Síða 1 af 1

Abit AI7 eða Asus P4P800

Sent: Þri 20. Júl 2004 22:26
af Chimaera
sælir

Á í smá vandræðum með að velja móðurborð....málið er það að ég vil
reyna að fá fínt móðurborð á ca. 15.000 kr. Er sérstaklega með yfirklukkun
í huga og hef virkilega verið að skoða Abit AI7 og Asus P4P800. Bæði koma ágætlega út að mér sýnist. Væruð kannski til í að segja mér kosti þeirra og galla og hvort er betra í að overclocka og bara ykkar álit þessum borðum

takk takk

Sent: Mið 21. Júl 2004 00:27
af Steini
Gætir þú gefið mér link á asus borðið, nenni ekki að googla það. Annars er abit ai7 mjög gott borð og gott í overclock

Sent: Mið 21. Júl 2004 04:01
af machinehead
Ég mæli með Abit, OC'aði minn auðveldlega, og ég hef aldrei komið nálægt OC'i áður

Sent: Mið 21. Júl 2004 16:35
af Chimaera

Sent: Mið 21. Júl 2004 17:17
af Hlynzi
Asus móðurborð. Þau eru best.

Sent: Mið 21. Júl 2004 17:54
af Lazylue
Ég er með asus p4p800deluxe og er nú sáttur með það að öllu leiti held ég. Eitt pirrandi fannst mér að þegar ég setti skjákort(5900 xt) í það sem var frekar stórt þá kemur það í veg fyrir það að ég geti tekið innra minnið úr móðurbörðinu, þ.e.a.s það lyggur alveg upp við hvíta dótið sem maður þarf að ýta á til að ná minninu úr. :?
Gekk fínt að overclocka það.
En eru abit ekki fremstir í því þegar kemur að því að mæla hita. Sem er nú frekar góður kostur ef þú ert að fara að overclocka.

Sent: Fös 30. Júl 2004 17:10
af BlitZ3r
kaupa móðurborð með 875 kubbasetti munt örruglega græða eitthvað á því

Sent: Fös 30. Júl 2004 17:13
af Nemesis
Hvað með ABIT IC7? Það er með 875 kubbasettinu og er betra en AI7 að því leytinu, en míkróGúrú er ekki á því að vísu. Ég hef aðallega verið að pæla í IC7...