Síða 1 af 1

Skjákort hætt að virka

Sent: Mið 30. Nóv 2011 18:03
af Potatokiller
Skjákortið mitt tók allt í einu upp á því að hætta að virka. Villan sem kemur upp er : This device cannot start. (Code 10)
Ég er með nvidia Geforce 8800 GTS

Fyrst byrjaði hún á því að frjósa skömmu eftir að hún var búin að ræsa sig og svo stimplaði skjákortið sig alveg út. Nú eru gular rendur lóðrétt á skjáinn.

Hvað getur verið að og hvað get ég gert ?

Re: Skjákort hætt að virka

Sent: Mið 30. Nóv 2011 18:06
af vesley
Þetta lýsir sér eins og skjákortið sé bilað, en hef ekki hugmynd hvað það er á skjákortinu sem er að valda biluninni.

Gæti reynt að baka skjákortið. Hef gert það nokkrum sinnum og hefur skjákortið mjög oft virkað eftir bakstur.

Re: Skjákort hætt að virka

Sent: Mið 30. Nóv 2011 18:48
af Sphinx

Re: Skjákort hætt að virka

Sent: Fim 01. Des 2011 18:49
af Potatokiller
Þarf ég þá að redda mér kælikremi ef baksturinn virkar, til að gluða á eitthvað af þessu dóti ? :-k

Re: Skjákort hætt að virka

Sent: Fim 01. Des 2011 19:57
af Sphinx
Potatokiller skrifaði:Þarf ég þá að redda mér kælikremi ef baksturinn virkar, til að gluða á eitthvað af þessu dóti ? :-k



já þarft að setja kælikrem aftur ef þú tekur kælinguna af. kostar ekki nema einhvern 500kr i tölvuverslunum

Re: Skjákort hætt að virka

Sent: Fim 01. Des 2011 20:01
af Potatokiller
Ef við gefum okkur að þessi bakstur takist hjá mér, er líklegt að þetta endist eitthvað af ráði eða er ég betur settur að kaupa mér bara nýtt kort og sleppa við vesenið ?