Síða 1 af 1

Skjákorta kaup pælingar :P

Sent: Mið 19. Maí 2004 01:46
af KinD^
okey næstu mánaðrmót er smá uppfærslu tími :S það sem ég var að pæla að kaupa er skjákort og helst í ati seríuni en þá er spurningin hvaða kort er sniðugast að kaupa ... mig langar svolítið í 9800XT en hvað er ég að græða á XT það sem PRO hefur ekki ? er það eithvað svo lítið að ég tek ekki eftir því nema verðið eða hvað ? gætuði kanski bennt mér á nokkur kort sem þið haldið að séuð betri en önnur og afhverju, látið allt flakka verð skiptir voða litlu meðan ég er að fá ábendingar og stuff hjá ykkur :) það má koma seinna þegar maður er kominn með debetkortið í búðina :P

edit: æji þessi korkur hefði kanski átt að fara í skjákort/hljóðkort.... þráðinn.

Sent: Mið 19. Maí 2004 09:29
af Stutturdreki
ATI XT kortin hafa yfirleitt 'bara' hærri klukkuhraða, bæði á minni og core, sem gefur náttúrulega aðeins betri afköst. Gæði kortana sem slík eru alveg þau sömu að öðruleiti

Passaðu þig bara á því að rugla ekki saman við Geforce XT..

Persónulega fannst mér gott að skoða hjá Tomshardware.. þeir voru með svona 'roundup' á skjákortum, mjög gagnlegt. Specar og mælingar á svona 15-20 kortum. Tók bara tölurnar á kortunum sem ég hafði áhuga á og sló inn í excel, setti svo upp í línurit. Svo spáði ég í perfomance vs. verð :)

Sent: Mið 19. Maí 2004 16:58
af Steini
Tja ef peningar skipta ekki máli er þá ekki málið að fá sér x800 xt þegar það kemur?

Sent: Mið 19. Maí 2004 17:44
af dadik
Steini skrifaði:Tja ef peningar skipta ekki máli er þá ekki málið að fá sér x800 xt þegar það kemur?


Jújú, en málið er að þú þarft eiginlega að vera með top-of-the-line cpu til að finna einhvern mun milli 9800XT og X800. Ef þú ert með t.d. XP 2500 eða sambærilegan kubb skiptir nánast engu máli hvort kortið þú velur.

Sent: Fös 21. Maí 2004 22:00
af Axel
Bíddu frekar eftir x800 kortinu.
Það á víst að performanca mikið betur en Radeon 9800xt.
x800 er kortið sem ég er að bíða eftir en Radeon 9800xt kortið á víst eftir að falla frekar mikið í verði þannig það yrðu kannski betri kaup :p

Sent: Mið 26. Maí 2004 10:48
af ErectuZ
Ég líka, reyndar. En ekki til að kaupa það. Þegar þau koma þá falla 9800PRO í verði og þá kaupi ég það :)

Sent: Mið 26. Maí 2004 20:12
af OverClocker
Ég er ekkert viss um að 9800xt hrapi í verði.. þeir taka það eflaust út af markaðnum eins og 9700pro á sínum tíma.

Sent: Mið 26. Maí 2004 22:33
af Axel
OverClocker skrifaði:Ég er ekkert viss um að 9800xt hrapi í verði.. þeir taka það eflaust út af markaðnum eins og 9700pro á sínum tíma.


efast stórlega um það...