Síða 1 af 1

Hiti á amd örgjörvum?

Sent: Þri 04. Maí 2004 18:21
af levi
Ég er að spá hvað er eðlilegur hiti fyrir amd xp2800+ barton örgjörva er með svona viftu http://www.computer.is/vorur/3333 .
Örrinn er stilltur á 200*10,5 og er 47° í 100% loadi og 42° í normal bara

Sent: Þri 04. Maí 2004 18:23
af MJJ
fínasti hiti

Sent: Þri 04. Maí 2004 18:24
af levi
já en hvað er svona max hiti?

Sent: Þri 04. Maí 2004 18:25
af MJJ
stilltu bara á þannig að hún slökkvi í 70-80°c þá ertu ekki að skemma neitt allavegan annars nota ég intel, átti amd áður og hann var á svipuðum hita

Sent: Þri 04. Maí 2004 19:13
af zream
Ég er með 2500+ Barton örgjörva og hann er svona 40-43 idle veit ekki alveg í loadi , er bara með viftuna sem fylgir.

Sent: Þri 04. Maí 2004 19:40
af Hlynzi
undir 60° c er gott fyrir AMD.

Sent: Þri 04. Maí 2004 21:05
af Dannir
Minn amd64 er í 34 idle og 40 load með retail viftuni þannig að amd eru búnir að breytast svolítið

Sent: Mið 05. Maí 2004 21:10
af RadoN
minn 2500 er í 39°~42° idle, fer í 46° load
er að nota CoolerMaster Aero 7+ :8)

Sent: Mið 05. Maí 2004 21:50
af wICE_man
Ég er að keyra XP1700+ á 2.1GHz@1.75V og kæli hann með Thermal Take - Silent Viking. Hann er í 43-45 gráðum.

Sent: Lau 08. Maí 2004 16:11
af ErectuZ
Shit! Minn er svona 56°C idle og getur farið alveg upp í 63°C í load :? Og ég er sko með þennan sama og höfundurinn...

Sent: Lau 08. Maí 2004 16:30
af wICE_man
Allt spursmál um kælingu, ef maður er með góða örgjörvaviftu, eitthvað loftinnstreymi í kassan og ekki of troðið af hörðum diskum og öðru drasli þá er ekkert mál að ná 40-45 gráðum.

Sent: Lau 08. Maí 2004 18:02
af gulligu
Hvernig fórstu að því að ná 1700xp í 2,1
Hvað er hann orginal?
1,5

Sent: Lau 08. Maí 2004 21:41
af Axel
Myndi nú stilla þetta þannig að að slökkvi á sér við 65-70° frekar en 70-80° :lol:

Sent: Sun 09. Maí 2004 03:50
af wICE_man
XP1700+ er 1467MHz en thoroughbred-B kjarninn er þekktur fyrir frábæra yfirklukkun, XP1700+ voru ódýrustu örrarnir í þeirri línunni og ná yfirleitt eitthvað yfir 2GHz, ég hef farið með hann upp í 2.2GHz en þá er vélin ekki nógu stöðug.

Sent: Mán 10. Maí 2004 13:38
af viddi
ja hér er hitin á mínum 2000 XP í load

Sent: Mán 10. Maí 2004 14:11
af Hlynzi
viddi3000 skrifaði:ja hér er hitin á mínum 2000 XP í load


hvað er AUX ?

Sent: Mán 10. Maí 2004 14:51
af viddi
ég held að það séu þéttarnir í kringum örran :roll:

Sent: Mán 10. Maí 2004 15:03
af Hlynzi
viddi3000 skrifaði:ég held að það séu þéttarnir í kringum örran :roll:


Það er ekki fræðilegur möguleiki að þeir séu að hitna uppí 40° c !!
Ég hef verið að nota magnara með 33 þúsund míkró Farad þéttum, 4 stykki. Og enginn af þeim svo mikið sem hitnaði. u

Sent: Mán 10. Maí 2004 15:31
af gnarr
jú, þessir þéttar á móðurborðum eru oft að hitna mjööög mikið. oft í alveg 70° á sumum móðurborðum.

Sent: Mán 10. Maí 2004 15:35
af MezzUp
hélt að AUX væri PSU?

Sent: Mán 10. Maí 2004 16:14
af fallen
Viddi, hvernig breyttirðu nöfnunum yfir í íslensku ? :P

Sent: Mán 10. Maí 2004 17:02
af Snorrmund
er AUX ekki skjákortið eða eitthvað :?

Sent: Mán 10. Maí 2004 17:07
af Hlynzi
halli skrifaði:Viddi, hvernig breyttirðu nöfnunum yfir í íslensku ? :P


Ég var líka að pæla í þessu. Það er einfallt. Þú velur bara configure, og ferð svo klikkar á eitthvað nafn..t.d. HD0 og ýtir á F2 (rename) og skrifar það sem þú villt.

Sent: Mán 10. Maí 2004 20:10
af viddi
MezzUp skrifaði:hélt að AUX væri PSU?


ég held að það sé ekki hitamælir inni í mínu PSU

Sent: Mán 10. Maí 2004 20:11
af viddi
Hlynzi skrifaði:
halli skrifaði:Viddi, hvernig breyttirðu nöfnunum yfir í íslensku ? :P


Ég var líka að pæla í þessu. Það er einfallt. Þú velur bara configure, og ferð svo klikkar á eitthvað nafn..t.d. HD0 og ýtir á F2 (rename) og skrifar það sem þú villt.


allveg rétt hjá þér