Síða 1 af 1

Móðurborð fyrir XP

Sent: Mið 14. Apr 2004 21:49
af WarriorJoe
Ég er að setja saman vél fyrir vin minn - má kosta um 80-100þús kall.. Vantar ekki harðadisk, kassa né skjá..

Ég er kominn með þetta :

2800xp - att.is - 12.900
OCZ PC-3200 512MB Premier Dual Channel DDR 2x256 - task.is - 14.900
Thermaltake Silent Boost vifta fyrir AMD XP - task.is - 3990
Radeon9600 XT 256MB - att.is 23.950

-- En ég veit ekkert hvaða móðurborð er best fyrir AMD pakkan - Það þarf að vera dual channel, 8xAGP og eitthver sniðugheit.. Það á ekkert að fara overclocka þannig það skiptir ekki.. Hvaða móðurborði mæliði með og er eitthvað sem mætti fara betur í þessum pakka?

Sent: Mið 14. Apr 2004 21:50
af Hlynzit

Sent: Mið 14. Apr 2004 21:54
af WarriorJoe
Ekki dual channel dæmi þarna, það er 100% must... nýta ocz 2x 256..

Sent: Mið 14. Apr 2004 21:57
af Hlynzit
þá er þetta kostur 2 DUAL CHANNEL

http://computer.is/vorur/2699

Sent: Fim 15. Apr 2004 08:33
af pyro
Abit AN7 móðurborð

Sent: Fim 15. Apr 2004 09:00
af viddi
ABIT AN7

Sent: Fim 15. Apr 2004 11:46
af wICE_man
Til hvers Dual-channel þegar þú færð 95-99% af performance með góðu single-channel móbói, ég mæli með þessu:

http://www.tolvuvirkni.net/ip?inc=view&flo=product&id_top=945&id_sub=825&topl=10&page=1&viewsing=ok&head_topnav=MOB_7VT600F

En hey, það er bara ég :wink:

Sent: Fös 16. Apr 2004 01:01
af Nemesis
Af hverju svona ódýran örgjörva en dýrt skjákort? Ég myndi gera það öfugt, taka t.d. Radeon 9600pro en aftur á móti betri örgjörva.

Sent: Fös 16. Apr 2004 10:32
af wICE_man
Af því að það skiptir meira máli að skjákortið sé gott þegar þú ert að spila leiki. Á þessari vél mun hann taka allar fínu, samsettu, 3.0GHz P4 vélarnar í ra****tið enda eru þær allar með einhverju rusl GF 5600XT korti.

Sent: Fös 16. Apr 2004 10:34
af wICE_man
Ein ráðlegging samt, keyptu kortið hjá tölvuvirkni, betra verð (17.000) og betri þjónusta.

Sent: Fös 16. Apr 2004 11:07
af gumol
wICE_man skrifaði:Af því að það skiptir meira máli að skjákortið sé gott þegar þú ert að spila leiki. Á þessari vél mun hann taka allar fínu, samsettu, 3.0GHz P4 vélarnar í ra****tið enda eru þær allar með einhverju rusl GF 5600XT korti.
ehhm, hvað kom P4 þessu við? ;)

Sent: Fös 16. Apr 2004 13:38
af wICE_man
Ekkert nema að þar er á ferðinni betri örgjörvi með slappara þrívíddarkorti, ég tók nú bara svona dæmi úr raunveruleikanum þar sem við vorum að tala um það á öðrum þræði hvernig allar samsettar vélar eru oft með uber örgjörva eins og P4 3.0GHz en einhverju drasl skjákorti á borð við 5600XT.

Ekki taka þetta nærri þér gumol, ég var bara að nota Pentium örran þarna sem dæmi um dýrari og hraðari örgjörva.

Allir sem eiga 5600XT mega hins vegar taka þetta nærri sér og henda því í ruslið :D :D

Sent: Fös 16. Apr 2004 14:07
af gumol
Ok, misskildi þig aðeins.

Sent: Fös 16. Apr 2004 15:54
af Nemesis
Það er mismunandi eftir leikjum hve mikið þeir nýta skjákortið. Til dæmis notar cs, sem þessi vél verður líklegast notuð í, örgjörvan min meira en skjákortið; örgjörvinn skiptir meira máli.

Svo segir maður "kauptu", dregið af sögninni "að kaupa", ekki "að keypa" ;)

Sent: Fös 16. Apr 2004 16:01
af WarriorJoe
Gimpið ákvað að breyta í P4 - Þannig er að skoða þetta :

Pentium 4 3.0 OEM
OOCZ PC-3200 1024MB Premier Dual Channel DDR 2x512
Zalman CNPS7000A-Cu
Radeon9600 XT 256MB
Abit IC7

Sent: Fös 16. Apr 2004 16:12
af Nemesis
Þetta er náttúrulega öflugri tölva en hin ;) Sjálfur fengi ég mér samt ódýrari örgjörva og bara 128MB minni í skjákortið, svo gætiru yfirklukkað örgjörvann upp í 3GHz eða meira og sparað vini þínum pening þannig, ágætis yfirklukkunarmöguleikar með svona gott móðurborð og örgjörvaviftu. 256MB minni hefur ekki verið að standa sig neitt betur í leikjum að ráði fram yfir 128MB minni á eins korti, leikirnir nota einfaldlega aldrei allt þetta minni.

