bara eftir persónum..

Sent: Mán 26. Júl 2004 21:35
af Steini
Ég spila reyndar í 1024x768, finnst það miklu meira smooth

Sent: Mán 26. Júl 2004 23:35
af Cicero
Ég spila cs í 800*600, 85 hz, 16bit. 100hz er best samt jú maður sér mun á 60 og 100

Sent: Þri 27. Júl 2004 10:09
af Drulli
Allt undir 100hz er viðbjóður.

Sent: Þri 27. Júl 2004 10:47
af Predator
Fínt að spila í 85hz skjárinn kemst ekki hærra:(

Sent: Þri 27. Júl 2004 12:53
af Drulli
Já, öruglega fínt þegar maður hefur ekki reynslu af öðru. Þegar ég byrjaði að spila online leiki var maður alltaf bara með 60hz og fattaði ekkert. Svo breytti maður í 100hz og allt varð öðruvísi. Minn skjár nær bara 85hz í 1024 og ég spila þessvegna aldrei í þeirri upplausn.

Sent: Þri 27. Júl 2004 16:45
af Nemesis
Ég spila með 120Hz og developer 1 :>

Ekki það að 800Mhz tryllitækið mitt nái nokkurntíman svo hátt :l