Síða 1 af 1

Hve marga harða diska?

Sent: Fös 21. Maí 2004 15:30
af Segullinn
Hve marga harða diska er hægt að tengja saman á eina IDE, það eru 2 cd-rom á hinum IDE. Er til einhver kapall eða eitthvað til að tengja saman fleiri en 2 Harða diska saman?? Ef já, hvað heitir það og hvar fæst það.

Sent: Fös 21. Maí 2004 16:04
af skipio
Hægt að hafa samtals 4 diska í tölvu, þ.e. 2 diska á hvoru IDE tenginu á móðurborðinu. Þú ert að nota annað IDE tengið undir geisladrif svo þú getur því haft 2 diska án þess að fara út í frekari fjárfestingar.
Ef þú vilt hafa fleiri diska verður þú að kaupa auka IDE stýrispjald eða fá þér USB/Firewire disk.

EDIT: Þ.e.a.s. flest móðurborð (lesist: þitt móðurborð) eru með 2 IDE tengjum og er hægt að tengja tvö tæki við hvort tengi. Sum móðurborð eru svo líka með nokkur SATA tengi og jafnvel fleiri IDE tengi.

Sent: Fös 21. Maí 2004 16:39
af Arnar
Hmm skipio hvaða tölvu ? Eða hvaða móðurborð ?

Ég get haft 10HDD

4IDE og 6SATA...

Sent: Fös 21. Maí 2004 17:54
af pjesi
4 IDE og 4 SATA hér í móðurborðið