Síða 1 af 2

Framtíð SSD diska

Sent: Mið 13. Jún 2012 03:31
af gunnarasgeir
Ég er svona aðeins að spegúlera í framtíð SSD diska, þetta er náttúrlega algjör fokking snilld og mér langar virkilega mikið í slíkann disk sem stýrikerfisdisk en í dag er það eina sem stoppar mig í rauninni það hversu lágt geymslupláss þeir hafa. Ég er með 1tb núna sem windows disk (og ýmislegt annað inná honum sem ég tek backup af reglulega)
Ég myndi amk aldrei vilja fara neðar en 500gb í stýrikerfisdisk.

Er eitthvað vitað hvenær þessi tækni springur út og maður getur farið að fá 1tb eða 2tb SSD diska á eðlilegu verði, finnst þeir í dag alltof dýrir fyrir of lítið geymslupláss.
Einhver búinn að stúdera þetta og veit hvenær þessi tækni tekur við? (sem bara hlýtur að fara að gerast fyrr en síðar)

Re: Framtíð SSD diska

Sent: Mið 13. Jún 2012 03:35
af FuriousJoe
128gb er í raun alveg nóg fyrir stýrikerfisdisk svo lengi sem þú notar þá 1tb sem gagnadisk, s.s installar leikjum, geymir video og myndir og allskonar þar.

Mæli með að setja upp forrit á SSD samt, snillt hvað þau vinna hratt.

Re: Framtíð SSD diska

Sent: Mið 13. Jún 2012 03:39
af AciD_RaiN
Ég var með sömu pælingar og þú fyrst þegar ég var að spá í SSD en þú kemst að því að þetta er alveg nóg pláss ;) Er með einn 30GB SSD disk í lappanum og lubuntu og það sem þessi vél vinnur hratt miðað við hvurslags drasl þetta er :)

Re: Framtíð SSD diska

Sent: Mið 13. Jún 2012 03:41
af chaplin
Næstu 3-4 ár eru eftir að breyta miklu, verð á SSD diskum mun líklegast hrapa á sama tíma og diskarnir verða öflugri. Ég myndi sjálfur aldrei geta farið aftur í platter diska fyrir stýrikerfið.

Þú skalt þó auðvita hafa það í huga að SSD eru aðalega hugsaðir fyrir hugbúnað, allt frá leikjum til forrita. Þú ert ekki að fara að geyma bíómyndir, tónlist osfrv. á SSD diskum og því hugsa að ég að 64-128GB dugi flest öllum notendum meira en nóg.

Re: Framtíð SSD diska

Sent: Mið 13. Jún 2012 05:45
af Oak
chaplin skrifaði:Næstu 3-4 ár eru eftir að breyta miklu, verð á SSD diskum mun líklegast hrapa á sama tíma og diskarnir verða öflugri. Ég myndi sjálfur aldrei geta farið aftur í platter diska fyrir stýrikerfið.

Þú skalt þó auðvita hafa það í huga að SSD eru aðalega hugsaðir fyrir hugbúnað, allt frá leikjum til forrita. Þú ert ekki að fara að geyma bíómyndir, tónlist osfrv. á SSD diskum og því hugsa að ég að 64-128GB dugi flest öllum notendum meira en nóg.


Bara svona smá reminder þá er Max Payne 3 26 GB sem tekur helvíti mikið af disknum...120 GB finnst mér of lítið :dontpressthatbutton

Re: Framtíð SSD diska

Sent: Mið 13. Jún 2012 06:17
af chaplin
Ég er auðvita að tala um fyrir the average Joe, ég væri sjálfur til í 256GB, en ég get vel látið 128GB duga ef ég fylli hann ekki af dóti sem ég nota ekki/sjaldan. Er núna með með öll þau forrit sem ég virkilega þarf og leiki sem ég spila og á um 25GB laus, gæti þó líklegast stofnað meira pláss ef ég færi yfir diskinn.

Ég þekki þó líka hardcore leikjaspilara sem rétt svo láta sér duga að vera með 384GB af SSD, enda eru þeir ekki the average Joe. ;)

Re: Framtíð SSD diska

Sent: Mið 13. Jún 2012 07:16
af bulldog
Ég er með 240 gb revodrive algjör snilld

Re: Framtíð SSD diska

Sent: Mið 13. Jún 2012 07:38
af littli-Jake
En hvernig er það. Núna eru SSD diskar "dýrir" per gig en er ekki líka eitthvað vesen með að hreinsa út af þeim?

Re: Framtíð SSD diska

Sent: Mið 13. Jún 2012 10:11
af dandri
SSD eru awesome og það verður gaman að fylgjast með þróun þeirra næstu árin.

Ég ætla hins vegar ekki að fá mér ssd fyrr en gagnamagnið eykst og þeir eru ódýrari.

