Síða 1 af 1
Smá hjálp með að velja skjákort.. :=)
Sent: Lau 10. Júl 2004 16:16
af Suave
Núna þarf e´g að fara að kaupa mér nytt skjákort þar sem það gamla er að syngja sitt síðasta..
og þar sem ég er búinn að vera með mitt geforce 4 64mb i morg ár hef ég ekki hugmynd um hvaða kort eru best þegar kemur að tölvuleikjunum..
ég er að leita mér af korti sem má ekki vera dýrara en 20k
hvaða kort er best að kaupa í dag þegar verðið skiptir öllu máli?
takk
Sent: Lau 10. Júl 2004 16:28
af ErectuZ
Ég mæli með annað hvort Radeon 9600XT, ef þú ert mikið fyrir Radeon, eða nVidia GeForce FX 5900XT, if þú ert mikið fyrir nVidia. Bæði undir 20k, held ég
Sent: Lau 10. Júl 2004 17:36
af Steini
Það er spurning hvort er að performa betur, radeon 9600xt 256mb kostar 18.??? og hitt er á cirka 20k
Sent: Lau 10. Júl 2004 17:51
af ErectuZ
Þau eru að performa mjög svipað, held ég. En auðvitað hugsar Radeon meira um hraða, og nVidia hugsar meira um gæði og "eye-candy".
Sent: Lau 10. Júl 2004 22:05
af kristjanm
Rainmaker: ég hef staðið í þeirri trú að það séu betri myndgæði á Radeon 9. seríu kortunum en á geForce FX kortunum.
Önnur saga held ég að sé með nýju kynslóðina sem er að koma á markað núna, þar held ég að það séu betri myndgæði á geForce kortunum.
Annars var ég að lesa grein um FarCry með geForce 6. seríu kort og Pixel Shader 3.0 stuðningi væri með eitthvað ljóta skugga. Ég efa samt ekki að það séu einhver tæknileg mistök sem verða lagfærð.
Sent: Lau 10. Júl 2004 22:08
af ErectuZ
Það er satt. Skuggarnir á nýju GeForce kortunum eru frekar ljótir. Minna á stiga
Sent: Sun 11. Júl 2004 16:10
af Lazylue
Vinur minn er með radeon 9600xt og er að ná rétt um 4000 stigum í 3dmark 2003.
Ég er með geforce fx 5900xt og er að ná næstum 7000 stigum í sama testi og með svipað system.(reyndar með smá yfirklukkun)
http://service.futuremark.com/compare?2k3=2741915