Síða 1 af 2
Hvaða AMD móðurborðum mæliði með?
Sent: Mið 05. Maí 2004 16:57
af Stebbi_Johannsson
Mig langar að kaupa mér XP2500 en það fer allt eftir fjárhag í sumar hvernig það fer
hvaða móðurborð er stálið fyrir hátt verð og hvaða móðurborð er málið fyrir fátækan námsmann?
Sent: Mið 05. Maí 2004 17:28
af gumol
Ekki hlusta á hann...
...hann ýkir þetta aðeins
Sent: Mið 05. Maí 2004 17:49
af Arnar
Mega Juskaður Júði
Sent: Mið 05. Maí 2004 17:49
af pyro
ekki veit ég hvaða fífl gaf þér internetaðgang þarna á hælinu mjj, en þetta er nú full gróft sagt hjá þér.
AMD eru mjög fínir örgjörvar, Intel eru það líka. Maður velur sér örgjörva eftir því í hvað á að nota hann.
en að upprunalegur spurningunni.
Ég nota Abit AN7 móðurborð, og finnst það bara mjög gott, einnig veit ég að Abit NF-7 móðurborðin hafa verið að gera mjög góða hluti. Svo þekki ég því miður ekki vel til móðurborðanna í ódýrari kantinum.
Sent: Mið 05. Maí 2004 17:54
af Castrate
Ég held ég geti nú alveg mælt með Asus A7N8X sem ég fjárfesti fyrir 13þús krónur. Svo er líka til Delux útgáfa af fyrrum nefnda móðurborði sem kostar eitthvað meira og er með fleiri fídusum
Sent: Mið 05. Maí 2004 17:55
af Icarus
MJJ skrifaði:AMD sýgur rassgat, þetta er nú mesta ógeð sem til er. Fyrir utan það að þeir bjuggu til samkeppni.... það er það eina góða. Og hvað móðurborðin varðar, þá eru þau öll drasl, fáðu þér intel og troddu AMD draslinu uppí þverrifuna á AMD kallinum.
AMD stendur fyrir A(lhliða) M(ongólískt) D(rullutæki)
gaur, farðu útí horn og skjóttu sig. Pentium eru mjög góðir örgjörvar en AMD eru það líka. Fólk velur bara það sem það vill. Annars hefur Abit verið að gera góða hluti og svo líka Asus. Er sjálfur með Asus A7N8X Deluxe og núna er komið út A7N8X-E Deluxe.
Sent: Mið 05. Maí 2004 17:55
af gulligu
Hvar fást þessi móðurborð pyro?
Hættiði síðan þessu Intel rular eða Amd rular það er ekkert hægt að segja svona og síðan er þetta bara leiðinlegt..
Sent: Mið 05. Maí 2004 18:01
af Snorrmund
MJJ skrifaði:AMD sýgur rassgat, þetta er nú mesta ógeð sem til er. Fyrir utan það að þeir bjuggu til samkeppni.... það er það eina góða. Og hvað móðurborðin varðar, þá eru þau öll drasl, fáðu þér intel og troddu AMD draslinu uppí þverrifuna á AMD kallinum.
AMD stendur fyrir A(lhliða) M(ongólískt) D(rullutæki)
Ertu ekki búinn að fá þinn skammt af hlaupaútíveggágeðveikraheimilinu eða? AMD eru ekkert verri en Intel, fer bara eftir því í hvað þú ætlar að nota tölvuna. Amd er kannski ekki betra í að Encoda og eitthvað en AMD er nú bara mjög gott fyrir heimilistölvur
Sent: Mið 05. Maí 2004 18:20
af elv
gulligu skrifaði:Hvar fást þessi móðurborð pyro?
Hættiði síðan þessu Intel rular eða Amd rular það er ekkert hægt að segja svona og síðan er þetta bara leiðinlegt..
Hugver eru með Abit borðin.Boðeind er með umboðið fyrir Asus en það er líka til í computer.is .....var það allavega seinast þegar ég gáði
Sent: Mið 05. Maí 2004 19:39
af pyro
já, ég keypti mitt reyndar hjá task.is, en ég held þeir selji það ekki lengur
Sent: Mið 05. Maí 2004 20:19
af zream
Ég er með A7N8X-E Deluxe (keypt í USA) það er mjög flott , virkar vel og fullt af fídusum. Kostaði eitthvað 10-15þús
Re: Hvaða AMD móðurborðum mæliði með?
