Síða 1 af 1

Apple TV

Sent: Fim 15. Mar 2012 00:43
af bjartur00
Sælir vaktarar.

Ég var að kaupa mér Apple TV. Er með eina spurningu.. Hefði hugsað mér að jailbreaka það svo ég gæti sett up xbmc. Ég hins vegar uppdate-aði græjuna og hún er nú með software version 5.0. Ég sé að það er ekki komin lausn hvernig á að jailbreaka það version og væri því frábært ef ég gæti downgrade-að software-versionið í 4.4.4 og jailbreak-að það svo.
Veit einhver hvernig það er framkvæmt?

Mbkv.

Re: Apple TV

Sent: Fim 15. Mar 2012 02:16
af worghal
er ekki hægt að gera downgrade ?

Re: Apple TV

Sent: Fim 15. Mar 2012 09:37
af Tiger
Ég held þú getir það ekki eins og staðan er í dag. Held þú verðir bara að bíða smá þanngað til 5 verður crackað. Nei held þú getir nefnilega ekki downgrade-að, iTunes búið að loka fyrir það skilst mér (season pass notara allavegana iTunes í þessu ferli) og því ekki hægt.

Re: Apple TV

Sent: Fim 15. Mar 2012 10:08
af Demon
Ég var að jailbreaka mitt apple tv í gær. version 5.0 er í raun 4.4.4. tel ég, ég amk sá bæði þessi version inni hjá mér þegar ég skoðaði nánar.

Fylgdu þessu guide, það virkaði fyrir mig:
http://www.jailbreakappletv.com/forums/ ... sions.html
Að setja xbmc eða eitthvað uppá græjunni eftir jailbreak er svo barnaleikur.

Re: Apple TV

Sent: Fim 15. Mar 2012 12:10
af bjartur00
Takk fyrir að svara svo fljótt.
Þá mun ég prufa þetta Demon, fyrst þú segir að þetta eigi að virka :)

Takk aftur.

Re: Apple TV

Sent: Fim 15. Mar 2012 17:19
af Sera
Demon skrifaði:Ég var að jailbreaka mitt apple tv í gær. version 5.0 er í raun 4.4.4. tel ég, ég amk sá bæði þessi version inni hjá mér þegar ég skoðaði nánar.

Fylgdu þessu guide, það virkaði fyrir mig:
http://www.jailbreakappletv.com/forums/ ... sions.html
Að setja xbmc eða eitthvað uppá græjunni eftir jailbreak er svo barnaleikur.


Ég var að jailbreaka nýtt AppleTV í fyrradag, einmitt með þessari sömu aðferð. Það var reyndar 4.4.4. en samt sem áður notuð sama aðferð. Svínvirkaði.

Re: Apple TV

Sent: Fim 15. Mar 2012 18:32
af zobbah
Mjög góðar leiðbeiningar á http://www.einstein.is