Re: Framtíð SSD diska

Sent: Mið 13. Jún 2012 10:26
af Tiger
Að vera með tölvu í dag án SSD er eins og að flakka um á hestvagni í umferðinni.

Re: Framtíð SSD diska

Sent: Mið 13. Jún 2012 10:38
af dandri
Tiger skrifaði:Að vera með tölvu í dag án SSD er eins og að flakka um á hestvagni í umferðinni.


Tja, ég myndi frekar vökvakæla eða kaupa mér betri skjákort í stað SSD eins og er.

Re: Framtíð SSD diska

Sent: Mið 13. Jún 2012 10:52
af Daz
dandri skrifaði:
Tiger skrifaði:Að vera með tölvu í dag án SSD er eins og að flakka um á hestvagni í umferðinni.


Tja, ég myndi frekar vökvakæla eða kaupa mér betri skjákort í stað SSD eins og er.

Þetta segir bara einhver sem hefur aldrei fundið muninn á SSD og non-SSD . Auðvitað færðu fleiri stig í 3Dmark ef þú vatnskælir og getur yfirklukkað um 3% í viðbót, en 99% af notendum nota sinn tíma í að nota tölvuna, en ekki benchmarka hana og þar kemur SSDinn mjög sterkur in.

Re: Framtíð SSD diska

Sent: Mið 13. Jún 2012 10:53
af GuðjónR
Tiger skrifaði:Að vera með tölvu í dag án SSD er eins og að flakka um á hestvagni í umferðinni.

Góð samlíking, SSD er mesta boost sem tölva getur fengið í dag.
Ekki bíða í mörg ár eftir að eitthvað verði ódýrara eða hraðara, nýtið það sem komið er og uppfærið svo aftur seinna.

Ég keypti þennan ofurgaur fyrir nokkrum vikum síðan en hef ekki haft tíma til að installera, hann er ennþá í innsigluðum umbúðunum. :face

Re: Framtíð SSD diska

Sent: Mið 13. Jún 2012 10:57
af dandri
Daz skrifaði:
dandri skrifaði:
Tiger skrifaði:Að vera með tölvu í dag án SSD er eins og að flakka um á hestvagni í umferðinni.


Tja, ég myndi frekar vökvakæla eða kaupa mér betri skjákort í stað SSD eins og er.

Þetta segir bara einhver sem hefur aldrei fundið muninn á SSD og non-SSD . Auðvitað færðu fleiri stig í 3Dmark ef þú vatnskælir og getur yfirklukkað um 3% í viðbót, en 99% af notendum nota sinn tíma í að nota tölvuna, en ekki benchmarka hana og þar kemur SSDinn mjög sterkur in.


Þú getur auðveldlega fengið meiri en 3% aukningu á yfirklukkun með vatnskælingu. Hver fær sér vatnskælingu eingöngu með því takmarki að benchmarka?

Ég fæ mér SSD þar að auki í framtíðinni.

Re: Framtíð SSD diska

Sent: Mið 13. Jún 2012 10:58
af dori
dandri skrifaði:
Tiger skrifaði:Að vera með tölvu í dag án SSD er eins og að flakka um á hestvagni í umferðinni.


Tja, ég myndi frekar vökvakæla eða kaupa mér betri skjákort í stað SSD eins og er.
SSD er klárlega besta performance boost sem þú getur gefið tölvunni. Eins og búið er að benda á þá skorarðu kannski ekki hærra í flestum svona benchmarks og færð ekki mörg auka fps en það sem SSD gerir er að gera alla notkun á tölvunni hraðari. Sama hvort við erum að tala um ræsa tölvuna, opna forrit eða vafra um á netinu. Leikir verða líka miklu fljótari með allt sem er kallað "loading" þó svo að þegar það klárist sjáirðu lítinn sem engan mun.

EDIT, fyrst þú ert ennþá að verja þetta. Ég myndi segja að það væri vitleysa að eyða pening í vatnskælingu á tölvu ef þú ert ekki með SSD disk.

Re: Framtíð SSD diska

Sent: Mið 13. Jún 2012 11:11
af dandri
Ég hef lesið mér til um SSD og ég veit hversu mikið performance þeir gefa. Ég hef bara meiri áhuga á að vökvakæla heldur en að fá mér SSD til að byrja með :)

Re: Framtíð SSD diska

Sent: Mið 13. Jún 2012 11:20
af AciD_RaiN
dandri skrifaði: Hver fær sér vatnskælingu eingöngu með því takmarki að benchmarka?

