Síða 1 af 1
Myndi vilja fá álit á þessa tölvu sem ég er að setja saman
Sent: Þri 27. Mar 2012 07:49
af hilmart
Halló. Ég er að setja saman tölvu og myndi vilja fá álit ykkar áður en ég kaupi
Hér er linkur til Google Docs þar sem hún erAllir hlutir eru hjá att.is
Ég veit að það er ekkert skjákort, ég mun panta GTX 680 frá útlöndum seinna, mun nota mitt gamla ATI Radeon HD 4850 á meðan
Tölvan er ætluð fyrir tölvuleiki. Ég vill frekar Intel en AMD. Budget er svona í kringum 300.000. Á eftir að bæta við skjákortinu og 24" LED skjá. Það er erfitt að finna góðann LED skjá fyrir tölvuleiki sem er ekki rándýr.
Takk fyrir
Re: Myndi vilja fá álit á þessa tölvu sem ég er að setja saman
Sent: Þri 27. Mar 2012 08:43
af Gilmore
Ekkert að þessu, nema vantar ekki SSD drif í pakkan? Held það sé orðið alveg must í svona nýrri og öflugri vélar.
Ef leikjaspilun er aðalatriðið þá held ég að i7 sé óþarfi, i5 er jafnöflugur nema hann er ekki með Hyper Threadning, sem leikir nota sjaldan eða aldrei. Leiðréttið mig ef ég er að rugla.
Re: Myndi vilja fá álit á þessa tölvu sem ég er að setja saman
Sent: Þri 27. Mar 2012 08:43
af vesi
bæta við ssd þá ertu nokkuð solid
er ekki málið að fá sér i52500k í leikina og svo uppá OC seinna meir..
Re: Myndi vilja fá álit á þessa tölvu sem ég er að setja saman
Sent: Þri 27. Mar 2012 09:00
af Magneto
Lítur bara vel út, en sammála seinustu tveimur ræðumönnum... ssd og i5 2500K
Gangi þér vel
Re: Myndi vilja fá álit á þessa tölvu sem ég er að setja saman
Sent: Þri 27. Mar 2012 09:28
af Guðni Massi
Svo myndi ég frekar taka tvö Dual-channel minni frekar en Quad-channel, Sandybridge styður ekki Quad-channel.
Re: Myndi vilja fá álit á þessa tölvu sem ég er að setja saman
Sent: Þri 27. Mar 2012 10:05
af Fumbler
Sammála fyrri mönnum með i5 og ssd
Ef þú getur vera með 2x8GB kubba frekar en 4x4GB, þá áttu möguleika á að bæta í seinna, svo er óþarfi að kaupa retail cpu ef þú ætlar að kaupa aðra kælingu.
Re: Myndi vilja fá álit á þessa tölvu sem ég er að setja saman
Sent: Þri 27. Mar 2012 10:22
af GuðjónR
Í nýjum setup'um þá er SSD algjört must!
Annars er þetta bara flott valið hjá þér, ég myndi halda mig við i7 en ekki i5 eins og margir tala um.
Líka spurning hvort þú þurfir svona dýrt móðurborð/ram ... hugsanlega er þú ert á leiðini í yfirklukkun og læti.
Taktu OEM örgjörva af þú ætlar að kaupa aðra kæliviftu, annars eru Retail vifturnar sem fylgja mjöööög hljóðlátar og góðar.
Re: Myndi vilja fá álit á þessa tölvu sem ég er að setja saman
Sent: Þri 27. Mar 2012 10:45
af AciD_RaiN
Ég færi frekar í i7 2600k eða 2700k og endurskoða CPU kælinguna. SSD er nauðsynjavara í dag og mér skylst að þessi sé mjög góður
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=6301Svo er spurning hvort það sé ekki betra að taka bara 2x4gb minni eða jafnvel 2x8 ef peningur er ekkert issue... Verður gaman að sjá hvað verður úr þessu
Re: Myndi vilja fá álit á þessa tölvu sem ég er að setja saman
Sent: Þri 27. Mar 2012 13:08
af hilmart
GuðjónR skrifaði:Í nýjum setup'um þá er SSD algjört must!
