Síða 1 af 1
apg raufar
Sent: Mið 12. Maí 2004 14:30
af drapskind
Mér var sagt að Radeon9600 XT 128MB þyrfti 8x apg raufar, ég er með 4x á móðurborðinu mínu. Þarf ég þá að kaupa nýtt móðurborð eða er hægt að gera eitthvað annað?
Sent: Mið 12. Maí 2004 14:40
af Bendill
Nei, aldeilis ekki... Skjákortið er gert fyrir 8x AGP en virkar samt í 4x og 2x AGP, bara ekki eins vel því það hefur ekki úr eins mikilli bandvídd að moða. Þú myndir taka eftir því í þyngstu leikjunum
Sent: Mið 12. Maí 2004 14:41
af Stutturdreki
Gengur næstum örugglega í 4x agp líka, kíktu bara á heimasíðu framleiðandans eða
http://www.ati.com
Og ekki hafa áhyggjur af 8x agp.. las mjög áhugaverða grein á Tomshardware "
um dagin" þar sem var sýnt fram á að með núverandi tækni er sára lítill munur í afköstum á milli 4x og 8x þótt 8x hafi töluvert meiri gagnafluttningshraða..
Sent: Mið 12. Maí 2004 14:45
af drapskind
Takk fyrir hjálpina
Sent: Mið 12. Maí 2004 14:55
af axyne
skjákort í dag með 128 eða 256 mb inni nýta ekki lengur jafnvel 8x Agp hraðann. kortin hafa í raun nóg minni sjálf svo þau þurfa ekki að nota vinnsluminni tölvunnar.
þegar kort voru með 32-64 þá voru sum textures of stór til að geta geymd þau í minninu í skjákorti og varð að geyma þau í vinnsluminni tölvunnar. þá skipti máli hver hraðinn var á milli skjákorts og vinnsluminnis. því kortin eru sífelt að lesa á milli aftur og aftur.
svo er auðvitað spurning um leiki framtíðarinnar. en í dag myndi ég ekki vera að hafa neinar áhyggjur.
Sent: Mið 12. Maí 2004 16:22
af vjoz
ég er að nota 9600XT á AGP 4X
alltílagi með það
Sent: Mið 12. Maí 2004 17:15
af Axel
vjoz skrifaði:ég er að nota 9600XT á AGP 4X
alltílagi með það
why 8x???
Sent: Fim 13. Maí 2004 00:19
af Vilezhout
Bendill skrifaði:Nei, aldeilis ekki... Skjákortið er gert fyrir 8x AGP en virkar samt í 4x og 2x AGP, bara ekki eins vel því það hefur ekki úr eins mikilli bandvídd að moða. Þú myndir taka eftir því í þyngstu leikjunum
er ekki annað lag á 2x apg rauf eða er ég bara að bulla að venju ?
Sent: Fim 13. Maí 2004 09:21
af so
@ Vilezhout. Raufarnar eru eins. X er bara margföldun á brautarhraða
Sent: Fös 14. Maí 2004 20:16
af Nemesis
Hins vegar keyra bara 9600 og 9800 kortin á 8x eða 4x, ekki 2x (held ég alveg örugglega).
Það er smá munur
Sent: Fös 14. Maí 2004 20:20
af Melrakki
Það er líka spurning um hvaða spennu AGP raufin gefur, T.d. mega eldri AGP kort oft ekki nota raufarnar á nýrri móðurborðum
Sent: Fös 14. Maí 2004 20:23
af gnarr
uhh.. jú. málið er bara að sum móðurborð styðja ekki agp 2x, sem notar hærri spennu. ef þú mydnir setja agp2x í 8x móðurborð sem styður bara 4x og 8x, þá er raufin þanni gða kortið passar ekki í(búið að bæta við svona auka notch í 4x og 8x), og ef það mydni passa, þá myndi einfaldlega ekki kveikna á því, því kortið væri ekki að fá nógu mikið rafmagn.
Re: Það er smá munur
Sent: Lau 15. Maí 2004 15:43
af ganjha
Melrakki skrifaði:Það er líka spurning um hvaða spennu AGP raufin gefur, T.d. mega eldri AGP kort oft ekki nota raufarnar á nýrri móðurborðum
Einmitt.
Eldri AGP kort og raufar notuðu 3.3v minnir mig.
Nýrri útgáfur nota 1.5v og 0.8v
Re: Það er smá munur
Sent: Lau 15. Maí 2004 15:53
af axyne
ganjha skrifaði:Melrakki skrifaði:Það er líka spurning um hvaða spennu AGP raufin gefur, T.d. mega eldri AGP kort oft ekki nota raufarnar á nýrri móðurborðum
Einmitt.
Eldri AGP kort og raufar notuðu 3.3v minnir mig.
Nýrri útgáfur nota 1.5v og 0.8v
ég brenndi mig einu sinni á þessu. var að setja saman vél sem átti að nýta skjákort úr gamalli vél. móðurborðið eyðilagðist því miður. dáldið skemmtilegt móðurborð samt Aopen borð sem var með raddstýringu. þegar tölvan var að pósta þá sagði hún við mig "Agp is not working" eða eitthvað svoleiðis. (langd síðan) þurfti samt að láta hana segja mér þetta nokkrum sinnum svo ég skildi hana
kom mér samt á óvart að kortið passaði ofan i AGP slottið.
Sent: Mán 17. Maí 2004 09:56
af so
Já þau eru skemmtileg þessi aopen móðurborð með raddstýringunni
Það getur verið svolítið bras að skilja þessa elsku þegar hún er að segja manni hvað sé að. Konan mín var forviða þegar ég var að spjalla við tölvuna í ræsingunni og ég er ekki frá því að hún hafai verið aðeins afbrýðisöm