Síða 1 af 1
Ljósleiðari ?
Sent: Mán 29. Ágú 2011 18:10
af AncientGod
Hallo ég var að fá ljósleiðara en sé engan mun =S og skil ekki hvernig ég tengi router við ljósleiðara boxið ?
Re: Ljósleiðari ?
Sent: Mán 29. Ágú 2011 18:21
af mercury
hvernig router ert þú með ?
Re: Ljósleiðari ?
Sent: Mán 29. Ágú 2011 18:23
af Tiger
Prufaðu að hafa samband við
þennan, hann er að selja rosalega ódýrara tölvuviðgerðir og hlýtur að vita lausnina við svona litlu og hversdagslegu vandamáli sem allir tölvuviðgerðarmenn/konur vita.
Re: Ljósleiðari ?
Sent: Mán 29. Ágú 2011 18:23
af AncientGod
Er með svona hvítan standar vodafone router og þetta ljósleiðaraboð er eithvað "telsey" en það eru engar innstungur á því.
Snuddi skrifaði:Prufaðu að hafa samband við
þennan, hann er að selja rosalega ódýrara tölvuviðgerðir og hlýtur að vita lausnina við svona litlu og hversdagslegu vandamáli sem allir tölvuviðgerðarmenn/konur vita.
hahaha voða fynndið, ég bara kann því miður ekki á þessa routera og ljósleiðarabox og skil ekki nákvæmlega hvernig það á að tengja þetta við routerinn sjálfan.
Re: Ljósleiðari ?
Sent: Mán 29. Ágú 2011 18:37
af Gúrú
Það fer eftir því hvaða Telsey box þú ert með en það er lok á tengjunum, á mínu var það niðri til vinstri og þú tekur það af
til að afhylja 4 CAT tengi, 1 símsnúru tengi og rafmagnstengið.
Snuddi skrifaði:Prufaðu að hafa samband við
þennan, hann er að selja rosalega ódýrara tölvuviðgerðir og hlýtur að vita lausnina við svona litlu og hversdagslegu vandamáli sem allir tölvuviðgerðarmenn/konur vita.
Bros.
Re: Ljósleiðari ?
Sent: Mán 29. Ágú 2011 18:41
af AncientGod
Reyndi að opna það en eina leið sem ég sé er að skrúfa það í sundur, ef það hjálpar þá eru 4 ljós á honum, 2 x phone, 1 x link og 1 x power
Re: Ljósleiðari ?
Sent: Mán 29. Ágú 2011 19:23
af gtr
AncientGod skrifaði:Reyndi að opna það en eina leið sem ég sé er að skrúfa það í sundur, ef það hjálpar þá eru 4 ljós á honum, 2 x phone, 1 x link og 1 x power
nei nei nei - þú skrúfar það ekkert í sundur. Ef þú gerir það og hreyfir þig vitlaust eða eitthvað svoleiðis, geturðu brotið ljósleiðarann og þá þarftu að fá mann frá Gagnaveitunni til að splæsa saman ljósleiðarann aftur. Og það kostar eitthvað.
Taktu mynd af Telsey boxinu og póstaðu henni hérna inn.
kv.
gtr
Re: Ljósleiðari ?
Sent: Mán 29. Ágú 2011 19:28
af ManiO
Talaðu við fagmann.
Re: Ljósleiðari ?
Sent: Mán 29. Ágú 2011 19:46
af andripepe
það eru tengi á boxinu, koma svo ekki slefa svona mikið
Re: Ljósleiðari ?
Sent: Mán 29. Ágú 2011 19:49
af kazzi
Hvernig er það var þetta ekki sett upp fyrir þig ?
þegar ég fékk ljós þá komu menn frá GR og svo menn frá voda og gengu frá öllu og drógu í það sem þurfti.
Re: Ljósleiðari ?
Sent: Mán 29. Ágú 2011 19:53
af AncientGod
Já ok, það eru menn komnir frá rafveitu en ekki frá vodafone þannig bíða eftir þeim =D
Re: Ljósleiðari ?
Sent: Mán 29. Ágú 2011 20:01
af kazzi
Hvenær komu þeir frá GR ? voda ætti að koma innan 3-5 daga
Re: Ljósleiðari ?
Sent: Mán 29. Ágú 2011 20:03
af FuriousJoe
tengir auðvitað ekki símasnúruna í routerinn, og lan úr ljósboxi í slot 4 á routernum
Re: Ljósleiðari ?
Sent: Mán 29. Ágú 2011 20:05
af kizi86
tengin eru undir telsey boxinu, örugglega svona hvítt plast til að smella af, svo á cat snúran að tengjast úr pc1 tenginu á telsey boxinu í port 4 á routernum
Re: Ljósleiðari ?
Sent: Mán 29. Ágú 2011 20:11
af AncientGod
Þeir komu í morgun, það er því miður engin tengi sjáanleg svo eins og ég sagði það eru bara 2 skrúfur og búðið en ég er ekki að fara fikta í þessu, bara biða eftir vodafone helt að þetta væri reddað af þeim sem settu þetta upp.
Re: Ljósleiðari ?
Sent: Mán 29. Ágú 2011 20:11
af einarhr
Snuddi skrifaði:Prufaðu að hafa samband við
þennan, hann er að selja rosalega ódýrara tölvuviðgerðir og hlýtur að vita lausnina við svona litlu og hversdagslegu vandamáli sem allir tölvuviðgerðarmenn/konur vita.
Helduru að það sé ekki komin Facebook síða líka þar sem þessi lögbrot halda áfram
https://www.facebook.com/pages/T%C3%B6lvuvi%C3%B0ger%C3%B0ir-Fyrir-%C3%9Eig/123589167738187
Re: Ljósleiðari ?
Sent: Mán 29. Ágú 2011 21:02
af tdog
Trollin'... ?
Re: Ljósleiðari ?
Sent: Mán 29. Ágú 2011 22:34
af Tiger
Dreptu mig ekki.....
Re: Ljósleiðari ?
Sent: Þri 30. Ágú 2011 00:19
af DabbiGj
ég elska að senda tölvurnar mínar í viðgerð og láta pósta myndum af þeim á facebook
Re: Ljósleiðari ?
Sent: Þri 30. Ágú 2011 00:35
af kizi86
Snuddi skrifaði:Dreptu mig ekki.....
glæpamaðurinn eyddi flame-inu mínu af facebook síðunni:P awww.. en reportaði síðuna sem scam, þar sem hann er að selja stolinn hugbúnað
Re: Ljósleiðari ?
Sent: Þri 27. Sep 2011 10:02
af intenz
Þeir voru að tengja eitthvað hjá mér, er ég þá ready to go eða?
Re: Ljósleiðari ?
Sent: Þri 27. Sep 2011 12:05
af sigurfr
Átt að geta séð það með því að stimpla inn heimilisfangið í "Get ég tengst" inn á gagnaveita.is