Síða 1 af 1

Vél sem ræður við Battlefield 3, 100-120k

Sent: Mið 07. Des 2011 23:56
af Six
Góðann daginn/kvöldið

Bróðir minn langar í tölvu sem höndlar BF3 vel. Er þetta mögulegt fyrir um 100-120 þúsund krónur?
Hann á bara gamla tölvu svo hann getur ekki nýtt neitt.

Hann þarf mögulega ekki að kaupa kassa.

Hvað er svona minimum til að keyra BF3 ef hann kaupir allt nýtt?

gæti hann nýtt t.d

viewtopic.php?f=11&t=43794

Re: Battlefield 3

Sent: Fim 08. Des 2011 00:03
af Danni V8
Q6600 örgjörvinn dugar. Flestir Quad Core. Góður vinur minn var með Q6600 og 8800 GTS og gat spilað. Varð að vísu að vera í lágri upplausn og með grafíkina stillta alla leið niður, en hann gat spilað leikinn.

Ég myndi skjóta á að vélin með 6gb vinnslu minnið í auglýsingunni sem þú bentir á hentar vel. Síðan kaupa gott skjákort, GTX 560Ti t.d. eða eitthvað sambærilegt AMD kort ef þú vilt það frekar. Kann ekkert á AMD kortin svo ég veit ekki hvað er sambærilegt þar á bæ.

Re: Battlefield 3

Sent: Fim 08. Des 2011 01:03
af ScareCrow
Ætti nú líklegast ekkert að vera vesen að finna einhverja ódýra vél hjá honum. Ég var einmitt að selja gömlu vélina mína (i7 930, 16GB minni, ATi radeon 5850 skjákort, X58 móðurborð) á 80þús.. þyrftir í rauninni bara að kaupa aflgjafa.. Tók bf3 í high á þessari vél ef ég man rétt.

Re: Battlefield 3

Sent: Fim 08. Des 2011 01:15
af rapport
Ég er með q6600 g0 í 3,0Ghz og 5750 kort og keyri hann, en það tekur á og allt fer að hitna töluvert...

Mesti munurinn var að fá SSD í stað tveggja HDD í RAID1, þá loadast leikurinn miklu hraðar.

Re: Battlefield 3

Sent: Þri 13. Des 2011 23:22
af Six
Hvernig væri þessi pakki að höndla battlefield?

http://www.tolvuvirkni.is/ip?inc=viewpr ... =TURN_I121

láta uppfæra skjákortið í 560ti og 8gb Ram

Re: Battlefield 3

Sent: Þri 13. Des 2011 23:35
af Raidmax
Six skrifaði:Hvernig væri þessi pakki að höndla battlefield?

http://www.tolvuvirkni.is/ip?inc=viewpr ... =TURN_I121

láta uppfæra skjákortið í 560ti og 8gb Ram


Þá verðuru bara helvíti góður :D