Síða 1 af 1

Of mikill hiti á Amd Athlon x2 5200 örgjörva? (AM2)

Sent: Fös 28. Okt 2011 21:37
af DJOli
Mynduð þið segja að 77°c væri of mikill (full load) hiti á Amd Athlon x2 5200+ örgjörva?.

Aðeins nánari uppl. um örgjörvann:
65nm týpan, Brisbane.
Stock kæling
Overclockaður úr 2.7ghz í 2.8ghz.

Re: Of mikill hiti á Amd Athlon x2 5200 örgjörva? (AM2)

Sent: Fös 28. Okt 2011 21:44
af davinekk
Þetta er aðeins of mikið.. Prófaðu að setja annan kæling og checkka svo :)

Re: Of mikill hiti á Amd Athlon x2 5200 örgjörva? (AM2)

Sent: Fös 28. Okt 2011 21:50
af Bioeight
Var með svona örgjörva, hann fór ekki yfir 60° í full load og var bara með einhverja venjulega coolermaster viftu svipaða AMD stock viftunni. Ég var samt ekki að yfirklukka en 77°C finnst mér of mikið fyrir þennan örgjörva.

Re: Of mikill hiti á Amd Athlon x2 5200 örgjörva? (AM2)

Sent: Fös 28. Okt 2011 21:54
af davinekk
Bioeight skrifaði:Var með svona örgjörva, hann fór ekki yfir 60° í full load og var bara með einhverja venjulega coolermaster viftu svipaða AMD stock viftunni. Ég var samt ekki að yfirklukka en 77°C finnst mér of mikið fyrir þennan örgjörva.


x2

Re: Of mikill hiti á Amd Athlon x2 5200 örgjörva? (AM2)

Sent: Fös 28. Okt 2011 23:03
af ScareCrow
77° Er alltof mikið, þó þú hafir nú overclockað svona lítið ætti hitinn ekkert að vera svona hár, ertu búinn að skipta um kælikrem, hreinsa allar viftur og svona basic hjá þér?

Re: Of mikill hiti á Amd Athlon x2 5200 örgjörva? (AM2)

Sent: Lau 29. Okt 2011 17:01
af DJOli
ætla að kaupa mér nýtt kælikrem á mánudag, ætla þá að tala allt elementið og þrífa það :)

Re: Of mikill hiti á Amd Athlon x2 5200 örgjörva? (AM2)

Sent: Lau 05. Nóv 2011 06:18
af DJOli
Var að rendera 15mín myndband í Sony Vegas Studio 9 Platinum áðan, og viti menn, örgjörvakvikindið fór upp í 94°c samkvæmt Speedfan.

Ekkert gerðist, enginn hægagangur, sjálfvirkt downclock, eða bsod.

Kaupi goodshit kælikrem á mánudag.

Re: Of mikill hiti á Amd Athlon x2 5200 örgjörva? (AM2)

Sent: Lau 05. Nóv 2011 08:28
af Kristján
http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=1542

og eins svo i leiðinni, fyrst þú ert að rendera og svona og setur mikið load á örgjörfann.

svo þarf roslega lítið ryk á svona stock kælingar til að þær verði næstum óvirkar.

Re: Of mikill hiti á Amd Athlon x2 5200 örgjörva? (AM2)

Sent: Sun 06. Nóv 2011 04:40
af DJOli
Tók tölvuna úr sambandi til að rykhreinsa og tel mig hafa drepið annað hvort skjákortið eða móðurborðið.

Fæ ekkert merki á skjáinn, engin ljós á lyklaborðinu blikka er ég kveiki á tölvunni, þó svo að það hljómi eins og allt sé með felldu.

Búinn að cleara c-mos & taka batteríið úr, og setja það aftur í.

Búinn að taka skjákortið úr svona 5 sinnum og tengja það aftur...búinn að prufa að reyna að ræsa tölvuna án skjákorts til að sjá hvort ég fái ljós á lyklaborðið, og nope, ekkert bólar á því.

Hef einnig prufað USB lyklaborð, en það endaði eins, engin ljós.


