Síða 1 af 1

Fermingarvél

Sent: Mán 13. Jún 2011 19:57
af Alcatraz
Sælir,
Ég var beðinn um að leita af tölvu fyrir einn fermingarstrák. Hún verður líklega aðalega notuð í leiki og verðhugmynd var í kringum 150.000 kr.

Er þessi pakki ekki fínn frá Tölvuvirkni: http://www.tolvuvirkni.is/ip?inc=viewpr ... av=GP_A153 ?
Það væri alla vega mun þægilegra að kaupa heila tölvu frá einni búð frekar en að púsla henni saman.

Re: Fermingarvél

Sent: Mán 13. Jún 2011 21:30
af Eiiki
Vantar þig bara turn eða viltu hafa allt með? (Þá er ég að tala um skjá+lyklaborð+mús+hátalara/heyrnatól)

Re: Fermingarvél

Sent: Mán 13. Jún 2011 21:37
af Klaufi
Ég mndi ráðleggja þér að tala við strákana í Tölvutækni.

Segðu þeim hvaða verðhugmynd þú ert með í huga og áætlaða notkun.
Er nokkuð viss um að þeir henda saman skotheldum pakka á flottu verði! ;)

Ath: Hef engra hagsmuna að gæta, hef bara aldrei fengið eins góða þjónustu og þar.
Fyrir utan það að þeir styrktu fyrstu tölvunördakeppni Íslands sem tengdist ekki leikjaspilun.
:beer

Re: Fermingarvél

Sent: Mán 13. Jún 2011 21:38
af Halli13
Eiiki skrifaði:Vantar þig bara turn eða viltu hafa allt með? (Þá er ég að tala um skjá+lyklaborð+mús+hátalara/heyrnatól)


Miðað við að hann setti það allt í körfuna og hún kosatði 150.000 þá býst ég við að honum vanti allt á 150.000

Ert líka að borga þarna næstum því 9.000 fyrir samsetningu en held að strákarnir í tölvutækni hendi þessu saman fyrir þig frítt ef þú verslar allt hjá þeim.

Re: Fermingarvél

Sent: Mán 13. Jún 2011 21:56
af Eiiki
Tek undir þetta með Klaufa og Halla :happy Mæla held ég langflestir hérna með því að þú myndir tala við þá í tölvutækni og þeir henda saman eins skotheldum pakka fyrir þig og þú getur hugsað þér fyrir peninginn.

Re: Fermingarvél

Sent: Mán 13. Jún 2011 22:23
af bulldog
Mæli með tölvutækni :)

Re: Fermingarvél

Sent: Þri 14. Jún 2011 00:50
af HjorturG
Tölvutækni alla leið! Nýbúinn að fá topp þjónustu þar!

Re: Fermingarvél

Sent: Mið 15. Jún 2011 00:56
af Alcatraz
Takk fyrir þetta, ég skoða þá Tölvutækni!