Síða 1 af 2

Treysti ykkur! vantar leikjavél!

Sent: Mán 07. Jún 2004 04:03
af so
Ok, málið er einfalt. Ég spilaði síðast tölvuleik árið 1992, á 286 tölvuna mína. En vinur minn sem er 15 ára langar að uppfæra vélina sína og því leita ég til ykkar með ráð.

Er búinn að veltast í gegnum þræðina um uppáhalds og bestu leikjarvélarnar og þannig en fæ ekki nóg úr því.

Vantar kassann, ekki skjá og jaðarhluti en vantar það besta miðað við ISL/Kr hverju sinni og þá bestu kaupin miðað við afköst og gæði, erum að tala um cpu, móðurborð, skjákort. minni, disk og grundvallaratriði., en ekki mús og mottu :lol:
Segjum 100 til 150 kall til viðmiðunnar en ekkert er heilagt þegar kemur að draumavélinni.
En alla vega hjálpið mér nú svo ég geti verið fyrirmynd unga mannsins eitthvað áfram.
Amd eða Intel skiptir ekki máli, bara bestu kaup miðað við performance


btw. leikurinn sem ég spilaði ´92 á 286 vélina mína var port off call. :D
Góður tvívíddarleikur, er einhver að spilann í dag :lol: :shock:

Sent: Mán 07. Jún 2004 10:17
af OverClocker
Minn man eftir Ports of Call... góður skipaleikur! :)

Sent: Mán 07. Jún 2004 12:21
af MezzUp
minn var 4 ára þá :shock:

Sent: Mán 07. Jún 2004 21:47
af wICE_man
Fyrst um drauma-leikjavél er að ræða og 150þús krónu efri mörk þá lýtur dæmið svona út fyrir mér:

Örri: AMD Athlon64 3400+ hjá Tölvulistanum (Sérpöntun) - 54.900
Lang öflugasti leikjaörgjörvi sem þú færð hér á landi, tekur P4 3.2EE í nefið í flestum leikjum.
móðurborð: K8NS Pro nforce3-250 hjá Start.is - 14.390
Eitt ódýrasta móðurborðið fyrir A64 örrana og með góða yfirklukkunarmöguleika.
Minni: Mushkin PC3200 Blue 512mb hjá Start.is - 13.900
Traust og ódýrt minni, þó það sé gefið upp sem CL. 2.5 þá má yfirleytt keyra það harðar.
Skjákort: Radeon 9800XT 256MB hjá Start.is - 43.249
Það besta sem þú færð í dag, þó ég myndi sjálfur bíða eftir X800Pro.
HDD: Samsung 120GB Serial ATA 7200RPM hjá Start.is - 10.600Kr
Ódýrir en traustir og 120GB er nóg til að byrja með.
Kassi: ATX Deamon hjá Tölvuvirkni - 9.367
Skuggalega flottur kassi með 350W aflgjafa á góðu verði.

Samtals: 146.406 Krónur

Betri leikjavél er erfitt að fá fyrir þennan pening, þó þú gætir alveg sparað svolítið og fengið næstum jafn góða vél með A64 3000+ og 9800Pro en eins og ég segi, þetta verður varla betra.
[/quote]

Sent: Mán 07. Jún 2004 22:11
af Cicero
kassi: http://computer.is/vorur/4361 veit nú ekki með útlitið en ágætis kassi með 400w psu

Sent: Mán 07. Jún 2004 22:14
af fallen

Sent: Mán 07. Jún 2004 22:44
af GuðjónR
Dual system eins og wICE_man er að lýsa :D

Sent: Þri 08. Jún 2004 00:29
af Cicero
yeah, en fallen hvað varð um hina fallegu myndina þína? hún var rosa :D

Sent: Þri 08. Jún 2004 00:51
af fallen
Cicero skrifaði:yeah, en fallen hvað varð um hina fallegu myndina þína? hún var rosa :D

Það var coverið af Burzum - Filosofem.
Í staðinn setti ég mynd af söngvara Forgotten Tomb, Herr Morbid.

Sent: Þri 08. Jún 2004 00:54
af fallen
En já, stick to the subject.
Þetta er ansi flott vél sem wice_man setti saman, miðað við pening.

