Síða 1 af 1
Prentari, Bang for the buck.
Sent: Sun 11. Sep 2011 21:04
af GTi
Sælir. Er að leita mér að ódýrum prentara.
Er þá bara að pæla í að nota hann til að prenta út glósur og verkefni. Þannig að ég þarf ekki þessa hi-def prentlausn.
Re: Prentari, Bang for the buck.
Sent: Sun 11. Sep 2011 21:13
af Athena.V8
http://www.tolvulistinn.is/vara/19960Þessi er að gera sig hjá okkur
Fínt í svarthvítt og lituð blöð s.s. engar ljósmyndir
Re: Prentari, Bang for the buck.
Sent: Sun 11. Sep 2011 21:14
af biturk
galli við þennan er að hylkin eru dýr og það er bara eitt litarhylki.........borgar sig varla að kaupa hylki í hann
Re: Prentari, Bang for the buck.
Sent: Sun 11. Sep 2011 21:17
af Athena.V8
biturk skrifaði:galli við þennan er að hylkin eru dýr og það er bara eitt litarhylki.........borgar sig varla að kaupa hylki í hann
Mín hylki eru enn lifandi eftir nær 9 mánuði
Fínt ef þú ert ekki að fara nota hann mikið t.d fyrir einstaka glósur etc.
Re: Prentari, Bang for the buck.
Sent: Mán 12. Sep 2011 10:38
af GTi
Já, ég er ekki að tala um einstaka glósur.
Er að tala um c.a. 100-150 blöð á viku. Ritgerðir, verkefni, glósur o.s.frv.
Re: Prentari, Bang for the buck.
Sent: Mán 12. Sep 2011 10:41
af Athena.V8
GTi skrifaði:Já, ég er ekki að tala um einstaka glósur.
Er að tala um c.a. 100-150 blöð á viku. Ritgerðir, verkefni, glósur o.s.frv.
Prentarinn :
http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=24197Hylkin :
http://www.tolvutek.is/advanced_search_ ... 21&x=7&y=6
Re: Prentari, Bang for the buck.
Sent: Mán 12. Sep 2011 11:20
af Phanto
Er þá ekki laser málið?
Re: Prentari, Bang for the buck.
Sent: Mán 12. Sep 2011 11:25
af GTi
Ég skoðaði einmitt einn laser hjá Nýherja.
Toner kostar 13900 í þann sem ég skoðaði.
Hann dugir í 1650 blöð. - Sem gerir 8,42 kr/blað.
Er að vonast til að komast mun lægra en það.
Re: Prentari, Bang for the buck.
Sent: Mán 12. Sep 2011 12:32
af teitan
http://tl.is/vara/21219Ég mæli með þessum, mjög nettur og fín gæði á prentuninni.
Re: Prentari, Bang for the buck.
Sent: Mán 12. Sep 2011 13:36
af lukkuláki
teitan skrifaði:http://tl.is/vara/21219
Ég mæli með þessum, mjög nettur og fín gæði á prentuninni.
Kemur með 700bls hylki en nýtt 1500 bls hylki kostar það sama og nýr prentari með 700 bls. hylki.
Þetta er málið ef menn þurfa ekki litprentun !
Re: Prentari, Bang for the buck.
Sent: Fim 22. Sep 2011 21:29
af AngryMachine
lukkuláki skrifaði:teitan skrifaði:http://tl.is/vara/21219
Ég mæli með þessum, mjög nettur og fín gæði á prentuninni.
Kemur með 700bls hylki en nýtt 1500 bls hylki kostar það sama og nýr prentari með 700 bls. hylki.
Þetta er málið ef menn þurfa ekki litprentun !
Ég hef átt tvo Samsung laser prentara í nokkur ár og er afskaplega ánægður með frammistöðu þeirra. Þessi sem teitan bendir á er fyrirferðalítill og nettur, fínt bang 4 buck. Og ef þú ert bara að prenta s/h þá er laser eini skynsamlegi kosturinn - eftir að hafa átt laser munt þú aldrei vilja snúa aftur í blekprentara.
Varðandi hylkin - með því að nota refills (kaupa t.d. á Ebay) þá er hægt að pressa rekstrakostnaðinn niður í skít og kanil.
Re: Prentari, Bang for the buck.
Sent: Fim 22. Sep 2011 21:36
af schaferman
færð þér ódýrustu gerð að HP prentara og síðan pantar þú blek í brúsum að utan og fyllir á hylkin sjálfur,, hef gert það lengi eitt áfyllingarsett kostar svipað og eitt hylki hér,, en dugar til að fylla á 10-12 sinnum á sama hilkið