Hvaða vinur þinn er þetta annars?

Sent: Fös 16. Apr 2004 17:46
af WarriorJoe
þekkir hann ekki, og hann kann ekki að overclocka :D

Sent: Fös 16. Apr 2004 17:59
af wICE_man
Sammála nemesis, fáðu heldur 2.8 P4 og 128MB skjákortið, sparar helling en missir lítið performance, ég myndi líka fá mér móðurborð með PT880 Dual channel kubbasettinu frá VIA, það er að afkasta á við 875p kubbasettin en móðurborðin með því eru miklu ódýrari, ég mæli með Abit VT7 eða MSI PT880 NEO-LSR, vantar að vísu firewire og GigaLan en eru með öllu öðru þ.á.m SATA-RAID ofl.

Sparar 10-15þús kall við þetta.

Sent: Fös 16. Apr 2004 20:24
af pyro
Ég mæli ennþá með AMD XP2800+ og Abit AN7

Örri: 12.550 @tt.is
móðurborð: 12.990 hugver
Samtals: 25.540

Dæmið með Intel:
P4 2.8 800mhz FSB Abit VT7

Örri: 17.950 @tt.is
móðurborð: 9.990 tölvulistinn
Samtals: 27.940

S.s. AMD er ódýrari kostur... sérstaklega þar sem hann ætlar ekkert að overclocka. Svo er ég líka bara hrifnari af AMD :D

AMD ekki ódýrari kostur

Sent: Fös 16. Apr 2004 20:35
af gumol
Gleymir sammt að nefna að 2800 XP er hægvirkari en P4 2,8 GHz.
Ég tel að það sé alveg þessa virði að kaupa intelinn á 2500 kr. meira miðað við afköst og þessvegna sé AMD ekki ódýrari kostur

En ég er auðvita líka hrifnari af Intel.

Sent: Lau 17. Apr 2004 01:01
af wICE_man
Móðurborðið sem hann velur fyrir AMD gjörvan er reyndar mun dýrara, með fleiri fídusum, ef hann velur samskonar móðurborð þá er munurinn 5000 kall, ég myndi reyndar bara kaupa mér 2500+ á 7.750kr og spara 10.000 kall.

Þessi tiltekni P4 örri er svo reyndar prescott en ég er ekkert sérlega hrifinn af honum. Hann er aftur á móti 2000 krónum ódýrari en northwood.

Sent: Lau 17. Apr 2004 01:07
af WarriorJoe
Mjá.. Hann vill allavega P4 örgjörva.. Hvernig vél mynduð þið setja saman fyrir 70-90 þúsund.. Vantar skjákort, örgjava, örgjavaviftu, móðurborð og minni...

Endilega komið með hvað þið mynduð gera - vélin ekki notuð í overclock, og verður 90% notuð í leiki.

Sent: Lau 17. Apr 2004 07:43
af J0ssari
WarrioJoe:
Það er minnsta mál að overclocka töluvert. Hvaða vitleysingur getur fundið fbs/multipler í BIOS og hækkað :P
Ef þú þorir ekki sjálfur þekkið þið örugglega einhvern sem getur hjálpað.
Multipler X FBS = MHZ
15 x 200 = 3 ghz ....

Síðan runna tölvuna á 100% CPU/Önnur benchmarks í einhvern tíma til að athuga stöðuleika. Ef þú færð restart/BSOD.... á þá er bara að bakka nokkur mhz.
Einnig er gott að hækka voltage smá ef viðkomandi þorir(hættulegt) :P

Fyrir max overclock er oftast multipler skrúfaður niður í ekki neitt, og FBS nauðgað eins hátt og hann vill fara. Síðan lækkaður nokkur mhz og multipler aftur hækkaður.

Varðandi skjákortið. Þá er svona þumalputta regla að 256mb minni á kortum er klukkað lægra en minni á 128mb kortum = 256mb kort eru hægari.
Að viðbættu að eingir leikir sem eru að koma út nota nálægt 128mb af textures.
Doom 3 notar hvað ?, ~90mb ?.

Radeon9600 XT 128mb 15.690 kr -Tölvuvirkni.


Muna svo að snerta jörð allavega af og til. Meðan þú ert að troða þessu saman. :8)

Sent: Lau 17. Apr 2004 19:13
af gnarr
læstur multiplier.. ;) annars er piece of cake að oc-a

ég myndi taka Abit IC7 eða AI7, P4 2.8GHz Northwood (samt líst mér ágætlega á prescott, ég held að hann sé að far aða rocka innan skamms), 2x 512MB 400-433DDR CL2 og 9700pro hjá computer.is.

ic7 = 13.990 - hugver
P4 2.8 northwood, retail = 17.999 - bt
512MB HyperX 400 *2 = 24.572 - tölvuvirkni, staðgreitt
Ati Radeon 9700pro = 29.370 - computer.is

samtals= 85.931kr

hann fær ekki betri leikjatölvu/vinnutölvu/grafíkvinslutölvu/younameit fyrir þennann pening.