Síða 1 af 1

1x27" vs 2x 24"

Sent: Lau 31. Des 2011 01:07
af Cascade
Hvort er málið,

Ég get fengið Dell U2711, sem er með upplausnina 2560x1440 á 5200 DKK, hinsvegar get ég fengið Dell U2412m (1920x1200) á 2090 DKK stk

U2412m er ekki alveg á sama standard og U2711, það væri U2410, en hann kostar 4000 DKK stykkið, sem mér finnst of mikið, frekar myndi ég borga auka 1000DKK og fá U2711

Hins vegar er ég bara með ferðatölvu (thinkpad t61 og dokku sem skjáirnir munu tengjast í) svo ef ég væri með 2x24" þá þyrfti ég að kaupa usb-tvi tengi, sem meðal annars Lenovo framleiðir svo ég treysti ágætilega, en hann kostar um 700 DKK, svo samtals myndi þetta kosta sama pening.

(Lappinn minn ræður við 2560 x 1440 upplausn, er búinn að checka)

Ég veit að tölvan er ekki öflug, en hins vegar spila ég aldrei tölvuleiki og geri lítið af þungri vinnslu. Aðallega kannski nota Lightroom (ljósmyndast) skoða netið, og svo er ég núna á þessari önn að fara gera meistaraverkefnið mitt, svo það er eiginlega must að ég fái mér einhvern skjá heim, er núna bara með ferðatölvuna og ég nenni ekki að gera neitt skólatengt því mér finnst skjárinn svo lítill). Svo þetta væri aðallega upp á að fá skjápláss(Matlab + word/latex + kennslubók(ebook,pdf), og góðan skjá þegar ég er að vinna með ljósmyndir.

Hvað finnst ykkur, 1x 27" vs 2x24"

Re: 1x27" vs 2x 24"

Sent: Lau 31. Des 2011 10:16
af GuðjónR
1x27 ekki spurning.

Re: 1x27" vs 2x 24"

Sent: Lau 31. Des 2011 13:12
af gardar
1x30"

ég hélt að við værum búnir að ræða þetta :megasmile

Re: 1x27" vs 2x 24"

Sent: Lau 31. Des 2011 13:38
af bulldog
3x30" :)

Re: 1x27" vs 2x 24"

Sent: Lau 31. Des 2011 14:36
af kfc
2X27" :happy

Re: 1x27" vs 2x 24"

Sent: Lau 31. Des 2011 14:56
af lukkuláki
Ég væri frekar sáttur með 2x24"

Er með 1x24" Dell og 1x22" Lenovo í vinnunni við Lenovo fartölvu T61 í Lenovo doggu og 2x24" væri alveg nóg fyrir mig.
Hvaða USB tvi tengi ertu að tala um ?

Re: 1x27" vs 2x 24"

Sent: Lau 31. Des 2011 14:58
af Oak
ég tæki 27" til að fá upplausnina

Re: 1x27" vs 2x 24"

Sent: Lau 31. Des 2011 14:59
af ZoRzEr
Persónubundið en ég myndi taka U2710 alla daga. Bæði að fá betri upplausn og þetta er almennt betri skjár en U2410m. Er sjálfur með U2410 frá Dell og gæti ekki verið mögulega ánægðari. EIna leiðinn væri að fá U27 týpuna ;)

Re: 1x27" vs 2x 24"

Sent: Lau 31. Des 2011 15:03
af Daz
USB->DVI?
Annars ef þú ert að stefna á að hafa mikið á skjánum í einu, þá gæti verið þægilegt að vera með 2 skjái, getur komið sér vel að geta skellt öðrum í portrait (hár og mjór) með t.d. lesefni.

Re: 1x27" vs 2x 24"

Sent: Lau 31. Des 2011 15:07
af gardar
Það er samt margfalt betra að vinna á 2 skjáum en 1..

Þægilegra að fullscreen-a glugga á sitthvorum skjánum frekar en að resize-a glugga í gríð og erg, ekki að það trufli mig reyndar þar sem ég nota tiled window manager :twisted:

Re: 1x27" vs 2x 24"

Sent: Lau 31. Des 2011 16:23
af andresgunn
1x27" með þessari upplausn og ef þú þarft á skjá nr 2 að halda þá ertu alltaf með lappaskjáinn.
Annars er mitt atkvæði ennþá á 30 tommum :D