Síða 1 af 1

1600 eða 1333 vinnsluminni ?

Sent: Mið 31. Ágú 2011 09:09
af -blank-
Daginn

Ég hef verið að velta fyrir mig muninum á 1600 og 1333 (Ekki því augljósa, klukkuhraða).

Í hvaða tilfellum myndi maður verlja 1333 eða velja 1600.

Það sem ég hef lesið er að 1600 sé eingögnu betra ef þú vilt vera að yfirklukka. Ef þú er bara að spila leiki þá er 1333 alveg nóg.

Hvað segja snillingarnir um þetta ?

Re: 1600 eða 1333 vinnsluminni ?

Sent: Mið 31. Ágú 2011 09:30
af Kristján
held að 1333 se með betri timings en það fer svo sem eftir minnum.

væri flott að fá tedda á hreynt

Re: 1600 eða 1333 vinnsluminni ?

Sent: Mið 31. Ágú 2011 09:48
af mundivalur
Það er bara rugl að vera spara 1-2000kr og kaupa 1333mhz,nema það eigi að búa til ódýra tölvu sem selst seinna á kúk og kanil :megasmile

Re: 1600 eða 1333 vinnsluminni ?

Sent: Mið 31. Ágú 2011 10:03
af MatroX
Kristján skrifaði:held að 1333 se með betri timings en það fer svo sem eftir minnum.

væri flott að fá tedda á hreynt

ef þú færð þér 1.35v minni getur alveg keyrt þau á cl7 með því að hækka voltin smá

Re: 1600 eða 1333 vinnsluminni ?

Sent: Mið 31. Ágú 2011 10:13
af -blank-
Væri hægt að fá lýsingu á þessum hlutum þar sem gert er ráð fyrir hlustandinn viti sama og ekkert um vinnsluminni ?

Re: 1600 eða 1333 vinnsluminni ?

Sent: Mið 31. Ágú 2011 13:03
af mind
mundivalur skrifaði:Það er bara rugl að vera spara 1-2000kr og kaupa 1333mhz,nema það eigi að búa til ódýra tölvu sem selst seinna á kúk og kanil :megasmile


Það sem mundivalur segir.

1600Mhz eru bestu kaupin.
1300Mhz ef verð er mjög viðkvæmt.
1600+ Mhz bara ef yfirklukka.

http://www.anandtech.com/show/4503/sandy-bridge-memory-scaling-choosing-the-best-ddr3/8