Síða 1 af 1

Hvaða SSD fyrir Thinkpad T400?

Sent: Sun 12. Jún 2011 18:30
af Waits
Jæja vaktarar, núna kitlar all hressilega að fá sér SSD fyrir Thinkpad vélina mína.

Hvaða SSD mynduð þið mæla með? Er að leita að bestu blöndunni milli performance og budget, ég verð með HDD í vélinni fyrir efni en SSD undir OS+forrit.
Vélin styður einungis sata 3Gb/s svo að diskar með 6 Gb/s eru væntanlega overkill

Vélin er notuð í CAD, forritun, Matlab, multitasking og almennt vefráp.

Hef kíkt á OCZ Vertex 2 og líka Intel 320 series.

Endilega koma með góð ráð varðandi hvaða SSD er best að taka.

Re: Hvaða SSD fyrir Thinkpad T400?

Sent: Mán 13. Jún 2011 12:38
af GrimurD
Einn sá besti og hraðasti sem þú getur fengið fyrir peninginn: http://start.is/product_info.php?cPath= ... ts_id=2897

Er með þennan í minni t410 og sé ekki eftir neinu. Er reyndar ekki með einn hdd fyrir efni eins og þú þannig hefði viljað 80gb diskin en þessi dugar alveg.

Re: Hvaða SSD fyrir Thinkpad T400?

Sent: Mið 15. Jún 2011 18:41
af Waits
Takk fyrir þessa ábendingu, ég bý í DK svo að ég hef úr aðeins betra verði og úrvali að velja úr hérna úti heldur en á Íslandi svo að ég fæ mér eflaust 120 GB Vertex 2 og svo Hot-swap HDD Ultrabay ramma til að setja gamla diskinn í.
Skv Tom's þá ætti ég að vera að fá gott value fyrir peninginn með þeim kaupum.

Ef einhver hefur betri ábendingu þá endilega láta í sér heyra

Re: Hvaða SSD fyrir Thinkpad T400?

Sent: Mið 15. Jún 2011 19:59
af audiophile
Corsair F120 er að gera sig, allavega samkvæmt prófunum hjá Anandtech.

Re: Hvaða SSD fyrir Thinkpad T400?

Sent: Mið 15. Jún 2011 20:11
af GrimurD
Vertex 2 er að nota sama controller og þessir diskar sem við póstuðum þannig ert að fá alveg sama performance. Annars ef þú varst að tala um vertex 3 þá er hann varla worth it í þessa tölvu nema þú hugsir þér að uppfæra í tölvu með sata 3 controller á næstunni þótt hann sé svosem fínasta fjárfesting upp á framtíðina.

Og hefði fengið mér hotswap ultraybay bara átti ekki auka 20k til að eyða þegar ég var að gera þetta :(