Vinnsluminnis hjálp


Höfundur
drasl
Nýliði
Póstar: 8
Skráði sig: Mán 12. Júl 2010 11:03
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Vinnsluminnis hjálp

Pósturaf drasl » Þri 17. Maí 2011 12:16

Sælir, ég hef verið að hugsa mér að bæta við innra minni í tölvuna hjá mér.. En áður en það er gert er víst best að vera viss um að maður sé að gera þetta rétt !

Í tölvunni sem stendur eru Kingston 2x 2gb DDR3 667mhz = 4gb. Langaði mig að bæta við þar sem þetta er farið að vera frekar lítið.. En hvernig er samt best að fara að því ? Ég hef líka lesið eitthvað um að ef ég sé með 64bita stýrikerfi þá sé hægt að bæta við minni með hærri tíðni en er nú þegar í vélinni, er það rétt ?

Þar sem ég er með tvær raufar lausar þá ætlaði ég að reyna bæta tveimur kubbum við. Lýst mér ágætlega á þessa viðbót hér ( http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=6294 ), sem eru 2 kubbar af 4gb minni.. En reyndar 1333MHz.. Ef þetta virkar saman þá myndi það detta niður á sömu tíðni og hinir kubbarnir geri ég ráð fyrir, ef það er rétt væri þá betra að taka hina kubbana úr og hafa þessa nýju bara staka ?




Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4197
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1351
Staða: Ótengdur

Re: Vinnsluminnis hjálp

Pósturaf Klemmi » Þri 17. Maí 2011 12:36

Það eru allar líkur á að þú sért með annað hvort DDR2 667MHz eða DDR3 1333MHz, ef þú ert með DDR3 þá sástu líklega bara 667MHz töluna sem á að margfalda með 2 þar sem DDR stendur fyrir double-data-rate.

Annars hefur 64bita stýrikerfið bara áhrif á það að þú getur nýtt meira en 4GB af vinnsluminni í tölvunni, það hvort að kubbar af mismunandi hraða gangi saman er alveg undir móðurborðinu þínu komið.




Höfundur
drasl
Nýliði
Póstar: 8
Skráði sig: Mán 12. Júl 2010 11:03
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Vinnsluminnis hjálp

Pósturaf drasl » Þri 17. Maí 2011 13:19

Jæja, ég ákvað að kanna þetta aðeins betur. Tók ég nokkrar myndir af specs.

http://www.imgupload.net/images/1172781 ... 039622.jpg
http://www.imgupload.net/images/2405836 ... 644026.png
http://www.imgupload.net/images/2527642 ... 340727.jpg

Með þetta í huga, gæti ég sett þetta vinnsluminni sem ég hlekkjaði á í vélina án þess að steykja allan pakkann ? :-"