Síða 1 af 1

Var að setja eina saman..

Sent: Sun 16. Mar 2003 13:25
af OverClocker
Jæja, búinn að skilja við gömlu tölvuna fyrir að standa sig illa í BF1942 ! og kominn með nýja undir arminn...

CPU: P4 2.53mhz (533) Retail frá ebay.com.
móðurborð: MSI 648 MAX-F - SiS648, 400/533FSB, 6xUSB2, 3xDDR333, ATA133, AGPx8, Gigabit Lan, S478, V1.0 frá Tölvulistanum.
Kassi: CAS-CUBE-BLACK frá Start.is
RAM: Mushkin 512mb PC2700 Level 2 high performance cas222 frá Start.is
PSU: Vantec 420W frá Start.is
HD: Western Digital 40gb 8mb buffer frá Tölvulistanum.
CDRW: MSI CD-RW MS-8348 48x40x48x frá Tölvulistanum.
GFX: MSI geforce4 MX 420 frá Tölvulistanum.
Aukavifta: VANTEC-SF8025L frá Start.is
OS: Windows XP Pro


Því miður átti ég ekki pening fyrir nýju skjákorti ! það kemur næst...

Eina vandamálið er að tölvan er að kvarta yfir því að cpu viftan snúist ekki nógu hratt (er á 2370rpm) en cpu hiti er ca 30-35 gráður.

Sent: Sun 16. Mar 2003 14:20
af MezzUp
Hver framleiðir þetta móðurborð?
Mér líst vel á þetta vinnsluminni, en ertu búinn að skoða nýju Kingston CL2 minnin hjá Tölvuvirkni
Ég myndi pottþétt fá mér 80GB harðan disk, ef ekki 120GB. DC++ er fljótt að fylla harða diska :)
Ætlarru ekki að fá þér DVD-drif?

Sent: Sun 16. Mar 2003 14:37
af d00m
Nice setup, gott hjá þér líka að fá þér almennilegt minni. Svo þegar þú getur fengið þér high-end skjákort þá verður þetta brilliant vél.

Sent: Sun 16. Mar 2003 14:38
af Voffinn
Dvd á heim frammí stofu...hjá kerlingunni...

En þetta móðurborð...kostar það ekki 14.990...og frá tölvulistanum..mér sýnist það... Þetta mun vera M.S.I. hvernig ertu að fíla þetta móðurborð ? ég er að hugsa um kaupa mér svona móðurborð :D

Sent: Sun 16. Mar 2003 15:22
af OverClocker
Jú þetta er MSI borð og það er að virka fínt (nema þetta vesen með cpu viftuna sem ég kann engin ráð við...). ég er reyndar enn að fínstilla biosinn þannig að hún á eftir að verða betri..

Ég vildi móðurborð sem ég get yfirklukkað, og þetta fékk góða dóma..

Minnið gerist ekki betra.. (helv dýrt samt) er betra en Kingston frá Tölvuvirkni (sem er sambærilegt við Mushkin blue line (ekki level 2 high performance) sjá betur http://www.mushkin.com/cgi-bin/Mushkin. ... talog/5376

Jú mig vantar einmitt DVD drif í vélina ásamt skjákorti en ég átti ekki meiri pening í bili.

Svo var svo mikið talað hérna um að 80gb WD drifin væru hávær svo að ég skellti mér bara á 40gb.. enda þarf ég ekkert meira..

Sent: Sun 16. Mar 2003 18:56
af d00m
Hmmm, ég á 80 WD disk og hann er ekkert hávær :shock:

Sent: Þri 18. Mar 2003 14:22
af halanegri
vá! hvernig tímiru að eyða 15.000 kalli í psu?

Sent: Þri 18. Mar 2003 15:16
af MezzUp
overclocker: hvernig er þetta PSU að standa sig í hljóðlátleika?

Sent: Þri 18. Mar 2003 23:25
af OverClocker
Eyddi 15þús til að fá lágværa tölvu... og eiga nóg power í framtíðinni..
Þetta er hörku græja.. fullt af snúrum.. 3 viftur, 3 stillingar á hraða þeirra, er úr áli (léttir kassann eitthvað)... annars best að lesa um hann á http://vantecusa.com

Það amk heyrist minna í honum en í gömlu tölvunni minni (hárþurrka)... hef ekki annan samanburð..

Er að hugsa að fá mér svona uppfærslu

Sent: Mið 19. Mar 2003 01:06
af Giorgio
HÆHÆ
:8) Processor-------{AMD ATHLON XP 2400+ Retail}
Motherboard---{MSI K7N2G-ILSR}
Memory-------- {512mb PC2700 Kingston}
:lol:
KR um 42000

Sent: Mið 19. Mar 2003 01:12
af Jakob
Congrats dude,
fín vél.

Sent: Mið 19. Mar 2003 01:18
af Giorgio
ER þetta gott verð eða hvað ??KR um 42000

Sent: Mið 19. Mar 2003 02:04
af lakerol
Eina vandamálið er að tölvan er að kvarta yfir því að cpu viftan snúist ekki nógu hratt (er á 2370rpm) en cpu hiti er ca 30-35 gráður.

það getur vel verið að það þurfi að kikja aðeins á bios-inn ég hef séð þetta koma fyrir :wink: