Síða 1 af 1
Besti 27" leikjaskjárinn?
Sent: Fös 16. Sep 2011 15:57
af emmi
Daginn, er að leita mér að einhverjum góðum 27" skjá fyrir tölvuleikina, með hverjum mælið þið?
Re: Besti 27" leikjaskjárinn?
Sent: Fös 16. Sep 2011 16:03
af GuðjónR
Er ekki apple skjárinn fínn í leikina?
Annars sá ég
þennan í Tölvutækni um daginn....og fannst hann verulega flottur.
Re: Besti 27" leikjaskjárinn?
Sent: Fös 16. Sep 2011 16:18
af mundivalur
GuðjónR skrifaði:Er ekki apple skjárinn fínn í leikina?
Annars sá ég
þennan í Tölvutækni um daginn....og fannst hann verulega flottur.
Hann virðist vera koma vel út hjá vaktar mönnum
Hann er á listanum mínum
Tölvutek eru búnir að hækka hann í verði hjá sér var á 59þ kominn í 64þ
en það er alltaf Buy.is
Re: Besti 27" leikjaskjárinn?
Sent: Fös 16. Sep 2011 16:20
af GuðjónR
Mér finnst nú 60k +- einhverjir þúsundkallar ekki mikið fyrir 27" klassa leikjaskjá...
Re: Besti 27" leikjaskjárinn?
Sent: Fös 16. Sep 2011 16:39
af worghal
Re: Besti 27" leikjaskjárinn?
Sent: Fös 16. Sep 2011 16:52
af chaplin
worghal skrifaði:http://buy.is/product.php?id_product=9208134
2560x1440 upplausn
Response time: 12 ms
Re: Besti 27" leikjaskjárinn?
Sent: Fös 16. Sep 2011 17:03
af lollipop0
Re: Besti 27" leikjaskjárinn?
Sent: Fös 16. Sep 2011 17:04
af emmi
Apple skjárinn er góður, hef prófað hann í leikjum og fann ekki fyrir neinu laggi eða ghosting. Hann er hinsvegar of dýr fyrir mig, ætla mest að eyða 70-80k þannig að þessi Samsung lúkkar vel. Hef heyrt ágætar sögur af Asus skjánunum líka. Verst bara að þessir skjáir styðja ekki meira en 1920x1080 upplausn!
Re: Besti 27" leikjaskjárinn?
Sent: Fös 16. Sep 2011 17:11
af audiophile
27" með 1920x1080 er bara sóun. Annaðhvort halda sig við 24" eða fara í 27" með 2560x1440/1600
Re: Besti 27" leikjaskjárinn?
Sent: Fös 16. Sep 2011 17:35
af GuðjónR
emmi skrifaði:Apple skjárinn er góður, hef prófað hann í leikjum og fann ekki fyrir neinu laggi eða ghosting. Hann er hinsvegar of dýr fyrir mig,
Síðan hvenær varð tölvu/tækni dót of dýrt fyrir þig?
emmi skrifaði:ætla mest að eyða 70-80k þannig að þessi Samsung lúkkar vel.
Já hann er mjög fallegur, sérstaklega fannst mér rauða línan á jaðri glæra plastins (úthringurinn) töff...
emmi skrifaði:Hef heyrt ágætar sögur af Asus skjánunum líka. Verst bara að þessir skjáir styðja ekki meira en 1920x1080 upplausn!
Er það ekki feiki nóg upplausn fyrir leiki?
Stundum finnst mér native upplausnin í 27" iMac of há, þ.e. pixlarnir of litlir...maður þarf að rýna í skjáinn til að sjá...
Re: Besti 27" leikjaskjárinn?
Sent: Fös 16. Sep 2011 17:41
af emmi
Hehe, get bara ekki réttlætt ~200k skjá undir leikjaspilun, gerði það einu sinni en ekki aftur, vélin verður einfaldlega ekki notuð nema í það. Ég nota iMac'inn í allt annað.
Re: Besti 27" leikjaskjárinn?
Sent: Fös 16. Sep 2011 17:44
af mundivalur
audiophile skrifaði:27" með 1920x1080 er bara sóun. Annaðhvort halda sig við 24" eða fara í 27" með 2560x1440/1600
En maður sem hefur ekki séð 2560x1440 er örugglega ánægður
og @ GuðjónRich þetta eru 10þ. íslkr +kanski póstsending,hægt að fá dót fyrir þann aur
Asus skjárinn er með grófari pixla,segir maður það ekki!
Re: Besti 27" leikjaskjárinn?
Sent: Fös 16. Sep 2011 17:50
af tölvukallin
emmi skrifaði:Apple skjárinn er góður, hef prófað hann í leikjum og fann ekki fyrir neinu laggi eða ghosting. Hann er hinsvegar of dýr fyrir mig, ætla mest að eyða 70-80k þannig að þessi Samsung lúkkar vel. Hef heyrt ágætar sögur af Asus skjánunum líka. Verst bara að þessir skjáir styðja ekki meira en 1920x1080 upplausn!
virkar apple skjárinn í pc þarf bara DisplayPort ?
Re: Besti 27" leikjaskjárinn?
Sent: Fös 16. Sep 2011 17:53
af emmi
Amm, Apple skjárinn sem er með DisplayPort tengi virkar í PC. Skjákortið verður hinsvegar að vera með DisplayPort, sem ATi kortin hafa. Nema auðvitað að það sé til einhver converter.
Re: Besti 27" leikjaskjárinn?
Sent: Fös 16. Sep 2011 18:14
af GuðjónR
Mér sýnist nú allir 27" skjáirnir sem í boði eru vera 1920x1080 í upplausn nema Apple skjárinn. Og já...~200k skjár í leiki only er overkill...
Ef ég væri að kaupa leikjaskjá í dag þá færi ég í Samsung ekki spurning, ég átti 25.5" gaurinn frá Samsung áður en ég veiktist af Apple syndrome og hann er frábær, unglingurinn á heimilinu er ennþá að nota hann.