Síða 1 af 3

ATI Raedon X800 XT & Geforce 6800 Ultra benchmark!!!

Sent: Þri 04. Maí 2004 00:10
af skipio

Sent: Þri 04. Maí 2004 00:19
af Lazylue
Er nvidia sem sagt algjörlega að skíta á sig.
Er einhver verðsamanburður kominn á öll þessi kort?

Sent: Þri 04. Maí 2004 00:22
af gumol
Er 9800xt ekki besta skjákort Radeon á markaðnum í dag? (allavega á Íslandi)

Sent: Þri 04. Maí 2004 00:39
af wICE_man
ATI hefur semsagt yfirhöndina aftur en bara með hársbreidd t.d. er CoD og Aquamark betri á GF 6800, mér skilst þó að Nvidia ætli sér að koma út með örfá "Extreme" Ultra kort sem eiga að vera hraðari en X800XT.

Sent: Þri 04. Maí 2004 09:32
af skipio
Annað review - fleiri benchmarks en núna á spænsku.
http://www.meristation.com/sc/articulos ... 5218&pag=0

Fyrri benchmark en núna allar myndirnar á sömu síðunni:
http://www.popclone.com/leakedx800bench/

Sent: Þri 04. Maí 2004 15:39
af wICE_man
Listi yfir benchmarks á netinu:

http://www.anandtech.com/#22108

Mér sýnist Ati hafa enn einu sinni skotið Nvidia ref fyrir rass. Það er ekki mikill munur á afköstum GF6800 og X800XT en Ati kortið kemst vel fyrir í einni rauf og með einu aukarafmagnstengi á meðan Nvidia kortið krefts tvenns af hvoru. Það held ég að muni skipta mestu máli um hvað fólk kaupir sér á endanum.

Sent: Þri 04. Maí 2004 15:41
af Arnar

Sent: Þri 04. Maí 2004 23:17
af Pandemic
wICE_man ég vill minna þig á að kortið þarf bara einn molex 4-pin hinn er bara extra :) og hann kickar-inn þegar mikið álag kemur á kortið

Sent: Þri 04. Maí 2004 23:32
af wICE_man
Engu að síður er orkunotkunn Ati kortsins mun lægri (40-50%) en Nvidia, það er mikill munur og þú þarft örugglega báða aukatenglana til að tryggja fullkominn stöðugleika í þungri keyrslu.

Sent: Mið 05. Maí 2004 00:05
af kemiztry
Svo á ATI kortið að vera ódýrara heldur en Geforceinn... sem er náttlega líka góður plús :)

Sent: Mið 05. Maí 2004 00:11
af wICE_man
Er það? Ég hélt að áætlað verð á topp módelunum væri 499$ hjá báðum fyrirtækjunum.

Sent: Mið 05. Maí 2004 00:37
af thorgeir
Það þyðir ekkert að taka bara 1 benchmark þar sem annað kortið er betra og segja hitt er drasl.. þessvegna eru alltaf gerð mörg test.. en ég get alveg gert það sema með sama leik...




BTW: myndin er tekin héðan
http://www.extremetech.com/article2/0,1 ... 557,00.asp

Sent: Mið 05. Maí 2004 09:50
af wICE_man
Athuga skal að það er "Extreme" GF kortið sem er þarna efst, en það var svar Nvidia við þessu nýja útspili Ati. Sennilega er það örlítið hraðar yfir heildina litið en það er erfitt að dæma um það.

Athugið að X800 kortin notast við beta rekkla en GF6800 eru sennilega að nota nýjustu rekkla (61.11) sem bæta afköstin um allt að 10% fram yfir fyrri rekla, það getur því verið að Ati geti kreyst smá auka úr kortunum.

Sent: Mið 05. Maí 2004 14:49
af goldfinger
og ég skil ekki shit i þessu :D

Sent: Mið 05. Maí 2004 15:25
af wICE_man
rekklar = drivers

Ekki viss með hvort það séu tvö k eða eitt í rek(k)lar

Sent: Mið 05. Maí 2004 16:03
af fallen
Reklar.