Annars er þetta bara flott valið hjá þér, ég myndi halda mig við i7 en ekki i5 eins og margir tala um.
Líka spurning hvort þú þurfir svona dýrt móðurborð/ram ... hugsanlega er þú ert á leiðini í yfirklukkun og læti.
Taktu OEM örgjörva af þú ætlar að kaupa aðra kæliviftu, annars eru Retail vifturnar sem fylgja mjöööög hljóðlátar og góðar.
Er aðal munurinn á OEM og Retail það að Retail er með viftu sem fylgir með og lengri ábyrgð. Þar sem OEM er bara örgjörvinn stakur í kassa?
Eina ástæðan út af því að SSD diskur var ekki í þessu er út af því að SSD er mjög nýtt og ágætlega dýrt. En ef svona margir segja að það er nauðsynlegt þá ætla ég að fá þannig og kannski bara installa nánast öllu á 2TB HDD sem er þá einnig fyrir geymslu.
Ég er í smá vandamálum með móðurborðið. Mig langar í Z68 chipsettið og PCI-E 3.0 því að ég er að fá PCI-E 3.0 skjákort, þannig að það er nauðsynlegt. Þetta móðurborð er frekar dýrt, en ég finn bara eiginlega ekkert mikið ódýrara. Hver er munurinn á
Asus P8Z68-V GEN3 og
Asus P8Z68-V Pro GEN3 ?
Ég efast um það að ég á eftir að fara í overclocking. Ég einfaldlega þori því ekki. Ef eitthvað myndi fara útskeðis og ég væri með yfirklukkun, þá myndi ég ekkert fá bætt þótt að það sé ekki yfirklukkuninni að kenna, held ég...
Re: Myndi vilja fá álit á þessa tölvu sem ég er að setja saman
Sent: Þri 27. Mar 2012 13:14
af worghal
hilmart skrifaði:GuðjónR skrifaði:Í nýjum setup'um þá er SSD algjört must!

það er sami ábyrgðar tími á OEM og Retail. en svo ef þú ert að fara að yfirklukka þá væri sniðugt að taka yfirklukkunar trygginguna hjá intel og kostar hún á bilinu 20-30 dollara, fer eftir hvaða örgjörfa þú tekur.
einnig taktu örgjörfa með K í endanum.
Re: Myndi vilja fá álit á þessa tölvu sem ég er að setja saman
Sent: Þri 27. Mar 2012 15:06
af marri87
Get ekki betur séð en að þú sért með I7 2600 á listanum, myndi bæta nokkrum þúsundköllum í 2600K ef þú ætlar að overclocka þar sem það er ekki hægt með hinn.
Re: Myndi vilja fá álit á þessa tölvu sem ég er að setja saman
Sent: Þri 27. Mar 2012 19:08
af hilmart
Ég efast mjög mikið um að ég á eftir að yfirklukka. Er eitthvað mikið performance boost þegar maður overclockar t.d. i7 2600K ? Þarf ég þá ekki betri kælingu fyrir hann?
Re: Myndi vilja fá álit á þessa tölvu sem ég er að setja saman
Sent: Þri 27. Mar 2012 19:20
af Arnzi
Ég myndi fá mér betri örgjörva kælingu og nota þetta built-in yfirklukkunar dót á móðurborðinu þarsem það hefur náð alveg hraða uppí 5 ghz.
Re: Myndi vilja fá álit á þessa tölvu sem ég er að setja saman
Sent: Þri 27. Mar 2012 21:08
af Moquai
fara í noctua og er ekki 16gb smá overkill? fara kannski í 8gb 1866MHz r sum?
Re: Myndi vilja fá álit á þessa tölvu sem ég er að setja saman
Sent: Þri 27. Mar 2012 21:22
af siggi83
Í hvað ertu að fara nota tölvuna? Ef hún er bara í leiki þá er i5-2500 (eða 2500k ef þú ætlar að yfirklukka) alveg nóg.
Og ef þú færð Z68 borðið þá geturðu nýtt þér SRT tæknina sem er innbyggð í þau borð til og notað lítinn SSD disk fyrir cache til að auka hraðann á harða diskinum.
Corsair AX750 er líka alveg nóg fyrir i5 + gtx 680 ef þú ætlar ekki í SLI.