Sent: Þri 08. Jún 2004 16:42
af Stebbi_Johannsson
svona yrði vélin mín fyrir 200k

Örgjörvi: AMD 64 3400+ | verð: 45484 kr. | computer.is

Minni: 2x512mb Mushkin DDR400 CL 2.5 | verð: 19310 kr. | start.is

Móðurborð: K8NS Pro nforce3-250 AMD Athlon64 | verð: 14390 kr. | start.is

HDD Master: 36,7gb WD Raptor 10000rpm 8mb | verð:12850 kr. | att.is

HDD Slave: Seagate Barracuda 200GB 7200rpm 8mb | verð: 18337 kr. | tölvuvirkni.net

Skjákort: PowerColor Radeon 9800XT | verð: 43249 kr. | start.is

Hljóðkort: SoundBlaster Audigy2 ZS | verð:12750 kr. | att.is

DVD Skrifari: NEC DVD/RW Multi - Bulk | verð: 9918 |kr. tölvuvirkni.net

DVD Drif: 16x/48x DVD Drif MSI | verð: 4250 kr. | att.is

Floppydrif: Floppy Samsung | verð: 1290 kr. | start.is

Aflgjafi: 360w, fylgir með kassa | verð: 0 kr. | att.is

Turn: Dragon Big - svartur | verð: 14950 kr. | att.is

síðan á eftir að kaupa viftur og svona :wink:

Sent: Þri 08. Jún 2004 16:43
af Stebbi_Johannsson
var samtals 196778 kr.

Sent: Þri 08. Jún 2004 19:00
af fallen
Eina sem ég sé að þessu er CL2.5, gæti alveg eins fengið þér CL2 á þessari vél.

Sent: Þri 08. Jún 2004 20:25
af wICE_man
Þetta Mushkin minni getur oft keyrt á CL 2 stillingum á meðan að sum CL 2 minni ná því ekki :P

Sent: Þri 08. Jún 2004 22:50
af GuðjónR
En finnur maður einhvern mun? þ.e. á 2.5 og 2.0 ?

Sent: Mið 09. Jún 2004 00:12
af MezzUp
GuðjónR skrifaði:En finnur maður einhvern mun? þ.e. á 2.5 og 2.0 ?

held það, hef heyrt að það sé betra að vera með 266/333 (man ekki) CL2 minni frekar en 400 CL2.5

Sent: Mið 09. Jún 2004 17:48
af wICE_man
333MHz CL2 er betra en 400MHz CL3, en sennilega ekki betra en 400MHz CL2.5 nema í afmörkuðum tilfellum.

Sent: Mið 09. Jún 2004 19:17
af GuðjónR
En þegar þið segið betra...eru þið þá að tala um að þið getið mælt muninn með benchmark forritum eða er þetta eitthvað sem maður finnur og skiptir mann máli?
Það miklu máli að ástæða er til að spá í þetta við kaup á RAM ?

Sent: Mið 09. Jún 2004 19:29
af axyne

Sent: Mið 09. Jún 2004 19:48
af MezzUp
GuðjónR skrifaði:En þegar þið segið betra...eru þið þá að tala um að þið getið mælt muninn með benchmark forritum eða er þetta eitthvað sem maður finnur og skiptir mann máli?
Það miklu máli að ástæða er til að spá í þetta við kaup á RAM ?

held að við séum aðallega að tala um benchmark mun, kannski finnur maður eitthvað í þyngri forritum?

Sent: Fim 10. Jún 2004 00:07
af wICE_man
Tommi segir:
The moral of the story is clear: while we still recommend buying brand-name products to ensure compatibility (especially for dual-channel systems), but you don't necessarily need the fastest timings. In today's market, you only need fast modules if your computer will be computing a lot or encoding video. For any other application, slower RAM will definitely cut the mustard.


Sent: Fös 11. Jún 2004 16:52
af so
Takk fyrir svörin strákar og fyrir þína hugmynd wICE_man. Örugglega skotheld græja. Ég var reyndar búinn að reyna að telja hann af 64 örgjörfanum :oops:
Fannst sá pakki vera full dýr og hélt kannski að miðan við performance væri skynsamlegra að fara í ódýrari pakka. Það er að segja að síðustu prósentin væru of dýru verði keypt, en ég sé að ég er snarlega rekinn í kútinn með það :D
Feiri hugmyndir

Sent: Lau 12. Jún 2004 03:14
af J0ssari
Alls ekki taka Ati 9800XT núna, X800 PRO alveg að koma.

Meira að seigja komið á skrá hjá tolvuvirkni.net.
http://www.tolvuvirkni.net/ip?inc=view&flo=product&id_top=22&id_sub=1183&topl=10&page=1&viewsing=ok&head_topnav=VGA_PCX800PRO
PowerColorTM RADEON™ X800 PRO 256MB GDDR3 Kr. 49.900
"ATH!
Þessi vara er væntanleg hinsvegar er hægt að panta hér á vef okkar og hringt verður í viðkomandi þegar að vara er komin í hús!"

Miklu betra verð/afköst heldur en 9800. En ef svo þyrfti að fara, tæki ég persónulega ódýrasta 9800pro frekar en 9800XT.

Sent: Lau 12. Jún 2004 03:19
af fallen
Eru ekki að koma like x800 pro, xt og einhverjar þannig týpur ?
og hvað af þeim er bezt?

Sent: Lau 12. Jún 2004 03:38
af gnarr
skrítið að þetta kort sé bara tæðum 10.000kalli dýrara en 9800xt.. 6800ultra verður held ég eins og nafnið segir.. ultra dýrt.