Sent: Mið 05. Maí 2004 16:10
af Hlynzi
Ég skil ekki afhverju móðurborð fara ekki að koma með sér sökkli fyrir GPU örgjörvann, þá kaupum við ekkert kort sem tekur tvær raufar og þannig.

Þetta er fullmikið, það mætti hann leikina þannig að kortin nýtist betur, held að samspilið þarna á milli sé ekki clear.

Sent: Mið 05. Maí 2004 16:12
af axyne
Pandemic skrifaði:wICE_man ég vill minna þig á að kortið þarf bara einn molex 4-pin hinn er bara extra :) og hann kickar-inn þegar mikið álag kemur á kortið


kortið virkar ekki nema báðir molex'arnir eru tengdir.

Sent: Fim 06. Maí 2004 16:50
af Sidious
Er ekki líka málið að Nvidia kort er future proof en ATI kortið ekki og svo er ATI kortið byggt á architechture (stafs.?) gömlu línurnar en Nvidia kortið byggt upp frá grunni, þannig að betri drivers geta unnið undur og stórvirki ef þeir heppnast vel

Sent: Fim 06. Maí 2004 18:41
af gnarr
Sidious skrifaði:Er ekki líka málið að Nvidia kort er future proof en ATI kortið ekki


þú meinar? :?

Sent: Fim 06. Maí 2004 19:44
af SolidFeather
Pixel Shader 3.0

Sent: Fös 07. Maí 2004 00:02
af gnarr
og hvað meinaru með að það sé eitthvað future proof þessvegna? það eru til like 3-4 leikir núna (ég veit að það er rugl.. en þeir eru fáir) sem styðja bumpmapping og pixelshader.. samt eru þetta orðinir nokkurra ára gamlir staðlar.

Sent: Fös 07. Maí 2004 00:42
af ICM
Margir keyptu sér nú GeForce 3 af því að þetta var svo hyped en samt leið langur tími og engir framleiðendur nýttu þetta, fyrr en síðar þegar GeForce3 kortin réðu ekki einusinni ásættanlega við leikina.

pixel shaders og bump mapping var orðið algentt á XBox leikjum löngu áður en þannig leikir voru gefnir út á borðtölvur. PC leikja markaðurinn er of lítill til að framleiðendur geti bundið sig við "nýjustu" tækni hverju sinni, enda hræðilega mikil sjóræningja starfsemi að skaða þann markað.

ATi kortin núna eru með betri pökkunar aðferð sem getur haft áhrif á leiki sem eru til nú þegar, að ætla að kaupa PS3.0 kort núna uppá framtíðina er eins öruggt og þegar menn voru að kaupa sér GF3 hér áður.

Sent: Fös 07. Maí 2004 12:36
af Spirou
IceCaveman skrifaði:Margir keyptu sér nú GeForce 3 af því að þetta var svo hyped en samt leið langur tími og engir framleiðendur nýttu þetta, fyrr en síðar þegar GeForce3 kortin réðu ekki einusinni ásættanlega við leikina.

pixel shaders og bump mapping var orðið algentt á XBox leikjum löngu áður en þannig leikir voru gefnir út á borðtölvur. PC leikja markaðurinn er of lítill til að framleiðendur geti bundið sig við "nýjustu" tækni hverju sinni, enda hræðilega mikil sjóræningja starfsemi að skaða þann markað.

ATi kortin núna eru með betri pökkunar aðferð sem getur haft áhrif á leiki sem eru til nú þegar, að ætla að kaupa PS3.0 kort núna uppá framtíðina er eins öruggt og þegar menn voru að kaupa sér GF3 hér áður.


Það tók þrjár vikur fyrir Farcry teamið að læra og implementa Pixel Shaders 3.0. Áður hafði leikurinn bara verið með PS2.0 og undir. Þrjár vikur er ekki neinn tími og ávinningurinn var gífurlegur. Ef leikurinn styður PS2.0 þá er lítið mál að fara upp í 3.0 með litlum tilkostnaði.

Sent: Fös 07. Maí 2004 16:36
af wICE_man
Spirou:
Ef leikurinn styður PS2.0 þá er lítið mál að fara upp í 3.0 með litlum tilkostnaði.


Já, en enginn getur greint muninn á skjánum :P