Síða 1 af 1

100hz lcd skjáir

Sent: Þri 31. Jan 2012 13:24
af Vigginn
Daginn, ég er að forvitnast með lcd skjái, sjálfur á ég Benq E2400HD http://reviews.cnet.com/lcd-monitors/benq-e2400hd/4505-3174_7-33325067.html

Ég er búinn að vera leitast eftir 100riða lcd skjá, og hef enn sem komið er bara rekist á 1, http://www.tweaknews.net/reviews/samsung_2233rz_120hz_lcd_monitor_review/
Spurningin mín er, hefur einhver einhverjara reynslu af þessum skjá, eða vitið þið um aðra skjái þarna úti sem skila 100riðum ? Eða á ég að bíða áfram, þarsem þessi sem ég er með í dag er mjög fínn.

fyrirfram þökk

Re: 100hz lcd skjáir

Sent: Þri 31. Jan 2012 14:09
af Victordp
Hann er 120hz en ekki 100.

Re: 100hz lcd skjáir

Sent: Þri 31. Jan 2012 15:04
af astro
Ég er með LG FLATRON W2363D 120Hz 3D

Hef alldrei notað 3D möguleikan í skjánum en nota hann hinsvegar í 100Hz/120Hz í 2D og í leikjum er það eins og vera kominn á gömlu góðu túbuna nema með mikið skýrari skjá.

Ég keypti mér þennan skjá í fyrra þar sem að þessi vera top of the chain með öðrum 2. Minnsta input laggið og svona. Mæli með honum allaveganna.

Re: 100hz lcd skjáir

Sent: Þri 31. Jan 2012 15:09
af Garri
Til hvers að keyra LCD á svona mikilli tíðni?

Ef ég man rétt þá var tíðnin hugsuð fyrir túbu skjánna sem teiknuðu viss margar línur niður eftir sjánum (í þremur hlutum) og mynduðu þannig flökkt sem há tíðni lagaði.. lcd er allt önnur tækni og á ég erfitt með að skilja eftir hverju menn eru að sækjast þarna.. eitthvað sem ég veit ekki eflaust!

Re: 100hz lcd skjáir

Sent: Þri 31. Jan 2012 15:19
af Plushy
Mér finnst amk myndin vera þæginlegri og skýrari með 120hz

Re: 100hz lcd skjáir

Sent: Þri 31. Jan 2012 16:32
af halli7
Plushy skrifaði:Mér finnst amk myndin vera þæginlegri og skýrari með 120hz

x2
Og allt aðrar hreyfingar í leikjum t.d cs.

Re: 100hz lcd skjáir

Sent: Þri 31. Jan 2012 16:52
af Vigginn
Ég er með LG FLATRON W2363D 120Hz 3D

Hef alldrei notað 3D möguleikan í skjánum en nota hann hinsvegar í 100Hz/120Hz í 2D og í leikjum er það eins og vera kominn á gömlu góðu túbuna nema með mikið skýrari skjá.

Ég keypti mér þennan skjá í fyrra þar sem að þessi vera top of the chain með öðrum 2. Minnsta input laggið og svona. Mæli með honum allaveganna.


Hvar verslarðu þennan skjá ? Sem og hverjir voru hinir 2 sem voru top of the chain ?

Re: 100hz lcd skjáir

Sent: Þri 31. Jan 2012 17:01
af astro
Garri skrifaði:Til hvers að keyra LCD á svona mikilli tíðni?

Ef ég man rétt þá var tíðnin hugsuð fyrir túbu skjánna sem teiknuðu viss margar línur niður eftir sjánum (í þremur hlutum) og mynduðu þannig flökkt sem há tíðni lagaði.. lcd er allt önnur tækni og á ég erfitt með að skilja eftir hverju menn eru að sækjast þarna.. eitthvað sem ég veit ekki eflaust!


Ef þú horfir á 60/75Hz LCD skjá í leik við hliðiná 100/120Hz skjá í sama leik þá sérðu muninn, hreyfingarnar eru meira fluid og allt virðist hraðar og meira smooth. Ef þú hefur ekki prufað þetta er erfitt fyrir mig að útskýra þetta.

Vigginn skrifaði:
Ég er með LG FLATRON W2363D 120Hz 3D

Hef alldrei notað 3D möguleikan í skjánum en nota hann hinsvegar í 100Hz/120Hz í 2D og í leikjum er það eins og vera kominn á gömlu góðu túbuna nema með mikið skýrari skjá.

Ég keypti mér þennan skjá í fyrra þar sem að þessi vera top of the chain með öðrum 2. Minnsta input laggið og svona. Mæli með honum allaveganna.


Hvar verslarðu þennan skjá ?


Ég var að vinna í Noregi 2009-2011 og keypti mér hann rétt áður en ég flutti aftur heim og kom með hann. Ég borgaði um 2.000NOK/42.000ISK fyrir hann.