ÉG :megasmile

En að vatnskæla einhverja svaka vél sem er ekki með neinum SSD disk er eins og að skipta um innrétingu á porche sem er með lödu sport vél :catgotmyballs
(Reyna að koma með smá Tiger speki)

Re: Framtíð SSD diska

Sent: Mið 13. Jún 2012 11:20
af gardar
Eina vitið er að samtvinna SSD og HDD. þar að segja nota SSD-inn sem cache fyrir HDD

Mynd

Gefur betri hraða en SSD diskurinn stakur auk þess sem þú auðvitað færð margfalt geymslupláss :happy

http://bcache.evilpiepirate.org/

Re: Framtíð SSD diska

Sent: Mið 13. Jún 2012 11:21
af dori
dandri skrifaði:Ég hef lesið mér til um SSD og ég veit hversu mikið performance þeir gefa. Ég hef bara meiri áhuga á að vökvakæla heldur en að fá mér SSD til að byrja með :)

Málið er að það er erfitt að átta sig á hvaða performance þeir gefa með því að lesa review eða slíkt. Þetta er eitthvað sem þú þarft að upplifa IMHO. Ferð aldrei til baka. Og þetta er algjörlega eitthvað sem á að vera fyrsta uppfærsla. Sérstaklega frábært fyrir frekar gamlar tölvur, gerir þær ótrúlega fínar í basic tölvuvinnslu.

Re: Framtíð SSD diska

Sent: Mið 13. Jún 2012 11:22
af upg8
Ég var að skoða ódýra SSD diska og tók eftir því að nákvæmlega sama lína af diskum er ekki endilega með sama controller á öllum stærðum. Var að hugsa um að taka 32GB disk fyrir HTPC tölvu. Það er ekkert mál að færa möppur af stýrikerfisdisknum yfir á aðra diska. Óþarfi að hafa t.d. my documents og þessháttar á SSD. Svo er alltaf hægt að bæta við SSD diskum seinna sem eru stærri, ekkert mál að raða þeim hvar sem er í kassanum hvort sem þeir eru gerðir fyrir þá eða ekki þar sem diskarnir titra ekki.

Ef þú ert með meira RAM en þú raunverulega notar þá getur þú notað þetta forrit http://www.dataram.com/ sett eitthvað af forritum upp í vinsluminnið. ;)

Re: Framtíð SSD diska

Sent: Mið 13. Jún 2012 11:37
af Pandemic
Græðir í raun ekkert á því nema Loading tíma að vera með tölvuleik á SSD. Það er ekki eins og performance aukist við það að fetcha skrár á disk sem eru hvort sem er í minni.
Ég er sammála mörgum ræðumönnum hér og það er að vera á HDD með stýrikerfið er eins og að keyra Porche með lödu vél.

Re: Framtíð SSD diska

Sent: Mið 13. Jún 2012 14:24
af Xovius
5gb frí á 120gb SSDinum mínum. Er með annan 2tb geymsludisk (og er að bæta við öðrum því þessi er að fyllast) og allir leikirnir eru þar. Bara steam leikirnir mínir eru yfir 310gb :D

Á aldrei eftir að fara aftur í HDD fyrir stýrikerfið :D Er líka að vatnskæla og væri frekar til í að missa vatnskælinguna en SSDinn. :harta

Re: Framtíð SSD diska

Sent: Mið 13. Jún 2012 14:37
af flottur
Ég er með Samsung 128GB SSD í fartölvuni, síðan ætlaði ég að þrauka að vera með venjulegan harðan disk í HTPC-inum það gekk í 2 daga síðan ég keypti annan Samsung 128GB SSD í HTPC-ið mitt og er með 2X2TB diska fyrir geymslu pláss, mér er alveg sama þó að plássið sé lítið hraðinn sem ég er að græða á þessu er engu líkt því sem ég hef upplifað seinustu ár í hraða.

En ég er sammála felstum hérna inni, SSD á bara að geyma forrit og þannig.

Re: Framtíð SSD diska

Sent: Mið 13. Jún 2012 16:07
af hfwf
Tiger skrifaði:Að vera með tölvu í dag án SSD er eins og að flakka um á hestvagni í umferðinni.

Sumsé "in style" =):mrgreen:

Sent from my GT-I9100 using Tapatalk 2

Re: Framtíð SSD diska

Sent: Fim 14. Jún 2012 00:25
af Minuz1
Pandemic skrifaði:Græðir í raun ekkert á því nema Loading tíma að vera með tölvuleik á SSD. Það er ekki eins og performance aukist við það að fetcha skrár á disk sem eru hvort sem er í minni.
Ég er sammála mörgum ræðumönnum hér og það er að vera á HDD með stýrikerfið er eins og að keyra Porche með lödu vél.


Prófaðu að keyra antivirus scan á sama tíma/disk og þú spilar tölvuleik á. (http://www.tomshardware.com/reviews/bat ... 62-14.html)