Síða 1 af 1

Aflgjafapælingar

Sent: Sun 01. Apr 2012 18:16
af Solstice
Sælir félagar.

Ég ætla að taka tölvuna í smá overhaul í sumar og var ég að spá hvort þessi aflgjafi myndi þola þessa íhluti sem ég kem til með að næla mér í => http://www.att.is/product_info.php?cPath=41_34&products_id=7682

Þetta er setupið sem ég kem til með að vera með þegar öllu er lokið:

Örgjörvi: AMD Bulldozer FX-8150 3.6 GHz http://www.att.is/product_info.php?products_id=7779
Vinnsluminni: Corsair 1600MHz 16GB (4x4GB) Vengeance http://www.att.is/product_info.php?cPath=41_16_237&products_id=7736
Móðurborð: Asus M5A99X EVO 990FX http://www.att.is/product_info.php?cPath=41_25_208&products_id=7674
Skjákort: ATI HD 5770 (þetta er það eina sem ég ætla mér ekki að uppfæra alveg strax en fæ mér svo annað hvort annað í crossfire eða nýtt)

Svo er ég að sjálfsögðu að leita mér vitneskju um aflgjafann.

Endilega látið í ykkur heyra og segið mér hvað ykkur finnst um þetta brjálæði. (Vil ekki heyra "Intel er miklu betra" eða annað slíkt)

Solstice

Re: Aflgjafapælingar

Sent: Sun 01. Apr 2012 18:21
af AciD_RaiN
Ég myndi eindregið mæla með að þú færir í aðeins stærri aflgjafa modular og með fleiri PCI-E tengjum.

Dettur helst í hug http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=6390
eða http://www.att.is/product_info.php?cPat ... s_id=7422&

Gæti haft rangt fyrir mér þannig ef svo er þá vona ég að einhver leiðrétti mig :)

Re: Aflgjafapælingar

Sent: Sun 01. Apr 2012 18:31
af Tbot
Allir hlutir hafa uppgefna aflþörf í vöttum (W), sama hver hlutirinn er. Leggur þetta saman og þá færðu lágmarks þörf, ekki gleyma HDD í reikningsdæminu.
Síðan er það ampertalan á rail-inu á móti því sem skjákortið (kortin) þurfa.

Re: Aflgjafapælingar

Sent: Sun 01. Apr 2012 19:14
af KC109
fáðu þér þennan aflgjafa

Re: Aflgjafapælingar

Sent: Sun 01. Apr 2012 20:35
af ingibje
þessi aflgjafi dugar og vel það, jafnvel þó þú farir í crossfire.

getur líka notað reiknivélar eins og t.d; http://extreme.outervision.com/psucalculatorlite.jsp og séð hvað þú þarf, svo hef ég capacitor aging í 25% - 30%

Re: Aflgjafapælingar

Sent: Sun 01. Apr 2012 20:43
af AciD_RaiN
ingibje skrifaði:þessi aflgjafi dugar og vel það, jafnvel þó þú farir í crossfire.

getur líka notað reiknivélar eins og t.d; http://extreme.outervision.com/psucalculatorlite.jsp og séð hvað þú þarf, svo hef ég capacitor aging í 25% - 30%

Er ég að rugla eða er þessi aflgjafi ekki bara með 2x 6 pin PCI-E?
PCI-E Connector @ 2.

Re: Aflgjafapælingar

Sent: Sun 01. Apr 2012 20:45
af ingibje
það er hægt að nota bara molex í pci-e, sem ég held að fylgi öllum skjákortum í dag sem þurfa auka rafmagn.

Re: Aflgjafapælingar

Sent: Sun 01. Apr 2012 21:16
af vesley
ingibje skrifaði:það er hægt að nota bara molex í pci-e, sem ég held að fylgi öllum skjákortum í dag sem þurfa auka rafmagn.



Það er nú ekki mælt með því þótt að það virki alveg sæmilega.

Hinsvegar mun þessi aflgjafi duga léttilega.

Re: Aflgjafapælingar

Sent: Þri 03. Apr 2012 01:34
af Gunnar
KC109 skrifaði:fáðu þér þennan aflgjafa

þennan? ertu klikkaður?
Frekar þennan.

Re: Aflgjafapælingar

Sent: Þri 03. Apr 2012 22:54
af KC109
úps smá mistök

ég var að tala um þennan: http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=2065