Sent: Mið 05. Maí 2004 21:16
af RadoN
Stebbi_Johannsson skrifaði:Mig langar að kaupa mér XP2500 en það fer allt eftir fjárhag í sumar hvernig það fer
hvaða móðurborð er stálið fyrir hátt verð og hvaða móðurborð er málið fyrir fátækan námsmann?
hversvegna ertu að fá þér 2500 ef þú ert með P4 2.4 ?
..
Sent: Mið 05. Maí 2004 21:22
af Berti
Ég er sjálfur með P4 2400 og hann er að vinna alveg jafn vel og AMD 2500barton sem félagi minn á... málið er bara að þú verður að fá þér meira minni, sérstaklega ef´þú ert að keyra windows 256 er alls ekki nóg þar
ef þú villt nýta alveg örran fáðu þér betra minni
Sent: Mið 05. Maí 2004 21:41
af gulligu
Hann tók bréfið út
Sent: Mið 05. Maí 2004 22:25
af Stebbi_Johannsson
ætla að fá mér dual ddr 256mb eða 512mb í sumar... fer allt eftir fjárhag
Sent: Mið 05. Maí 2004 22:44
af wICE_man
XP2500+ er á svipuðu róli eða kanski örlítið betri en 2.4 533FSB svo ég sé ekki ástæðu að uppfæra nema að eitthvað fleira komi til. Ertu eitthvað óánægður með núverandi örgjörva? Það væri nær að fjárfesta í góðu P4 móbói og minni.
Sent: Fim 06. Maí 2004 01:54
af Dári
MJJ er bannaður. ég fleygði bréfinu út, enda bara bull sem kemur frá honum.
Sent: Fim 06. Maí 2004 11:35
af Icarus
Dári skrifaði:MJJ er bannaður. ég fleygði bréfinu út, enda bara bull sem kemur frá honum.
hann kom smá lífi í spjallborðið, svona eins og icave
Sent: Fim 06. Maí 2004 12:00
af pyro
Icarus skrifaði:Dári skrifaði:MJJ er bannaður. ég fleygði bréfinu út, enda bara bull sem kemur frá honum.
hann kom smá lífi í spjallborðið, svona eins og icave
Er samt ekki alveg nóg að hafa eitt svona tröll á spjallborðum, eru tvö ekki of mikið?
Sent: Fim 06. Maí 2004 12:01
af gnarr
icave hefur aldrei skitið yfir eitthvað og bullað bara. hann kemur alltaf með rök fyrir öllu og rökræðir bara. hann bullar ekki.
Sent: Fim 06. Maí 2004 12:05
af viddi
pyro skrifaði:já, ég keypti mitt reyndar hjá task.is, en ég held þeir selji það ekki lengur
þeir selja það enþá þarft bara að panta það
Sent: Fim 06. Maí 2004 12:45
af Atlinn
Gigabyte eru líka með mjög góð AMD borð.. þetta er líka spurning um hvað þú þarft að hafa.. ertu með skjá/hljóð/net-kort, þarftu borð með supporti fyrir seral ata, hvaða minni ertu að nota. Með því að sleppa einhverju að þessu þá geturu kanski sparað þér einhverja þúsundkalla
Það er eitt á 10k hjá
www.tolvuvirkni.net það er með hljóð og netkorti, styður 3gb af ddr400 minni og norton fylgir
Svo eru líka þessi stæðstu merki í þessu Abit, Asus, MSI, gigabyte Aopen eru líka góð
Það gerur líka verið gaman að skoða síður eins og
http://www.tomshardware.com
Sent: Fim 06. Maí 2004 13:52
af Icarus
gnarr skrifaði:icave hefur aldrei skitið yfir eitthvað og bullað bara. hann kemur alltaf með rök fyrir öllu og rökræðir bara. hann bullar ekki.
eins og í gær þegar hann kallaði foreldra monkeyn alkahólista á #vaktin.is ?
Sent: Fim 06. Maí 2004 14:02
af pyro
hehe... já svo sannarlega sanngjörn og réttmæt ummæli hjá þessum ágæta dreng sem alltaf hefur rétt fyrir sér
Sent: Fim 06. Maí 2004 14:19
af Hlynzi
Asus eru bestir.
Ég hef bara mjööög góða reynslu af þeim, á Asus ferðatölvu, 2 móðurborð og ti4600 skjákort. Og það virkar ennþá jafnvel og daginn sem ég gekk með það útúr búðinni, eða fékk það sent heim.