Einhverjar tillögur?

Annars fer ég í nánari bilanagreiningu á morgun, á gamalt rusl móðurborð og annað skjákort heima hjá foreldrum mínum, nenni hinsvegar ekki að keyra þangað núna.

Re: Of mikill hiti á Amd Athlon x2 5200 örgjörva? (AM2)

Sent: Sun 06. Nóv 2011 07:57
af Kristján
tókstu eitthvað úr sambandi við moboið sem þú gleymdir að setja í samband aftur..

skoðaðu allar tengingar vel.

Re: Of mikill hiti á Amd Athlon x2 5200 örgjörva? (AM2)

Sent: Sun 06. Nóv 2011 08:06
af Bioeight
Athuga hvort:
1. það hafi losnað power tengi á móðurborðinu, þá aðallega 4-pin/8-pin auka tengið.
2. eitthvað hafi farið á móðurborðið sem er að leiða út.
3. örgjörvinn situr nógu fallega í ef þú losaðir hann.

Hægt að lesa út úr þessu að þú hafir bara tekið tölvuna úr sambandi og ekkert annað, umfang aðgerðanna er ekki alveg ljóst, ef það er raunin þá gildir það sem stendur hér fyrir ofan ekki. Kemur enginn bípibíp kóði eða er kóði á móðurborðinu?

Re: Of mikill hiti á Amd Athlon x2 5200 örgjörva? (AM2)

Sent: Sun 06. Nóv 2011 18:15
af DJOli
Bioeight skrifaði:Athuga hvort:
1. það hafi losnað power tengi á móðurborðinu, þá aðallega 4-pin/8-pin auka tengið.
2. eitthvað hafi farið á móðurborðið sem er að leiða út.
3. örgjörvinn situr nógu fallega í ef þú losaðir hann.

Hægt að lesa út úr þessu að þú hafir bara tekið tölvuna úr sambandi og ekkert annað, umfang aðgerðanna er ekki alveg ljóst, ef það er raunin þá gildir það sem stendur hér fyrir ofan ekki. Kemur enginn bípibíp kóði eða er kóði á móðurborðinu?



Búinn að skoða öll tengi á móðurborðinu (tók þau úr sambandi, og tengdi aftur, bara til að vera 100% viss.
Losaði hitasökkulinn af örgjörvanum, tók örgjörvann úr stæðinu sínu, setti hann aftur í, handbremsuna niður & hitasökkulinn yfir aftur.

Er ekki með kælikrem í augnablikinu, en þetta verður svona temporary þartil á mánudag, þegar ég kaupi mér loks kælikrem, enda verður tölvan ekkert í gangi í klukkutíma eða tvo fyrr en ég fæ kælikrem, bara rétt svo til að sjá hvort ég hafi actually drepið hana.

Tengdi líka SPEAKER tengið núna, veit ekki hve nauðsynlegt það er en mehh, gerði það allavega.

Re: Of mikill hiti á Amd Athlon x2 5200 örgjörva? (AM2)

Sent: Sun 06. Nóv 2011 18:29
af Bioeight
Þá myndi ég hætta að reyna núna og bíða þangað til þú ert búinn að setja nýtt kælikrem. Ekki öruggt að nota ekkert kælikrem.

Re: Of mikill hiti á Amd Athlon x2 5200 örgjörva? (AM2)

Sent: Sun 06. Nóv 2011 21:14
af DJOli
Prufaði bara að ræsa vélina í snöggu bragði.

Prufaði fyrst með USB Lyklaborð, usb mús, netkapal og skjáinn tengdan.
Svo með PS/2 Lyklaborð, etc.
Svo bæði lyklaborðin, etc.


Fékk aldrei ljós á neitt, hvorki músina né nein "blikkljós" á lyklaborðin.

og ekkert hátalarapíp.

Edit: 11/11/11 kl. 19:42.

Sendi aflgjafan suður til kísildals, þeir eru nú líklega komnir með bæði aflgjafann & móðurborðið, svo ætla þeir víst að senda móðurborðið og nýjan aflgjafa til baka þegar reddast úr þessu.